Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 05.03.1967, Qupperneq 2

Lesbók Morgunblaðsins - 05.03.1967, Qupperneq 2
é 4 rsviPl LMVNDJ Eduardo Frei Montalva, for- seti Chile, hefur vakið at- hygli á alþjóðavettvangi fyrir ýmsra hluta sakir. Ber það til m.a., að hann er margræðari manngerð en flestir aðrir valdamenn í Suður-Ameríku. Stundum virðist hann jafnvel frem- ur vera rödd og meðvitund Suður- Ameríku allrar en leiðtogi eins lands. Frei forseti, eins og hann er nefndur jafnan, hefur mikinn áhuga á a Lþj óðamálum og nýtur sín vel á alþjóðlegum vettvangi. Fyrir skömmu komst hann þannig að orði í ræðu í heimalandi sínu: „Ahrif þess, sem er að gerast í Chile, eru almennt viðurkennd hvarvetna, og margir af fremstu leiðtogum heims- ins koma hingað til að láta í ljós einlægan áhuga og virðingu, og jafn- vel hrifningu á því, sem er að ger- ast hér“. Og þegar leiðtogar heims- ins hafa ekki tíma eða tækifæri til að koma til Chile telur forseti Chile ekki eftir sér að heimsækja þá, hvort sem það kynni að vera til London að heimsækja Elísabetu Englandsdrottningu, til Parísar til að sitja á rökstólum við de Gauile eða til Washington til að hitta John- son forseta. Síðasttalda heimsóknin hefur þó ekki enn orðið að veru- leika. Og þegar Frei forseta barst boð nýlega, um að heimsækja John- son forseta í Washington 1. og 2. febrúar s.l. gat hann ekki þegið boðið vegna stjórnmálaástandsins heima fyrir. Forseti Chile getur ferðast eins mikið og hann lystir um lönd Evrópu og setið óátalið á spjalli við þjóðarleiðtoga þar. En öðru máli gegnir um heimsókn til Bandaríkjanna í augum landsmanna hans. Þar er valdið og þaðan koma peningarnir. F rei er fæddur í Santiago 16. janúar 1911, sonur svissneskra hjóna, sem voru nýflutt frá Evrópu þegar hann fæddist. Brátt fluttist fjölskyldan suður á bóginn, til þorpsins Lontué, en þar varð faðir Freis yfirumsjónar- maður vínuppskerunnar. Skólinn, sem Frei gekk í þarna, var ekki nema ein stofa, en Frei skapaði sér þá þegar þá stöðu, sem hann hélt alla sína skólatíð, einnig í háskóla: Hann var efstur í sínum bekk. Þegar hann útskrifaðist lög- fræðingur úr Kaþólska háskóla Chile í Santiago var hann einnig efstur í sín- um hópi. í\ háskólaárum Freis kynntust margir þeirra manna, sem nú standa að Kristilega demókrataflokknum, þeim flokkl, sem fer meS völdin í Chile nú. Þegar á þessum árum þótti sjálfsagt að líta á Frei sem leiðtoga þessara ungu félaga. Þannig varð hann formaður í samtökum kaþólskrar æsku og hvata- maður að margvíslegri félagsstarfsemi. Arið 1935, þegar Frei var 24 ára, stofn- aði hann ásamt Bernardo Leighton, nú- verandi innanríkisráðherra, landssam- tök æskumanna innan konservatíva flokksins. Fjórum árum síðar voru þessi samtök gerð að Þjóðlega falang- ista-flokknum, sem að tuttugu árum liðnum, árið 1959, var breytt í núver- andi Kristilega demókrataflokkinn í Chile. IVÍargháttuð reynsla stjórnmála- mannsins varð snemma hlutskipti Freis og frá upphafi voru honum falin ábyrgðarmestu störf. Aðeins þrjátiu og fjögurra ára að aldri varð hann ráð- herra árið 1945. Árið 1949 varð hann þingmaður xyrir afskekkt kjördæmi, Coquimbo og Ataeama. Átta árum síðar varð- hann þingfulltrúi í Santiago, en þar vann hann einn sinn glæstasta kosn- ingasigur. Til eru gamlar myndir af Frei frá þessum Srum. Á sumum þess- ara mynda er hann léttklæddur, kannski aðeins á skyrtunni, stundum er hann í sundlaug og á sumum mynd- unum er hann í miklu fjölmenni. Blaða- maður hefur komizt þannig að orði um þessar myndir: „Það er athyglisvert við allar þessar myndir, að hann sker sig alls staðar úr. Andlit hans er það sem maður veitir fyrst athygli, djúpstæð augu hans horfa alltaf beint við mynda- vélinni, hann er næstum alltaf á miðri myndinni. Frei hefur aldrei horfið í hóp inn. Hann gerir það ekki heldur núna“. Auðmennirnir í Chile eru mjög ríkir og mjög íhaldssamir og fá- tæklingarnir þar eru bláfátækir. Þegar Chile var spönsk nýlenda áttu auðmenn landsins um það bil helming ræktanlegs lands og enn þann dag í dag eiga þeir eins stóran hluta landsins. Fátæklingarnir, mestizos, og verkamenn í verksmiðjunum lifa enn í sárri fátækt. Sagt er að fátækra- hverfin, sem teygja sig upp eftir hlíð- unum í Valparaíso séu með ömurleg- ustu fátækrahverfum, sem þekkjast, og fátæklingarnir eru fleiri en hinir, sem eru sæmilega bjargálna. Frelsishetja Chilemanna, Bernardo O’Higgins gerði tilraun til að leiðrétta þennan mismun fyrir hálfri annarri öld, en var ofur- liði borinn af þáverandi valdhöfum. Og enn þann dag í dag ber baráttan milli ríkra og fátækra sama svip og þá. Á árunum eftir 1920 komust sósíalistar og kommúnistar til nokkurra áhrifa í Chile og á næstu tuttugu ár- um fór fylgi þeirna vaxandi. Um þrettán ára skeið, frá 1938 til 1951 fóru þessir flokkar saman með völd í land- inu. Þá rofnaði samstarfið, er kommún- istar gerðu misheppnaða tilraun til að hrifsa öll völd í sínar hendur með ofbeldi. Ári síðar, eða 1952 var Carlos Ibánez hershöfðingi kjörinn forseti landsins. Hann gerði tilraun til að koma á samblandi af sósíalisma og fasima, er varð til þess eins að auka á óróleika í stjórnmálum landsins. Árið 1958 var svo íhaldsmaður, Jorge Alessandri, kjör- inn forseti með naumum meirihluta. A. næstu árum virtust kommúnistar og sósíalistar undir stjórn Dr. Salvador Allende vera á góðri leið með að ná vÖldum ' í landinu. Dr. Allende, sem er eðlisfræðingur að mennt, var formaður sósíalistaflokksins, en sjálfur sanntrú- aður Marxisti. Hann var í framboði við forsetakosningarnar 1958 og tapaði þá fyrir Alessandri með aðeins 33000 atkvæða mun. Á næstu þremur árum jókst fylgi kommúnista og sósíalista stórum, og var ekki annað sýnna en Allende myndi verða næsti forseti landsins. Ef það hefði gerzt, hefði Chile verið fyrsta landið á jörðinni, sem hefði kosið yfir sig kommúnistastjórn í frjálsum kosningum. V annig stóðu málin er Eduardo Frei og Kristilegi demókrataflokkurinn byrjuðu fyrir alvöru að láta að ssr kveða í stjórnmálum Chile. Árið 1961 unnu Kristilegir demókratar fyrsta um- talsverða kosningasigur sinn, hlutu 23 af 147 þingsætum í neðri deild þjóð- þingsins og 3 af 45 í öldungadeildinni. En þetta var nóg til að veita Frei fót- festu. Enda þótt flokkur hans væri ekki stór, var hann þó þriðji stærsti flokkur landsins og Frei hagnýtti sér aðstöðu sína til hins ýtrasta og beitti öllum þeim áróðri, er að haldi mátti koma. Þannig tók hann upp í stefnuskrá flokks síns ýmis atriði, sem bandalag kommúnista og sósíalista hafði haft sem baráttumál. Og á sumum sviðum boðuðu Kristilegir demókratar byltingu, en gerðu þó að skilyrði að hún færi frið- samlega fram. Ekki ber öllum saman um hvernig eigi að skilgreina Kristilega demókrattaflokkinn, en sumir hafa sagt, að hann sé miðja vegu milli viðurkennds Marxisma og frjálslynda kapítalisma. ér egar leið að kosningum árið 1964 var stjórnmálaástandið í Cihile mjög ctryggt og í mikilli óvissu. Almenningi var engan veginn lióst hvernig atkv"»ð- Framhald á bls. 13 Framkv.stJ.: Sigfns Jónsson. Ritstjórar: Sigurður Bjarnason trft Vluux Matthlas Johannessen. Eyjólíur Konráð Jónsson. Auglýsingar: Arm Garóar Kristinsson. Ritstjórn: Aðalstrætl 6. Simi 22480. Uteeiandi: H.t Arvakur Reykjavnc. 1 2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 5. marz 1967 «

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.