Lesbók Morgunblaðsins - 05.03.1967, Side 8
ÁRNI ÖLA:
Úr sögu Reykjavikur
Ingólfsbriinnur og Ingólfsnaust
Skúli fógeti segir í „Lýs-
ingu Gull'bringu- og Kjós-
atisýsiu“:
„Sunnan við bæinn Reykjavík er
lítið stöðuvatn, sem Reykjaví'kur-
tjörn nefnist. Úr henni fellur 1/ítill
lækur til sjávar miilii Reykjavíkur
og Arnarhóls. Auk þess hefir
Reykjavík gott, ósalt, vatns'ból, sem
nefnist Ingólfsibrunnur eftir fyrsta
landnámsmanninum á íslandi“.
Ekki verður nú séð hvaða heim-
ildir Skúli hefir haft fyrir því, að
brunnurinn væri kenndur við land-
námsmanninn. Sennilega hefir hann
farið þar eftir fornum munnmælum
og treyst þeim, þar sem ekki var
kunnugt að neinn Ingólfur hefði bú-
ið í Reykjavík annar en landnáms-
maðurinn.
Brunnur þessi er í Aðalstræti undir
gangstéttinni milli húsanna nr. 7 og nr.
9. Hann var aðalvatnsból Reykvíkinga
þangað til vatnsveitan kom. En nafni
sínu hafði hann þá glatað í daglegu
tali og gerðist það á dögum Fryden-
bergs bæjarfógeta, þegar dæla var sett
í brunninn. Var hann þá fyrst kallaður
Vatnspóstur, en eftir að Landsppent-
smiðjan var flutt í næsta hús fyrir
sunnan hann, var hann kallaður Prent-
smiðjupóstur. Sveinbjörn Hallgrimsson
stofnandi f>jóðólfs, segir í blaði sínu, að
bæjarbúar kalli dæluhólkinn „póst“ í
háði. En það' er ekki rétt, nafnið var
fengið frá Dönum og á þeirrar tíðar
reykvísku hét dæluhólkurinn „póstur“
og þegar vatni var dælt upp úr brunn-
inum, var það kallað „að pósta því upp“.
Og Prentsmiðjupóstur hét dælan meðan
hún var þarna. En þrátt fyrir það hefir
brunnurinn sjálfur heitið Ingólfsbrunn-
ur. Klemens Jónsson kallar hann alltaf
því nafni í Sögu Reykjavíkur og hann
segir ennfremur: „Þegar grafið var fyr-
ir gasæðum hér um árið, þá kom upp
mikil aska á lóð hússins nr. 12, og gæti
það bent á, að eldhúsið hafi verið í
norðurenda bæjarins (Víkurbæjar),
enda þaðan örstutt í vatnsbólið, sem
vafalaust hefir verið á sama stað
(prentsmiðjupósturinn) frá landnáms-
tíð“.
Ingólfsbrunnur var ekki eina ör-
nefnið sem kennt var við landnáms-
manninn. Niðri í Grófinni var naust
þeirra Víkurmánna og kallað IngóJfs-
naust. Þessi tvö nöfn, Ingólfsbrunnur
og Ingólfsnaust, benda bæði sterklega til
þess, að bær landnámsmannsins hafi
staðið þar sem vitað er að Víkurbær
stóð öldum saman, enda þarf ekki um
það að efast. En vegna þess, að alltaf
er gott að fá nýjar og nýjar ábendingar,
og gott er að festa þær í minni, þá er
rétt að fara hér um fleiri orðum.
Ingólfur var alinn upp á Fjölum í
Dalsfirði, og af þeim slóðum munu hafa
verið þeir frjálsbornir menn, sem fylgdu
honum hingað. En á Fjölum munu hafa
verið litlir landkostir á þeim árum,
þéttur skógur og stórvaxinn milli fjalls
og fjöru, og bændabýlin munu flest hafa
staðið í litlum ruðningum, eða rjóðrum
gerðum af mannahöndum. Lítið hefir
verið hægt að rækta þarna, og þó hefir
Hrífudalur, þar sem Ingólfur bjó, senni-
Húsið lengst til vinstri á myndinm, þar sem nú er Veiðarfæraverzlumn
Geysir, stendur þar sem áður var Igólfsnaust.
þar sem nú stendur sænska frystilhúsið.
Þessi vör var þröng skonsa, sem skarst
inn á miili hárra kletta og var kölluð
Krummaskuð. Það var nauðlendingar-
vör og til'heyrði Sölvhóli. — Næsta vör
fyrir vestan Sölvhólsvör var á sandinum
— beint þar niðri undan sem nú er
veiðarfæraverzlun O. Ellingsen“.
Sumir munu segja, að svo skammt sé
frá Arnarhóli vestur í Grófina, að lengd
sjávargötu skipti hér engu. Ekki munu
þó gamlir sjómenn fallast á það. Frá
Arnarhóli varð að fara yfir lækinn til
þess að komast vestur í Grófina, og
þótt lækurinn væri ekki neitt Stórfljót,
var hann aft illur yfirferðar og sá farar-
tálmi, er nægði til þess, að ekki var
sambærilegt fyrir Víkurmenn og Arnar-
hólsmenn að sækja sjó úr Grófinni.
Nú er það kunnugt, að norskir bænd-
ur gerðu fyrrum naust hjá lendingum
sínum og þótti kostur að þau væru sem
næst bæ. (Enn má sjá naust hjá Klepps-
nesi í Dalsfirði). Hvergi er þess getið,
að naust hafi verið við sjóinn í grennd
við Arnarhól, en í Grófinni var naust,
sem bar nafnið Ingólfsnaust um nær
900 ára skeið. Og í Grófinni hafði frá
öndverðu verið útræði Víkurmanna (og
seinna bændanna í Grjóta, Götuhúsum
og Hlíðarhúsum).
lega verið betri jörð en Kleppsnes (eða
Kleppunes), þar sem Hjörleifur fóst-
bróðir hans átti heima, því að í Hrífudal
hafa verið grónar eyrar meðfram ánni
og skógurinn ekki jafn nærgöngull. Þá
höfðu menn litlar nytjar skóganna aðrar
en þær, að úr þeim fengu þeir húsavið,
skipavið og eldsneyti, og í skógarjöðr-
um og skógarrjóðrum hafa verið hagar
fyrir búfé. En það er á öllu sýnt, að
þarna hafa bú manna orðið að styðjast
við annan bjargræðisveg en landbúnað,
og er þá ekki um annað en útgerð að
ræða.
- Allir bændur á þessum slóðum munu
hafa sótt sjó af kappi. Fiskur hefir þá
gengið ínn í alla firði, og í Egilssögu
et þess ge'tið að Skallagrímur „fór oft
um vetrúm í síldfiski með'iagnarskútu
og með honurn húskarlar margir“. En
þeir feðgar áttu heima í Fjörðum,
skammt norðan við Dalsfjörð, og má
ætla að atvinnuvegir hafi verið svipaðir
um alla Fjörðuna. íngólfur og menn
hans hafa því verið vanir sjósókn og
fiskveiðum, og þegar hirigað kom hafa
þeir orðið að treysta mjög á sjóinn.
Fyrir smábátaútgerð er nauðsyn-
legt að hafa góðan lendingarstað. Og
þegar þeir Ingólfur voru komnir til hins
fyrirheitna staðar, munu þeir skjótt
hafa farið að athuga hvar væri beztur
lendingarstaður. En um það þurftu þeir
ekki lengi að vera í óvissu. Einn staður
bar hér af öllum öðrum, og það var
Grófin. Hafi Ingólfur verið í nokkrum
vafa um hvar hann ætti að setja bæ
sinn, þá hefir Grófin ráðið þar úrslitum.
Það var ómetanlegt hagræði að því að
hafa svo gott uppsátur rétt við túnfót-
inn.
Þeir, sem halda því fram, að Ingólfur
muni hafa reist bæ sinn á Arnanhóli,
hafa tæplega athugað þetta. Hjá Arnar-
hóli var engin lending, þótt þar væri
löngu seinna gerðar varir, er aldrei
þóttu góðar. Um þær segir svo í „Land-
námi Ingólfs" (eftir frásögn Ólafs Jóns-
sonar fiskimatsmanns): „Sölvhólsvör
(áður Arnarhólsvör) var sunnan við
Skansinn, einriig kallaður Battaríið.
En auk þess var lítil vör austan við
Battaríið, vestanhallt við þar, sem riú
endar Ingólfsstræti, eða nánar til tekið
H ér fer allt að einu. Bezta lend-
ingin hér um slóðir var í Grófinni, og
bezta lendingin hefir auðvitað verið val-
in fyrst. Þarna hafa Víkurmenn útræði
sitt, og þarna er naust, sem heitir Ing-
ólfsnaust. Það er við endann á sjávar-
götu Víkurmanna, en heima undir bæn-
um er Ingólfsbrunnur. Þessi tvö örnefni
kallast á, og finnst mönnum ekki líklegt
að þau séu kennd við sama manninn,
landnámsmanninn, sem bæinn reisti
undir Grjótabrekkunni og hóf fyrstur
manna útræði í Grófinni?
Þess er víða getið, að fornmenn drógu
skip sín á land áður en vetur lagðist
að, og gerðu þar hróf að þeim. í Land-
námu segir að inn frá Brjánslæk sjái
enn skálatóft og hróf þeirra Hrafna-
Flóka. Hjá Þingeyrum í Húnavatnssýslu
hét Stígandahróf, kennt við skip Ingi-
mundar gamla. í Laxdælu segir, að þeg-
ar Höskuldur Dalakollsson kom úr sigi-
ingu, „lét hann setja upp skipið fyrir
innan Laxá og gera hróf að, og sér þar
enn tóftina, sem hann lét gera hrófið“.
Ingólfi hefir verið það enn nauðsynlegra
heldur en þeim, sem á eftir honum
komu, að gæta vel skips síns. Eflaust
hefir hann dregið það á land hið fyrsta
haust og gert hróf að. Og auðséð er, að
hvergi gat hann fundið betri stað fyrir
það heldur en í Grófinni. Það hefir
verið fyrsta mannvirkið, sem þar var
gert. Og þarf þá nokkurn að undra
þótt naustið í Grófinni væri kallað Ing-
ólfsnaust?
Nú er það kunnugt, að bændur létu
aldrei gott útræði ganga undan jörðum
sínum, og þess vegna fylgdi jörð sama
útræði öldum saman. Ekki þarf að fara
í neinar grafgötur um, að Víkurmenn
hafa frá upphafi tryggt sér útræði í
Grófinni, og þar helzt útræði þeirra
þangað til konungur gaf verksmiðjunum
Vík, eða um 878 ár (874—1752).
I ngólfsnaust stóð þar sem nú er
Veiðarfæraverzlunin Geysir. Þetta mun
upphaflega hafa verið allmikið hús og
veggir hlaðnir úr torfi og grjóti. En um
það leyti sem farið er að reisa verk-
smiðjurnar, er það orðið hrörlegt, nema
hvað veggir voru enn sæmilega stand-
andi. Niður að því lágu sjávargötur frá
Vík og Götuihúsum. En nú var farið að
reisa verksmiðjuhúsin þar sem gamli
Víkurbærinn hafði staðið og meðfram
sjávargötunni beggja megin.
Verzlunarhúsin stóðu þá enn úti I
Örfirisey. En árið 1779 er krambúðin
flutt þaðan til lands, og fannst þá enginn
heppilegri staður fyrir verzlunina held-
ui en í Grófinni. Þá varð að flytja allar
vörur í bátum milli skipa og lands, og
þess vegna var það mikill kostur fyrir
verzlunina að lending og uppsátur var
þar rétt fyrir framan. Þarna kom í ljós,
þegar verzlun hófst í Reykjavík, að
Grófin var enn bezti lendingarstaður-
inn, eins og hún hafði verið á land-
námstíð, og því sjálfsagt að reisa verzl-
unarhúsin þar.
Ingólfsnaust var nú rifið og kram-
búðin sett ofan á rústir þess. Þar fyrir
vestan voru svo reist geymsluhús verzl-
unarinnar (þar hafði verið sjóbúð frá
Grjóta), en sunnan við krambúðina var
reist íbúðarhús handa verzlunarstjóran-
um, og var þar haft sund á milli, þar
sem sjávargatan frá Götu'húsum var.
Þetta sund fékk seinna nafnið Fisoher-
sund.
Þegar verksmiðjurnar komu, lagðist
jörðin Vík niður sem bóndabýli og út-
gerð þar var með öllu lokið. Þá hafði
Vík ekki lengur þörf fyrir bátanaust
við sjóinn. Ingólfsnaust varð þá að víkja
fyrir verzluninni. En eftir varð sjávar-
gatan frá bænum Vík niður að naustinu,
og hún er enn til og heitir nú Aðal-
stræti. Þetta stræti er nákvæmlega jafn-
langt sjávargötunni frá Vík, það byrjar
á bæjarhlaðinu, sem var milli syðstu
húsanna og kirkjugarðsins, og nær þang-
að sem Ingólfsnaust var, en nú stendur
verzlunarhús Geysis.
Vilji menn nú atthuga þetta og minn-
ast þess jafnframt hve mikið landnáms-
menri áttu undir því að geta sótt sjó-
inn, þá mun það sýnast mjög eðlilegt,
að Ingólfur reisti bæ sinn undir Grjóta-
brekkunni, í stað þess að hafa hann á
Arnarhóli, þar sem ekkert útræði var
og ekkert vatnsból.
— Ingólfur bjó í Reykjavík, þar eru
enn öndvegissúlur hans í eldhúsi, segir
Landnáma. í Harðarsögu er bærinn líka
nefndur Reykjavík, og þá býr þar Þor-
kell máni. En í Kjalnesingasögu er talað
um Ingólf í Vík, og sú styttirig á nafninu
Reykjavík er notuð fram etftir öldum,
eða þá Vík á Seltjarnarnesi. — Önd-
vegissúlur Ingólfs eru enn í Reykjavík-
urbæ á 12. öld. Og svo er Ingólfsbrunn-
ur við sjávargötuna fram á þessa öld,
og Ingólfsnaust í Gróifinni fram á 18.
öld, vatnsbólið og útræðið. Allt er þetta
í nánum tengslum við Reykjavík, en
engan annan bæ.
8 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
5. marz 1967