Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 05.03.1967, Qupperneq 4

Lesbók Morgunblaðsins - 05.03.1967, Qupperneq 4
m> i 1EVSJÍAVA r ‘ Wfy \ BAUDOUIM \ (Bd-N*kk) QUEENMAUD**'**5**'*39 _ LAND / MOLODEZHNAYA (U.SJ£.) BNDEfZbÝ /.AND ---7—J6ENERAL BEL6RAM0 Study of condc rays ieer*6s wPLATEAU STATION “ “* IProjectcd] >1065-66 POLEOr .-I' •INACCESSABILITY AMEMCAN > \ nighland (Aust.J 'j'W: SoutK ^ R>U^ AMUNDSEN-SCOTT "WP1 A NTÁ^ C.TICÁ _BTRD STATION >^h^4Ö^.£'mv *. fe»VreMc/e« MAQJK j-.-tS-sátí ar«ö ^ |%y lahd ?í^’j-iifcjuÆu^ r» VOSTOK. ----------------------- /l/.£££) Main Soviet base Study ól radio phenomena Study of prímitive worms ior role in evolution DUMONT D'URVILLE’ WF? WMW lý.J\s skautsrannsóknir Hlustunarklefinn (til vinstri) og Suðurskautssvæðið, sem verið er að rann- saka. frá því, að þeir geti heyrt hávaðann af selnum, sem nálgast smámsaman og skýrist — blístur, suð, skræki og kvak. Þegar hljóðin hafa náð há- marki, kemur dýrið í ijós og gægist gegnum rúðuna á þennan óboðna gest og syndir síðan burt. Stundum nota selirnir gatið, sem sprengt hefur verið í ísinn vegna á- haldsins, til að koma upp um og anda. Keðja af vatnshljóðnemum, sem nær niður undir botn í McMurdo- sundinu, 1000 fetum neðar, er notuð til þess að komast að því, hvort sel- irnir fari að eins og leðurblökurnar, noti hijóðmerki til að finna fæðuna á þessu koldimma dýpi. En vitað er, að þeir taki til sín fæðuna nærri botni. En þó er alveg sérstaklega dular- fullt, hvernig þeir finna vakirnar til að anda, eftir langt sund. Þessi at- Tiði er nú verið að rannsaka fyrir at- beina visindafélaga í Bandariikjun- um. Ferðast þær eftir sólinni? Aðrar rannsóknir beinast að þeim grun, að Adelie-mörgæsirnar ferðist eftir sólinnL Á Suðurskautslandinu er sólin mjög lágt á lofti á sumrin og fer eftir sjóndeildarhringnum lík- ast úrvisL Það er hald manna, að fuglarnir hafi einhverjar aðferðir til að skynja samband milli tímans og sólarstefnunnar, til þess að rata eft- ir. Annað merkilegt atriði í rannsókn- um Bandarikj aananna er að koma upp nýrri strandstöð á An/vers-eyjunni úti fyrir Suðurskautsskaganum. Hún á að heita eftir Palmer, sæfaranum unga, sem taltnn er hafa verið fyrsti maður, sem leit Suðurskautslandið augum. Þessi stöð verður hin fyrsta, sem Bandaríkj amenn reisa á því svæði meginlandsins, síðan 1948. Þrjú lönd gera tilkall til svæðisins: Ástralía, Bretland og Chile. Bandaríkjamenn munu með leyfi eigendamna nota brezkan kofa sem húsnæði fyrir rann- sóknarstofur sínar. Framhald á bls. 13. eru til þess að rata á fæðu eða hafa samband innbyrðis, er ekki vitað. Kafaraklefinn er hluti af áhaldi, sem er að byg-gingu likast stangar- dufli. Lóð neðan í áhaldinu heldur því í uppréttri stellingu. Efsti hlut- inn stendur upp um gat á ísnum og gefur þannig samband við hlustunar- •klefann. Hátalarar eru notaðir. Vatnshljóðnemar niðri í sjónum eru í sambandi við hátalara í hlust- unarklefanum, sem er nægilega langt fyrir neðan fimm feta þykkan flóaísinn til þess að útsýni sé til allra hliða. Athuganamennirnir skýra Tcn mcn have bcgun a 5 year, 5,000 mile journcy across the continent. The first ycar's trek is shown by a solid line. Search for geologic links with Andes orTranaantarctic Mountains Heim Atta Bandaríkjamenn, einn Belgi og einn Norðmaður eru að brjótast áfram, íhægt og hægt, inn á stærsta ó- Iþekkta svæði heirns. Þeir fara á þremur beltafarartækjum, sem kölluð eru Snjólkettir, og lögðu upp frá Suðurpólnum 4. desem- ber 1964. Þar sem ekki er hægt að ferðast þarna nema um sum- artíma Suðurskautslandsins, verða liðin 5 ár áður en farar- tækin hafa lagt að baki hinn 5000 mílna langa krákustíg til strand- arinnar, sem sýndur er á með- fylgjandi korti. Þessi ferð er þáttur í hinum stór- felldu framkvæmdum á Suðurskauts- svæðinu yfir suðurskautssumarið, en það fellur saman við vetrartímann á norðurhveli jarðar. Nú þegar Banda- ríkin hefja annan áratuginn við ó- slitna starfsemi á Suðurskautsland- inu, eru í gangi um fimmtíu rann- sóknarleiðangrar, sem kosta Vísinda- stofnun Bandarikjanna um sjö millj. dala. Auk þess er þama starfað á veg- um Sovétríkjanna og annarra þátt- takenda að sameiginlegum rannsókn um á Suðurmeginlandinu. Þessar rannsóknir beinast að jafn fjarskyld- um hlutum sem ferðum mörgæsanna, sela-„máli“ og einu einkennilegu útvarpsfyrirbæri sem hefur verið kallað „dögunarkórinn“. í gleymsku yfir veturinn. Verkefni beltafarartækjanna fyrsta sumarið var að fara yfir það svæði Suðurmeginlandsins, sem ef lengst fc'á sjó — og kallað er stundum „For- boðni póllinn". Þar voru farartækin grafin niður, en mennirnir fluttir fiugleiðis burt. í fyrrasumar var svo farartækjun- um ekið til annarrar stöðvar, sem sett var upp með aðstoð flugvéla á áibreiðunni miklu, hérumbil á miðju fl?.inu órannsakaða svæði. En það svæði er á stærð við öll Bandaríkin vestan Klettafjalla. Þriðja sumrinu verður varið til styttri ferða út frá þessari stöð, sem verður starfrækt árið um kring. Og svo tekur það tvö sumur í viðbót að ljúka ferðinni til belgísk-hollenzka ar rannsóknarstöðvar við ströndina. Það er mjög ólíklegt, að rannsókn- armennirnir finni nokkurn nýjan fjallgarð á leið sinni, þar eð þeir ferðast yfir ísbreiðu, sem er meira en tvær mílur á þykkt. En með sj?rengingum og bergmálsmælingum nunu þeir geta fengið fyrsta upp- ’ýsingar um þetta grafna landslag. Sá þverskurður af landslaginu, sem þannig fæst, ætti að mynda heild með hinum, sem Sovétrikin standa að og nær frá Mirny, aðalstöð Sovétríkjanna, og að „Forboðna póln- um“. E£ til vill er nýstárlegasta atriðið í sameináðri áætlun Bandarikjanna notkun kafaraklefa, eins og sýndur er á myndinni, til þess að hlusta á „mál“ selanna. Þessar rannsóknir beinast fyrst og fremst að Weddell-selunum, sem standa öðrum selategundum framar að fjölbeytni, styrkleika og tíðleik hljóða, sem þeir gefa frá sér. Wedd- el-selurinn er mjög stór, allt að 11 fetum á lengd og 1300 pundurn að þyngd. Hann lifir við strendur Suð- urskauts-meginlandsins og andar með því að stinga hausnum upp um vakir á ísnum. Hvort þessi hljóð hans 4 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 5. marz 1967

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.