Lesbók Morgunblaðsins - 23.02.1964, Side 4
STAÐNÆMAST OG MÆT-
Þessi tvö atriði geimflugs-
ins — að staðnæmast
og mætast — getur geimfarinn
framkvæmt með sáralitlum
áhöldum, og næstum engum. —
Þessi uppgötvun er árangurinn
af þriggja mánaða tilraunum
með gervitæki í geimferðadeild
Boeing í Seattle. Tilraunimar
hafa einnig gefið til kynna, að
sáralítið eldsneyti þarf til að
leggja geimfari.
Gervitsekið hjá Boeing er stór
verksmiðju-loíthegri, sem hefur var-
ið garður að „geimfari“, og klefi, sem
hengdur er upp þannig, að hann get-
ur hreyfzt í allra áttir. Geiimfarinn,
sem situr í þessum klefa, hefur
stjórn á veltingi hans og öðrum
hreyfingum með loftgusum, meðan
hann kemur honum í þær stellingar,
að hægt sé að mæta öðru fari og
tengja við það. Þetta far hangir í
strengjum í lofthegranum og er síð-
an fært að klefa flugmannsins en
stefnu og hraða stjómað af stýri-
tækjum þess.
Stjórntæki flugmannsins eru tengd
hegranum með tilsvarandi tækjum,
sem eftirlíkja rakettuhreyfla, sem
haga sér eftir hreyfingum stjórn-
tækjanna. Sjálf tengingin er fram-
kvæmd með gúmhring sem festir
geimförin saman um leið og þau
stinga saman nefjum.
ar ar eð flugmaðurinn getur
hreyft bæði loftförin í þrjár áttir —-
upp og niður. til hliðar og fram og
aftur — hefur hann vald á sex
hreyfingum og getur eftirlikt ná-
kvæmlega, er tvö geimföir mætast.
Tilraunir hafa sýnt, að þegar flug-
Gervitæki Boeing í notkun. Samskonar tilraunir eru
geimferðastofnunum í Ameríku.
gerðar
fleiri
ASTI
maðurinn gat þannig hreyft far sitt
í þrjár áttir, misheppnaðist aðeins
ein af 76 lendingartilraunum. Með
tveggja átta stýringu misheppnuð-
ust 8 af 50, en með einnar áttar, 5
af 18.
Tilraunin til að mætast hófst með
tveim geimförum á 80 feta færi. —
Lendingartíminn var frá 57 sekúnd-
um upp í tæpar 7 mínútur. Loka-
hraðinn var frá O upp í um 1 fet á
sekúndu. Útreikningar byggðir á
þessum tilraunum sýna, að 10.000
punda geimíar, með lendingar-
rakettu, sém gefur 350 punda þrýst-
ing, mundi þurfa um 3 pund af elds-
neyti, síðustu 80 fetin, áður en mætzt
er.
Þessar tölur frá Boeing voru byggð
ar á 250 gervilendingum, sem fram-
kvæmdar voru af þremur flugmönn-
um. Þegar förin tvö mættust hafði
enginn flugmaðurinn meiri stefnu-
skekkju á fari sínu en 5° til hliðar,
eða 10 á hæðina — en hvort tveggja
má telja þolanlega skekkju.
SVIPMYND
Framhald af bls. 2
höfðingi. Einkunnir hans eru: sómatil-
fir.ning, persónutöfrar, fullkomið sjálfs-
álit og stefnufesta. Hann er sagður laus
við persónulegan metnað. Þegar hann
var inntur eftir því í fyrra, hvort hann
hefði nokkurn tíma hugsað sér að
verða forsætisráðherra, hristi hann
hausinn og sagði: „Eftir að ég hafði
fengið mér allríflega af fyrstu port-
vínsflöskunni, sagði faðir minn við mig:
,.Sjáðu til, það sem allt veltur á í lifinu
er að vita hvenær maður á að hastta“.“
F erill Homes upp í embætti for-
sætisráðherra á sér enga hliðstæðu í
nútímanum. Af þeim 60 árum sem
hann hefur lifað hefur hann verið stjórn
málamaður í 27 ár, en hann sat aldrei
í ríkisstjórn fyrr en hann varð sam-
veldismáJaráðherra fyrir nokkrum ár-
um. Þó hann væri duglegur í því em-
bætti og væri jafnframt mjög góður
leiðtogi lávarðadeildarinnar, þekktu
fáir Bretar nafn hans, þegar hann varð
utanríkisráðherra eftir Selwyn Lloyd
árið 1960, og enn færri báru nafn hans
rétt fram. Mörgum þótti óhæfa að utan-
ríkisráðherrann skyldi sitja í lávarða-
deildinni, þar sem hann komst hjá hin-
um hörðu umræðum í neðri málstof-
unni. Einn gagnrýnandi kornst svo að
orði, að hér væri um að ræða „ófyrir-
4 LESBOK MORGUNBLAÐSINS
leitnustu skipun i embætti síðan Cali-
gula keisari gerði eftirlætishestinn sinn
að ráðgjafa.“
Það var talið víst, að Harold Mac-
millan, sem hafði í reyndinni sjálfur
verið utanríkisráðherra meðan Selwyn
I.loyd gegndi embættinu, hefði valið
litlausan já-mann í embættið. „Utan-
ríkisráðherrann er nú ekki annað en
leikbrúða,“ sagði Hugh Gaitskell. En
það kom brátt á daginn, að Home var
húsbóndi á sínu heimili. Hann vakti
furðu hinna langþjálfuðu undirmanna
sinna í ráðuneytinu vegna dugnaðar og
glöggskyggni ekki síður en vegna
lakónskrar kímnigáfu sinnar. Hann
sýndi Rússum þegar mun meiri festu
en Macmillan hafði gert. Samt hefur
Grómýkó slikar mætur á honum, að
hann rabbar við hann á ensku, þegar
þeir eru einir, og vinir hans í Moskvu
gáfu honum auknéfnið „Molotov Vest-
urvéldanna". Þingmenn Verkamanna-
fiokksins sökuðu hann um einstrengings
legan and-kommúnisma, en hann hefur
jafnan verið reiðubúinn til að ræða
málin, ef nokkur von var um lausn.
Hann orðar viðskipti sín við Rússa
þannig: „Ég íer og reyni að veiða fisk.
Ef ekki bítur á hjá þér, fer ég aftur
daginn eftir. Ef lítill fiskur bítur á,
reyni ég að veiða annan stærri.“
Kona Homes, sem er dóttir fyrr-
verandi skólastjóra hans í Eton (hún
man ekki eftir honum úr skólanum), fer
jafnan með manni sínum milli Lundúna,
Hirsel og Dorneywood, sem er sveita
setur þeirra í Buckinghamskíri. Þau
eiga þrjár uppkomnar dætur og einn
son, Dunglass lávarff, sem er 19 ára
gamall. Hann mun á sínum tíma erfa
titlana, sem faðir hans hefur afsalað
sér, nema hann ætli sér líka að verða
forsætisráðherra.
Coldstream hefur eins og fyrr segir
verið heimkynni Home-ættarinnar í átta
aldir, og hún hefur jafnan verið valda-
mikil þar. Öldum saman börðust bæði
Home-ættin og Douglas-ættin gegn
Englendingum. í leikriti Shakespeares,
„Hinrik fjórði“, segir Falstaff um 4.
jarlinn af Douglas: „... sá hinn spræki
Skoti Skotanna, Douglas-jarl, sem renn-
ir hesti sínum upp þverhníptar hlíðarn-
ar “ í orustunni við Flodden Field, sem
átti sér stað við túngarðinn á heimili
Homes í Coldstream, börðust 5. jarlinn
af Douglas og 3. lávarðurinn af Home
við Saxa. Home reyndi að fylkja liði
sínu gegn ensku bogmönnunum og hróp-
aði „A Home! A Home!“. En sagan
sfcgir að liðsmenn hans hafi misskilið
skipunina og rölt heimleiðis. Það var
þá sem ættin afréð að bægja frá frek-
ari óförum með þvi að bera ættarnafnið
fram „Hjúm“.
Tveir jarlar af Home sátu í fangels-
inu í Edinborgarkastala fyrir pólitísk af-
brot, og þrír aðrir voru hálshöggnir. Sir
Alec segir þá sögu, að emn uppfinnmg-
arsamur forfaðir hans hafi haft fyrir
venju að bjóða nágrönnunum til veizlu
og láta þá eta og drekka frá sér allt vit.
Síðan hófst hann handa um að ná öllum
eignum þeirra, og loks lét hann hengja
þá i tré fyrir utan svefnherbergisglugg-
ann sinn til að minna sig á „hættu óhófs-
ins“, eins og hann orðaði það. Eftirfar-
andi er ennfremur haft eftir Sir Alec:
„Englendingar segja, að við Skotar höf-
um tafið framsókn menningarinnar. Ef
við hefðum vitað hvernig menningin
yrði, hefðum við tafig hana miklu leng-
ur.“
Faðir Sir Alecs var glaðlyndur og
viðutan aðalsmaður, einn þeirra sem
reyndi t.d. að skjóta héra úr svefniher-
bergisglugganum. í fyrstu virtist sonur-
inn ætla að líkjast honum. Skólabræður
hans í Eton minnast þess að hann var
afbragðsgóður cricket-leikari og vann
frægan sigur í þeim leik í milliskóla-
keppni árið 1922. Hinn frægi ritlhöfund-
ur Cyril Connolly, sem var skólabróðir
hans, segir að hann hafi verið þokka-
fullur, um'burðarlvndur, syfjulegur pilt-
ur, sem hafi fengið alla hiluti fyrirhafnar
laust, jafnt velbóknun kp’mararmn v
dáun s'kólabræðranna. Á 18. öld hefði
hann orðið forsætisráðherra innan við
þrítugsaldur, segir Connolly.
En yngri bróðir Sir Alecs, leikskáldið
William DoUglaS-H"rne. sec'i’’ að unrUr
hinu blíða og geðfellda yfirborði sé
harður kjarni. og sá hlutur sé vís að
hann muni ekki hwja ættmönntim sín-
um meðan hann he'dur í stjórnartaum-
ana.
Eftir skólavistina í Eton ,þar sem
skólastjórinn kvað hann vera metnaðar-
lausasta ungling sem hann hefði fvrir-
hitt. fór hann til Oxford og laeðj stund
á sögu með lélegum árangri. Hann hafði
áhuga á „pÓhtfraVu þlóði“ æftn’-innnr
(lansafi hans í föðurætt var hinn kunni
forsætisráðherra og umbótamaður Grey
jarl), og árið 1931 var hann kosinn á
þing í hinu fátæka kolanámuhéraði
Soutih I.anark. Hann var samvirVucamur
þingmaður og segir að ástandið í Lan-
ankskíri hafi ri^rt sig allróttækan I
stj órnmálasikoðunum.
Á
.rið 1937 var Sir Alec einkaritari
Nevilles Chamberlains á binCTi. Það var
hann sem afhenti forsætisráðherranum
orðsendingu HÞIers um að efna til
Múnchen-ráðstefnunnar 1938. og hann
fvlgdi vfirboðara sínum á þá afdrifa-
ríku ráðstefnu. f stríðinu varð hann
maiór í hernum. en ettir noVVnrra rv-í-,.
aða herþiónustu fékk hann berkla í bak
ið og varð að liggja á sjúkrahúsi í tvö
ár. Þau urðu honum mikilsverð, þvi bá
tók hann til við að lesa fyrir alvöru,
einkum rit þeirra Mar-r T.enins. ti’ -ð
reyna að gera sér grein fyrir markmið-
um Rússa. Þe«ar hann kom af »n'’—«-
húsinu settist hann aftur á þing, og bað
er í frásögur fært, að hann andmælti
ChurohiH þegar hann hrósaði Stalí” *vr
ir loforðið um að virða landamæri Pól-
lands eftir styrjöldina. Það kom fljótlega
á daginn, að Home hafði á réttu að
standa. Hann hefur jafnan lagt áherzlu
á það. að menn verði að gera sér ljósa
þá staðreynd, að Rússar leggi annan
mælikvarða á hlutina og hafi önnur sið-
gæðissjónarmið en Vesturveldin. ef
komast eigi hjó endalausum erfiðleik-
um, misskilningi og vonbrigðum.
7. tölublað 1964