Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 18.10.1964, Qupperneq 8

Lesbók Morgunblaðsins - 18.10.1964, Qupperneq 8
Eftir Kjartan Sveinsson G uðmundur Kamban rithöf- •undur var fastagestur þjóðskjala- safnsins meginpart sumarsins 1928. Ég var einn við safnið þetta sum- ar, því Hannes var í skjalaheimt- um í Kaupmannahöfn Guðmimdur vann að sínum Skálholtsbókum. Þau snilldarrit spruttu sannarlega ekki upp úr steinunum. Hann las allar hinar þykku vísitazíubækur Brynjólfs biskups. staf fyrir staf, og urmul bréfa og skjala á hans öld. Handan við vegginn, í næsta herbergi, var kjaminn úr öllum heimildum, sem Brynjólf biskup varða, embætti hans og einkamál. í ritum Hannesar Þor- steinssonar, en þau hefðu Siðari hluti komið Kamban að mjög tak- mörkuðum notum. Hann varð sjálf ur að vinna sig inn í hljómfall ald arinnar, hversu mikla fyrirhöfn, sem það kostaði. Góðar bækur verða ekki skrifaðar með bleki, heldur blóði. — Ég minnist enn niðurlags í ritdóani, sem ritstjóri Eimreiðarinnar skrifaði um þetta ritverk ; „Svona ritar enginn nema sá, sem kynnzt hefir skáldgyðjunni og heyrt þytinn af vængjum henn- ar.“ Guðmundur Kamban var með glæsilegustu mönnum og næstum með ofurmannlegri fágun í allri framgöngu. Það var grátlegt fyrir okkar þjóð og okkar bókmenntir, Séra Einar Xhorlaciuis að þessi maður skyldi falla fyrir aldur fram. Séra Björn frá Dvergaisteini. Hann hafði um langan a'idur ver- ið prestur á Dvergasteini í Seyðisfirði, en var nú aftur fluttur til Reykjaivíkur og kom oift í safnið. Séra Björn var hægur cig settur í allri framgöngu, með brúnan hökutopp, sterklegur eins og skógarbjörn. Hann var fróður og lang- minnuigux og var mér oft hjálplegur að grafast fyrir rætur Vesur-íslend- inga, sem settaðir voru af Austfjörðum. Séra Björn var alla tíð svarinn ó- vinur ,3akkusar, og hefir vist ekki veitt af, að einhverjir reyndu að hamla á móti öllu hinu norsk-íslenzka brenni- víns-fióði á Austfjörðum fyrir og eftir aldamótin. Það mun hafa verið árið 1928, að ríkisstjórnin skipaði séra Björn til bess að rannsaka í lyifjabúðum allan þann sæg áfengislyfseðla, sem læknar höfðu gefið út fyrir þyrsta menn. Það var óhætt að trúa honum fyrir þessu starfi. Séra Björn kom til mín í safnið meðan á þessu stóð, kallaði mig á eintal, langt afsíðis og minntist á Hannes, en fyrir honum bar hann jafnan djúpa virðingu. Björn spurði: „BDvernig í ó- sköpunum getur staðið á því, að í þess- ari rannsókn minni hefi ég fundið þó nokkur recept gefin út á safnið, hrein- lega upp á spíra?“ Ég sagði við séra Björn: „Það sannast á yður, að skýzt þó skýrir séu“. „Nú, hvernig þá?“ „Skiljið þér ekki að hér í safninu höf- um við þúsundir skinnhandrita, og ef við ekki sótthreinsum þau úr spiritus, minnst einu sinn á ári, mundu þau ét- ast upp af maur og gerlum. Brennslu- spritt er forboðið að nota“. Séra Birni létti, skilningsljósið var runnið upp. „Það hlaut eitthvað að vera!“ Hann kvaddi mig og bað mig jafnframt að nefna þetta aldrei við Hannes. Það lof- orð hélt ég. En árið eftir frétti ég það, að einmitt þessi aðferð væri notuð, bæði í Kaupmanniaihöfn og víðar, til þess að sótthreinsa gömul skinnhandrit. Vinur minn, Björn P. Kalmann lög- maður, sonur Pá!s Ólafssonar skálds, kom eitt sinn til min og bað mig að finna ákveðið mál í safni Norður- og Austuramtsins. Við tókum líklegan böglgul af ölluim þessum sæg og opnuð um hann. Ánnað mál en það sem við Teituðum að, var efst, kæra til am.ts- ins frá séra Birni, að Páll Ólafsson, hefði meinað sér að húsvitja. Páll færði sér aftur til varnar og málsbóta, að prestur húsvitjaði „ókristilega“. Á sínum emibættisárum lenti séra • Björn alloft í málaferlum, en flest mál vann hann, og gæti það bent á réttan málstað. Stundum var hann hreinlega að verja hagsmuni þeirrar kirkju, sem honum hafði verið trúað fyrir. E ggert Briem fyrrum bóndi í Við ey, kom alloft til mín í safnið. Hann hafði jafnan hug á fornum fróðleik. Eggert var búinn góðri greind, svo sem hann átti kyn til, og jafnan var mikil reisn yfir honum. Eftirfarandi frásöign hefi ég frá fyrstu hendi. Það var sumarið 1907, að Friðrik konungur VIII. sótti ísland heim. í Séra Einar Jónsson föruneyti konungs voru yfir 30 danskir þingmenn, auk danskra fjármálamanna. Eggert, sem þá bjó í Viðey, var um þetta leyti staddur í Reykjavík. Hann frétti á skotspónum, að þetta fylgdar- lið konungs ætlaði um kvöldið út í eyjuna. Efalítið mun sú för hafa verið farin í sambandi við stofnun Milljóna- félagsins, sem svo var nefnt, en það var þá að komast á laggirnar og hafði bæki stöðvar í Viðey. En þingmannaskarinn skoða um leið hið sögufræga klaustur- ftjartan Sveinsson og höfðingjasetur oig hina dansk byggðu Viðeyjars'tofu og kirkju. En í ö:lum ærslum konungsmóttökunnar mun hafa láðst að gera Eiggert og konu hans við- vart um þessa óvæntu heimsókn. Eggert brá snöggt við, fór í Thoms- ens Magasin og tók út dýrindistegundir af víni fyrir 400 krónur, sem var mikið fé í þá daiga, leigði sér lítinn vélbát, kom birgðunum á land og flutti þær heim í bæ Um kvöldið kom hópur manna rölt- \ andi heim í Viðeyjarhlað. Eggert kom út prúðbúinn, leit undrandi yfir gestahóp- inn og bauð öllum að ganga í hús sín. Heimsóknin stóð lengur en til hafði ver ið ætlazt Þarna var slegið upp dýrindis veizlu. Ekkert hefir hinuim dönsku gestum þótt eðlilegra en að íslenzkur herragarður ætti sinn vínkjallara. Eggert gat horft ánægjulega á eftir hinni góðglöðu hersingu, þegar hún sigldi til baka út Viðeyjarsund. Virð- inigu hins forna höfuðbóls hafði verið haldið í heiðri. Enga greiðslu fékk Eggert fyrir alla þessa risnu við gesti landsins og fór heldur ekki fram á hana. Þessi reikn- ing.ur er enn til. Þegar Thomsens Maga sin var lagt niður, voru allar höfuðbæk- ur féagsins, sem fylltu nær 40 hillur, gefnar þj'óðskjalasafni. Fyrir fáum ár- um voru þær, ásamt þrem bílförmum af öðrum verzlunarbókum víðsvegar að af landinu, fluttar suður að Bessastöð- mun hafa viljað nota tæikifærið að um og komið fyrir uppi á kirkjulofti. Öfdungur kemur í heimsóki:. Það var miðsumars árið 7931, að til mín kom í safnið hár og virðulegur gamall maður með mikið hvítt skegg. Hann hafði um langan ald ir búið suð- ur á Vatnsleys'Uströnd. Ha m bað mig að gluiggr fyx-ir sig í kirkjueck Kálfa- tjarnar. Það var aldamótaá :;ð að bróð. ir hans, kvongaður maður.. búandi x Miðhúsum, fertugur að aldri og hraust- menni, var að huga að kind'im í hraun • breiðunni upp af Vatnsleys ’s.rönd, sem hefnd er Strandarheiði, en rún er full af háskalegum gjám, sem enjó festir oft yfir. Maðurinn hvarf eins og jörðin hefði gleypt hann, en það \ar einmitt það, sem hún hafði gert. Þótt múgur manns leitaði dauðaleit dögum saman, kom allt fyrir ekki. Rúm 30 ár liðu. Menn vcru á ferð með fé á þessum slóðum. Kind hrapaði í ókleifa gjá, svo síga varð crtir hennL Þarna á botni gjárinnar bljsu við bem hin.s horfna manns, svo og broddstaf. ur hans, lærlaggurinn var brotinn. ÞaS var ljóst, að þetta höfðu orðið hörð örlög. Það er næsta einkennileg úlviljun, aS maðurinn hvarf á sólstöðum ó vetri, en fannst á sólstöðum á sumri svo ekki skeikar einum degi. Beinin \oru síðan jarðsett að Kálfatjörn við fjölimenni. Framhald á bls 12 8 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 32. tbl. 1964

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.