Lesbók Morgunblaðsins - 21.10.1962, Qupperneq 7
Ihálfa Öld hafa
verið skátar á ís-
landi og í sumar minntust
þeir þessa afmælis með fjöl-
meflnu skátamóti á Þing-
völlum. Þar komu skátar
frá öllum landshlutum og
jafnvel frá öðrum löndum.
Mótið hófst 29. júlí og alla
dagana ríkti þar gleði og
góðvild, jafnvel þegar veðr-
‘áttan var upp á það versta.
Þarna var efnt til nýrra
kynna og hvers nýs dags var
beðið með eftirvæntingu,
en kannski hefur laugar-
störf, og svo höfum við skemmti
kvöld þar sem nágrannaskátum
er oft boðið auk þess sem við
förum í sameiginlegar útilegur
með þeim“.
En hafið þið námskeið fyrir
skáta?
„Ja, við höfum árlega nám-
skeið í hjálp í viðlögum, og svo
höfum við verið með ljós-
myndanámskeið“.
Eru margir skátar á ísafirði?
„um 200“.
Starfið þið nokkuð fyrir al-
menning? „Já, við höfum hjálp-
arsveit sem ávallt er til taks ef
leita þarf að fólki, ef slys verða,
eða eitthvað alvarlegt kallar
að“.
leiki, semjum jafnvel stutta
leikþætti, eins og t. d. sl. vetur,
þá fékk hvert hverfi ákv. verk-
efni. Mitt hverfi fékk t. d. „50
skátaár“ og unnum við skraut-
sýningu úr efninu“.
Þið verðið þá að hafa hug-
myndafiug og vera ráðagóð.
Já, enda miðar allt skátastarf
ið að því aö gera okkur hæf til
að ráða við þau verkefni sem
lenda í okkar hlut“.
Hvað finnst þér skemmtileg-
ast í skátalífinu?
„Útilegur.og varðeldar“.
En hvað um heppnina? „Það
voru mánaðarleg verkefni og
þrautir sem við urðum að
leysa“.
En spillti ekki veðrið ánægj-
unni?
„Við lærum að búa okkur
í ferðalög".
Kostar ekki svona mót og
skátastarf yfirleitt mikið?
„Jú, en það borgar sig samt,
auk þess eru svo margir sem
eru fúsir að veita okkur lið þeg-
ar þörf gerist“.
Og nú líður á kvöldið, við
verðum að kveðja og þökkum
Hauk og Valgerði fyrir samtal-
ið, en þegar þau eru farin að
hljóma í huga okkar þessar sí-
gildu skátasetningar „Eitt sinn
skáti, ávallt skáti“ og „Vertu
viðbúinn". Og við erum þess
fulvissir að hver sá sem gerist
skáti og starfar af alúð og
alvöru í sínum skátaflokki eða
félagi getur tæpast valið betri
leið til sinna tómstundaiðkana.
H. S.
dagsins 4. ágúst verið beð-
ið með hvað mestri eftir-
væntingu, því að þá var
komið að úrslitum í keppni
um beztu skátaflokkana á
Islandi, sem BÍS efndi tiL
Keppnin var fólgin í ýmsum
þrautum og til þess ætluð að
efla skátastarf og gera skátana
hæfari og betur undir það búna
að sinna áhugamálum sínum og
skátastarfinu í heild.
Loks rann stundin upp, úrslit-
in voru gerð kunn og skátarnir
glöddust með félögum sínum
sem hrepptu þennan heiður. Við
snerum okkur til foringja þess-
ara flokka til að fá nánari
fréttir af þessu.
Fulltrúi stúlknaflokksins er
Valgerður Jónsdóttir 16 ára, en
piltanna Haukur Sigurðsson 14
ára, og þau eru ekta skátar og
geisla af áhuga þegar skátastarf
er nefnt.
Og við spyrjum Valgerði:
hvenær gerðist þú skáti?
„Ég kynntist skátastarfi 1957
þegar mót-ið var í Botnsdal og
gekk í kvenskátafél. Rvk. næsta
haust“.
En Haukur? „Ég var hrifinn af
öllu sem ég sá til skáta heima
ó ísafirði og þegar ég var 11 ára
gerðist ég skáti, fyrst ylfingur
og síðar í Einherjum".
Og hvernig eyða skátar tóm
stundum sínum?
„Sem skátar" svara þau bæði
og finnst sýnilega ekki gáfulega
spurt, en við innum nánar eftir
þessu og fáum að vita að skáta-
flokkarnir halda vikulega fundi
og vinna sín skátastörf, læra
marga gagnlega hluti, taka
skátapróf ýmiskonar, fara i
leiki og syngja. En fyrir góða
skáka er þetta ekki nóg, þeir
fara í gönguferðir og iðka gjarn
an náttúruskoðun, fara í útileg-
ur í skátaskála, leiki, skíðaferð-
ir og fleira, að ógleymdum varð
eldunum sem alltaf hafa sína
töfra.
Og nú biðjum við Hauk að
segja okkur frá ísfirzku skáta-
starfi.
„Það er eins og hjá öðrum
skátum, við höfum skátaheimili
þar sem eru salur og flokksher-
bergi og þar fer aðalstarfið
fram. Fyrir utan venjuleg
flokksstörf, þá höfum við heim-
ilið opið á hverju kvöldi og þá
.geta skátar unað þar við töfl
©g spil og ýmiskonar tómstunda
V algerður, hvernig er þetta
hér í Reykjavík?
„Skátaflokkarnir starfa á
sama hátt hér, læra, taka skáta-
próf, fara í leiki og syngja. Svo
höfum við skátaheimilið opið
fyrir tómstundir skáta og þá
geta þeir spilað og teflt o. fl.
Þar er- líka setustofa fyrir þá
skáta sem eru orðnir 16 ára. Svo
eru haldin námskeið í hjálp í
viðlögum annað hvert ár, auk
þess hefur Kvenskátafél. Rvk.
bazar og þá eru nokkur vinnu-
kvöld, en við reynum að búa
til munina sjálfar, aðallega úr
basti og tágum. Svo er árshátíð-
in í febrúar og þá æfum við
Og þið eruð flokksforingjar?
„Já, við vorum það meðan
keppnin stóð yfir“.
Og minnisstæðast úr skáta-
lífinu?
„Úrslitin í keppninni1* svara
bæði í einu.
„Við urðum svo glöð, þetta
kom svo á óvart“.
En mótið í heild?
„Mjög skemmtilegt, þar eign-
uðumst við nýja vini í öðrum
landshlutum og jáfnvel í öðrum
löndum og margir skátaflokkar
hafa tekið upp bréfasambönd
sín á milli og þá eru brlfin auð-
vitað opnuð og lesin á flokks-
fundunum“.
MEÐ EIGIN HÖNDUM
Leðuriðja
r
r>& *&***<& *m
og f* A* sr**r, /AW a* itAV*
&& V#****t*f t*ii SíftSfVÁf, JVfitm
nHS*fST*M Jk
<f», tMs SfKk SSHSirtJtfft*,
. uvntfj, s.rrt w* 9* awí r
SUfynsrt rx* ******
w *&?<*** vtnr* &&
euryro.r su***m>* / og »r*jv*v*
rst* ****** fxiM ***** r/t.
vm ** mm *.*#m srmm *m rt*.
rtttr ***** m**m * mtt.
***** ****** *i (írw» A*S <N
&>átif* rtr* **» Ti,**é é A**> m* Tti
Ársm MAf&rtm stx'ttr* **A*m*M*~
i*r} *a í.&as mr&<* vrsrttM mmtt
r**> a aosft* r*t*VA** vst* (r*
#<#* <30 utrort ***> mmt* artmu&t
M *vj>M**v*r sr******* av* MÁrrstsr
rum 5* ftforu TstStuur* '4 ***»
(ATutssm t-rvAte)
ru . *e> rt****** s**4>, * it*stt>o. ff* AforA
tH.vA.vr. t*f ******* *** ftt*r* **to
ú** *<&* A'it&m- rnuMtsutf, t#v>’
tf*r mrr* *» m- «*> stmm /
mtummum m »w*n*s* itmtm
rnrtuu, sm m *uu ********** mtrru*
*t f*4w*r*w.
v*m»r * vu**> *>*.** sm*** m stmtm
Mifi itAgtVMA .
g*mm #* r simrtfur r*sut m. *t»
rgftrm /*m, (cmrnsa*. m
v*#*# r*t ** frmsamuff.
iM
■'i/v.
••••
ívÁSiíiíS.ý
iáwtójíj’í
26. tölublað 1962
LESBÖK MORGUNBLAÐSINS 7