Lesbók Morgunblaðsins - 05.03.1967, Blaðsíða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 05.03.1967, Blaðsíða 1
> Alexei N. Kosygin sér bjarta, rauða stjörnu komanúnism- ans uppi yfir turni í Kreml, út um glugga, sem er tdl vinstri við skrifborðið hans. Það var fyrir 47 árum, að hann fór að heiman, 15 ára gamall, til þess að berjast í rauða hemum fyrir málstað komm- únismans í Rússlandi. Faðir hans var fátækur rennismiður í verk- smiðju í St. Pétursborg. Nú hefur Kosygin undir stjórn sinni gjörvalla iönaðarvélina, sem upp hefur verið byggð á fimm áratugum kommún- istastjómar. Hann stingur skjölum með bráðlátustu vandamálum í Það gat hrært mann að horfa á yfir- mann stærsta skrifstofubákns veraldar vera að skoða reiknivélar og rafreikna, og allt þetta nýjabrum, sem menn telja, að geti flýtt fyrir skrifstofustörfum. Ef þessar vélar gætu bara eytt skrifstofu- hugarfarinu hjá fjöldanum, væri hlut- verk Leonids Brezhnevs auðvelt. Hann stakk nýjum vindlingi í snotra munn- stykkið sitt og saug að sér. 1 tvö ára hafa þessir tveir menn nú verið ábyrgir fyrir gangi kommúnis- mans í Sovétríkjunum, um þær mundir sem það þjóðfélag er um það bil að Ijúka fyrstu hálfu öldinni. En ríki þeirra er ríki ósamræmis og ósamkvæmni. Þetta er þjóðtfélag þar sem heyra má ummæli eins og þessi, sem nýkvæntur ungur maður frá Ukrainu sem var að Leonid I. Brezhnev snyrtilegar leðurtöskur, rauðar, grænar og brúnar; hann raðar verk- efnunum á borðinu, sem bíða morg- undagsins. Stundum tekur hann á móti gesti, áður en dagsverkinu lýk- ur — hann talar lágt og þarf engin blöð til þess að muna staðreyndir og tölur. Svo flýtir hann sér heim í embættisbústað sinn, sem er fáeinar húslengdir frá Kreml-múrunum. Dýrkun dpersónuleikans sem Brezhnev og Kosygin iðka EFTIR PETER GROSE Það var rigning um daginn, þegar Leonid I. Brezhnev, aðalritari kommún- istaflokksins, gekk um á alþjóðasýningu skrifstofutækja í Moskvu. Hann var í kryppluðum, bláum regnfrakka og með linan hatt, sem var orðinn aflagaður af sliti — áþekkur sjálfseignarbónda á landareign sinni, sem allir vita, að gæti verið velbúinn ef hann kærði sig um. setjast að í Moskvu viðhafði: „Stjórnin okkar leyfir okkur nú orðið að byggja íbúðirnar okkar sjálfir.“ Þetta var ekki sagt í háði, heldur aðeins af hreykni og ánægju. Sovétstjórnin er orðin örari á leyfi en áður, eða svo mætti halda. Hún er farin að hafa áhuga á þægind- um og vellíðan fólks. Einhver gæti nú sagt, að í kommúnistaríki ætti enginn að þurfa að byggja sjálfur íbúðina sina — og meira að segja má hitta kreddu- bundna menn, sem gætu vel haft efni á að ganga í byggingarfélag, neita því og segja, að það sé skylda ríkisins að öyggja yfir þegnana. En í augum ungs Ukrainubúa er kommúnisminn kominn á það stig, að einstaklingum er nú leyft að gera það sem einstaklingarnir utan kommúnistaríkjanna telja sjálfsagðan hlut. Brezhnev og Kosygin stjórna þjóðfé- iaginu þar sem tveir rithöfundar með mikið ímyndunarafl eru dæmdir sem glæpamenn, af því að þeir vildu skrifa eitthvað ofurlítið öðruvísi en stjórnin vildi láta þá skrifa. Þeirra er þjóðfélagið, sem tók forna þjóðstofna í Miðasíu og gerði úr þeim fátækralýð í framleiðnu iðnaðarþjóðfé- lagi, með miklu betri lífsafkomu en tíðkast í Miðausturlöndum, handan So- vétlandamæranna. Sovétþjóðfélagið hefur á rniðri þess- ari öld framleitt hagfræðinga sem hafa uppgötvað, að frjálst framboð og eftir- spurn gefur blessunarríkan árangur. Það hefur framleitt listamenn, sem geta speglað raunveruleikann á alveg sama hátt og Ijósmyndarar gera. Það kann að verða fyrsta þjóðfélagið, sem kemur manni til tunglsins. Og það kann að verða hið síðasta, sem getur borið fram almennilega heita máltíð fyrir gest í matsöluhúsi. F yrir þessu þjóðfélagi eru nú menn, sem gera sér vel ljósar þær mót- sagnir, er þeir standa andspænis; sem takast á við hvert vandamál um leið og því skýtur upp og reyna að finna ein- hvern meðalveg, sem oftast getur átt við. Þeirra aðferð er ekki að beita hörku. A pappírnum eru þeir hvorki að brjótast áfram inn í einhvern nýjan íkilning á kommúnismanum, né heldur leita sér næðis og þæginda í stalinsku fortíðinni — tímabili, þegar stjórnmála- ástandið kann að hafa verið ógott, en var að minnsta kosti hreint og beint, í framkvæmdinni fara þeir bil beggja. Stjórnmálaviðhorf Brezhnevs og Kos- ygins ber með sér þá trú þeirra, að Sovétþjóðfélagið þurfi að koma sér í fast form hið innra og að það sem því sé sízt þörf á nú, séu ofsafengnir stjórn- endur, sem geisist fram þegar minnst varir eins og Nikita S. Krúséff, sem að lokum virtist vart hafa stjórn á fram- komu sinni. Þeirra starf hefur ekki ver- ið foringjastarf, heldur stjórnun — yfirleitt hagkvæm — hinna keppandi afla í framvindu kommúnismanns frá byltingar-áratugunum yfir í síðari ald- arhelmii.ginn. En enn má segja, að eng- Framnald á bls. 6 Alexei N. Kosygin ♦ *

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.