Lesbók Morgunblaðsins - 17.07.1966, Blaðsíða 11

Lesbók Morgunblaðsins - 17.07.1966, Blaðsíða 11
Jóhann Hannesson: ÞANKARUNIR SKEPSIS ‘lefir'st sú hugarafstaða, sem oft er kölluð efa- hyggja (eða efunarhyggja) á voru máli. Skeptiker er efa- semdamaður nefndur. Meðal grískra og rómverskra lærdóms- manna til íorna var efahyggjan kunn, og gat tekið á sig sjúklegar myndir er líða tók á tímaskeið Hellenismans. Af- stöðuna er emnig að finna meðal Indverja og Kínverja, all- oft hjá mönnum, sem hafna veröldinni. Heyra má vor á meðal menn, sem segjast vera efasemda- menn. Nánari kynning leiðir þó í ljós að ýmsir þeirra hafa hvorki nennt, að hugsa né efast um það, sem áslæða er til að vefengja. Vera má að þeir sömu menn trúi líkt og nýju neti ýmsum furðulegum firrum og fordómum, svo sem taum- lausu skrumi um síðustu kvikmynd eða nýjustu „stjörnu“. Menn láta umhverfið teyma sig líkt og teymdar eru tamdar skepnur, og þeir eru engir efasemdamenn, heldur þrælar van- ans og hávaðamannanna í kringum þá sjálfa. Vera má að sá, sem þykist efast, sé aðeins leiðitamur og grunnhygginn letingi, breiði yfir sig efasemdahjúp, líkt og gæruskinn, en hafi bjargfastan átrúnað á alls konar hégóma, ef honum er aðeins þyriað nógu hátt og hann kemst í tízku. Efahyggja er ekki einfalt mál, heldur flókið, og orðið skepsis hefir margar merkingar, sem alls ekki verða ljósar þótt fundið sé orð til að þýða það. Það er ekki síður þörf að greina hugtakið í ljósi hugsjónasögunnar, og greina skyld hugtök frá því sjálfu. Nauðsynlegt er að gera sér ljóst að afneitun er ekki sama sem efi eða efahyggja. Guðsafneitun (atheismus) eða heims- afneitun (akosmismus) eða sálarafneitun (anatta, anatta- vada) þýða að aistaða hefir verið tekin. Sú þrefalda afneit- un, sem að ofan er greind, þýðir ekki af afneitarinn efist, heldur hefir hann það fyrir satt að hvorki sé til Guð, heimur né sál. Maður sem kann að beita skepsis, efahyggju, í þekkingar- fræðinni, þarf hvorki að vera trúleysingi né guðleysingi. Sá sem notar efahyggju í verðgildafræðinni, kann vel að vera trúaður lærisvcmn Jesú Krists. „Það sem var mér ávinn- ingur, hef ég sakir Krists talið tjón!“ segir Páll postuli. Á leiðinni frá gömlum verðgildum að nýjum hefir einhvers staðar orðið til róttækur efi um þann gamla „ávinning“, sem umbreyttist í tjón þegar ný verðgildi voru fundin, en þá var skeið efasemdanna á enda. Jesús neitar því ekki afdráttar- laust að auðugur maður kunni að komast inn í Guðs ríki, en hann segir: Hversu torvelt ........! Margir höfundar helgra rita draga í efa gildi hins gamla heims, sem þeir vita að hlýtur að tortímast, en þeir neita ekki tilveru hans né mætti til að þrælbinda menn. I heimspekinni snýst skepsis, efahyggjan, um gildi þeirrar þekkingar, sem verður á vegi manna, og um takmörk þekk- ingarinnar. Að hér er ekki um fánýt heilabrot að ræða, held- ur nærtæk mál, má finna af eftirfarandi spurningum: Verð- ur raunverulegur sannleikur fundinn? Er það rétt sem oss er kennt og það sem í blöðunum stendur? Er það rétt að vér séum fimmta tekjuhæsta þjóð veraldar pr. einstakling? Höfum vér veitt lár, Flóttamannasjóði Evrópu, eða höfum vér þegið lán úr þeim sjóði? Hvort gerðu menn að klappa, æpa, blístra eða þegja iþegar slitið var síðustu þjóðhátíð og sungið: „ísland ögrum skorið"? Þessar spurningar eru „skeptiskar“ að því leyti að í þeim liggur að spyrjandinn sé ekki viss urn svörin, en vilji þó láta sér segjast ef honum er sagt rétt frá. Sumum er auð- svarað, við öðrum eru til fleiri rétt svör en eitt, aðrar eiga sér aðeins eitt rétt svar. Það hefir vcrið talin ill íþrótt að kenna æskulýðnum að efast, og í vissum samböndum er sannlega svo. En miklu verra er þó að kenna honum að afneita (t.d. þekkingu, verð- gildum, normum) án þess að hann læri að „efast um ef- ann“ og efast um afneitunina, því það er vissulega ástæða til að efast um áróðurinn fyrir mörgu því, sem nú er haldið að mönnum, gömlum og ungum. Einn liður í kiassiskri skepsis, sennilega sá verðmætasti, nefnist epokhe, það er eins konar hlé til umhugsunar e'ða frestur til að skoöa sig um. Nauðsynlegt er að hugsa sig um, einkum þegar mál gerast flókin. Það er þvi líkt sem að stanza, þegar vér mætuvn ókunnum bíl á vandförnum vegi og get- um átt von á ýmsu. Ekki má þó lengi hika, því ekki mun dauðinn bíða, og við honum haggar enginn efi og engin þekking. Það gagn, sem hafa má af efanum, er að hreinsa borð þekkingarinnar, svo betur verði unnið að sannleiks- leitinni, einmg þeirri að prófa sjálfan sig. Nóg er um blekkj- andi raddir, sem vilja halda mönnum niðri í syfjulegi ánægju með eigið sjáif, en þar með stöðvast öll andleg framför; maður sekkur niður í múginn, samlagast skrílnum, líkt og skepna samiagast skepnuhjörð eða kvikindahópi. A erlendum bókamarkaði Hagfræði. Plenty and Want. A social hist- ory of diet in England from 1805 to the present day. John Burnett. Nelson 1966. 42/—. Höfundur bókarinnar las sagn- fræði við Cambridge-háskólann og efnahagssögu við hagfræði- deild háskólans í London. Hann hefur rannsakað sögu mataræðis undanfarin ár, og er þessi bók einn árangur þeirra rannsókna. Frá upphafi mannkynsins og fram um 1780—90 var meginhluti þeirrar orku, sem maðurinn bjó yfir og gat virkjað, notaður til matvælaöflunar. Matvælaöflun- in mótaði söguna, og gerir ennþá að mörgu leyti. Með iðnbylt- ingunni margfaldaðist fram- leiðslan í Evrópu og Bandaríkj- unum. Þetta hefur áhrif á mataræðið, það breytist um margt eftir að áhrifa iðnbylting- arinnar tekur að gæta, og þær breytingar eru tilefni þessarar bókar. Burnett rekur þessa sögu samkvæmt samtíma heimildum, og rannsóknir hans verða til þess að hrekja ýmsar síðari tíma staðhæfingar, svo sem að sveita- fólk hafi búið við betra mataræði á fyrri hluta 19. aldar heldur en borgarbúar og að fæð- an hafi verið hollari og bæti- efnaauðugri en nú. Einnig af- sannar hann þá skoðun að fæðu- skortur hafi verið meiri á Eng- landi um 1840 en næstu áratugi á undan. Höfundur lýsir mataræði ríkra og snauðra í borg og bæ síðustu 150 árin. Hann birtir matseðla frá þessu tíma- bili, dæmi úr matreiðslubókum og samanburð á því hve mikill hluti tekna lægristéttanna var notaður til matvælakaupa um 1830 og 1900. Höfundur hrekur einnig þá staðhæfingu, að mat- væli hafi lækkað það mikið i verði um 1870, vegna innflutn- ings á ódýru korni og keti, að lægristéttirnar hafi þá fyrst get- að aukið matarkaup sín. Þetta tel- ur höfundur fjarstæðu, slíkt hafi ekki gerzt fyrr en á 20. öld. Höf- undur heldur því fram, að verst fædda stétt Englands á 19. öld hafi verið verkafólk til sveita, og að þetta hafi ekki breytzt fyrr en eftir aldamótin siðustu. Þetta er mjög eftirtektarverS bók, mjög vel unnin, og hún er ekki aðeins heimild um mataræði, heldur verður hún heimild um kjör almennings og yfirstétta á Englandi í 150 ár. Heimilda er getið neðanmáls, nokkrar myndasíður fylgja og registur. Bókfræði. Encyclopaedia of Librarianship. Thomas Landau. Third Edition. Bowes & Bowes 1966. 84/—. Þetta er handbók fyrir bóka- verði og einnig þá, sem þurfa mikið að leita til bókasafna. Landau er ritstjóri, og hefur hann leitað til um hundrað fræðimanna um greinar í ritið. Þetta er þriðja útgáfa bókarinn- ar, aukin og endurbætt. Fyrsta útgáfan kom út 1958 og önnur 1961. Þessi bók spannar flest efni sem bókaverðir þurfa að hafa einhverja þekkingu á, og auk þess er nú gerð ýtarlegri grein fyrir prentun, pappír og skyld- um greinum en 1 fyrri útgáfum. Efni er raðað eftir stafrófsröð og greinar mjög misjafnar að lengd, sumar stuttar, skilgreiningar hugtaka og tækniorða, og aðrar nokkrar blaðsíður, sem varða þýðingarmikil efni. Bókin er rúmlega 500 blaðsíður, tvídálka í stóru broti. Bókmenntir. Brendan Behan’s Island. An Irish Sketch-book by Brendan Behan with Drawings by Paul Hogarth. Corgi Books 1965. 5/—. Behan dó ungur 1964. Líf hans var stormasamt, hann lifði tölu- verðan hluta æsku sinnar innan fangelsismúra. Utan þeirra lifði hann lífi, sem hneykslaði marga, og jafnframt setti hann saman bækur, sem tjáðu reynslu hans og jafnframt það þjóðfélag, sem hann óx upp í. Penninn lék í höndum hans og með leikritum sínum og minningarþáttum varð hann víðfrægur á skömmum tíma. Þessar írsku skissur eru litauðugar og lifandi og þeim fylgja myndir eftir Paul Hog- arth, sem ferðaðist með Behan eitt sumar um írland. Paul er afkomandi Williams Hogarths, málarans fræga. The Air-Conditioned Nightmare. Henry Miller. Panther Books 1965. 3/6. Miller setti þessa bók saman eftir að hann kom til Bandaríkj- anna frá Grikklandi í byrjun síðari heimsstyrj aldar. Bókin er einn reiðilestur frá upphafi til enda. Hann segist hafa komið til föðurlands síns eftir langa úti- vist og einsett sér að taka það eins og það var, með öllum kostum þessum og göllum. Hann bjóst við að hitta fyrir ferskt andrúmsloft, og einfalda og vin- gjarnlega þjóð, en varð heldur en ekki fyrir vonbrigðum. Ástandið var mun verra en hann hafði nokkru sinni getað gert sér hugmynd um og lýsinguna má lesa í þessari ágætlega skrif- uðu bók. — Viltu gera mér greiða, Siggi? — Auðvitað, Tom, ég geri allt fyrir góðan VIN. lítið sem ég verð að segja þér, Tom: Mér hefur aldrei geðjast að þér. — Geturðu lánað mér hundraðkall? — Það er dá- 17. júlí 1966 I.ESBÓK MORGUNBLAÐSINS 11

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.