Lesbók Morgunblaðsins - 05.03.1967, Síða 14

Lesbók Morgunblaðsins - 05.03.1967, Síða 14
Gamall kveöskapur um höfuðstaðinn Hugleiðingar Benedikts Gröndals Skömmu eftir aldamótin siðustu orti Benedikt Gröndal ættjarðarhvöt eftir kvöldgöngu í Reykjavik. Kvæðið kall- aði hann Kvöldvísu. Hér fara á eftir tvö fyrstu erindin af sjö, þar sem hann minnist á Reykjavík. Geir sá, sem hann nefnir í síðustu ljóðlínu seinna erindis, er Geir Zoega útvegsmaður og kaup- maður, hinn mikli athafnamaður, er setti svip sinn á Reykjavík um langan aldur. Hann var langafabróðir Geirs Hallgrímssonar, núverandi borgarstjóra í Reykjavík. Ég gekk upp á leiti, ég horfði’ yfir haf, og sú heilaga, glóandi sól sína logandi kveðju með geislunum gaf og gullfáði tinda og hól! Eins og eldmúr var Esjan, og jökull- inn stóð eins og hvelfing á ljómandi sæ, og mér sýndist hann anda sem byigj- andi blóð, sem að bærist í purpurablæ. Og ég horfði á skipin, sem höfninni á lágu háreist á speglandi sjó, og ég hugsaði margt, og ég hvislaði Þá, en mér hjartað í brjóstinu sló: er nú þetta hið þjakaða land? en með þrekinu gæti það meir, ef að tápið og þolið sitt tvinnuðu band: ef að tuttugu væri sem Geir! „Ingólfsbær" Einars Benediktssonar Hér lét hann byggja, íslands fyrsti faðir, á frjálsri tíð með heimild eigin valds. — Nú skipast ættmenn Ingólfs þétt í raðir á yzta, síðsta þi-emi tjóns og falls. Hér verður haldið hæsta landsins merki og hér skal falla utanstraumsins hrönn. Vor fremsti bær skal fremstur standa í verki, með Fróni er „Víkin“ dygg og trygg og sönn. Af bóndans auð hún auðgast, verður stærri og auðgar hann — þau hafa sama mið. Þá landið eflist, rís hún hærri, hærri með háa þekking, list og þjóðlegt snið. Hér skal vor trú á sjálfa oss sterkast standa og sterkast böndin tengd frá þjóð til manns — og merkt í vorrar þjóðar eigln anda hið unga er rís af menning heims og lands. Nú vaknar fólkið. Flokkar rísa, dreif- ast, en fylkjast loks og verða sterkur her. Þeir hljóta að opna augun, hljóta að hreyfast frá næstu fjallabyggð í yztu ver. Vort þjóðar líf af þúsund kvíslum spunnið við þetta safnast í einn meginstraum og fellir, rífur burt, hváð illa er unnið með annað þing — er grípur hér í taum. Er þetta fjörtjón frelsis vors og réttar, sem Fjölnismannsins djúpa hyggja sá? Hvort voru hinir þrúðgu, þungu klettar í þingborg Njáls allt traust, sem byggt, varð á? Nei. Hér er lifað — hér skal stríðið heyja um hólmans forna rétt, unz leikslok fást. Ur Mána-málum Eggerts Ólafssonar Reykjavíkurbragur Brynjólfs Oddssonar B rynjólfur Oddsson, bókbindari í Reykjavík, orti brag um Reykjavík árið 1850, sem prentaður var í bók hans, „Nokkur ljóðmæli“, Reykjavík 1869. Því miður er bragurinn of lang- ur til þess að birtast hér í heild, en hann er merkilegur fyrir þá sök, að hann lýsir vel bæjarbragnum og ald- arandanum fyrir 116 árum, og að hann er ortur af hlýjum hug eða nokkurs konar átthagaást í garð Reykjavíkur, og mun Brynjólfur fyrstur manna til þess að yrkja í þeim dúr, en margir hafa á eftir fylgt. Hér verða prentuð nokkur erindi úr kvæðinu, sem er lip- urlega ort og léttilega. Sennilega hefur það verið kveðið undir sönglagi, sem hægt var að dansa við. Sem ég brag með lystug lag, því Ijóðin slík réttvel haga Reykjavík, ei er fagurt, dul á draga dæmin gleðirík, fá sem litum lík. Meistarahöndum húsin vöndúð, haglega skreytt, sjávarströnd fá sig um breitt, sjót að löndum sigluönd, er sinni lætur beitt, fagra sjón fær veitt. Að dómkirkjunni drengir kunna að dást sem má, snilldar vunnið verk þar sjá; geislum sunnu eldur unnar endurkastar frá toppi turnsins á. Öld þá hlýðir helgum tíðum, hljómar þar són með prýði sönglistar; eigi síður eyrum lýða organspípurnar skemmta skrautJbúnar. Menntagyðjur óðs við iðju una sér, skóla styðja störfin hér; eins prentsmiðjan íslands niðjum, ein, sem landið ber, næsta nytsöm er. Voru láði alþing áður efldi dug, sést hér háð við sævarbug; dómara ráðin reynd að dáðum, réttinum stoð öflug, veita vörn og hug. Lærðra hölda lærdómsfjöld, er lýsir sér, æðstu völd má inna hér; menntuð öldin ósið göldum ekkert hæli lér, hrós og hylli ber. Vors um daga vel kann haga vestan blær braut um lagar brögnum kær, gnoð þá draga björg án baga brátt að landi fær, sem úthlutar sær. Sílgræn túnin, svarðardúni sveipuð þétt, blasa núna breið og slétt; geislarún frá græðisbrún þau gullstöfum fær sett kvöld um kyrr og létt. A sumum stöðum bjarkarblöðin blika smá, gullinn röðull geislum þá skúra hröðu skini glöðu skreytir til að sjá húsaþökin há. Skemmtigöngur skemmta löngum skötnum hér, so staðarins þröng á strætum er, hljóma söngvar, sést á öngvum sorg, því kæti lér allt, sem augað sér. Brúðarskari bjartur þar sinn bærir fót, á hann starir sveinasjót, Glasis bari fegri, farinn fram á gatnamót, að vinna böli bót. Þaðan fleyin fögur eygjast flæði á, er möstrin teygja himinhá, leiðir sveigja inn fyrir eyjar, akker digur þá að hafnargrunni gá. Ofan úr sveitum fáki feitum flengja á bændur teitir búum frá, kaupmanns leita, honum heita, höndla við, sem má, kaup ef góð út kljá. Á gildaskálann Gautar stála gengið fá; bjórs er skál á borði þá, horna álinn hressir í máli hring um margir slá, er menn drekkast á. Sér ei leynir, létt þar einatt leika dans fljóð og sveinar saman í kranz; gangstíg beinir hljóm með hreinum hljóðfæranna anz fagurt fótum manns. Nótt er bjarnar breiðir hjarn um bólma’ og lá á ísi tjarnar ungir þá leiksveinarnir gleði gjarnir ganga til og frá skjótir skautum á. Bóga þéttir blása spretti blakkar á, húsa réttum röðum hjá, töðumettir, lipurt léttir láta fætur þá um sléttar götur gá. Snilld og prýði, er helzt til hlýðir höfuðstað, eigi síður en eitt sér hvað, sem að lýðum sig fram býður sælu lífsins að, allt ei innt fæ það. Eggert Ólafsson orti árið 1758 kvæði, sem hann kallaði „Mána-mál“, eða „fornkveðið samtal þeirra Reykja- víkur-feðga: Ingólfs iandnámsmanns, Þorsteins Ingólfssonar, Þorkels mána, sonar hans, og Örlygs á Esjubergi". Fram kemur af þeim orðum, sem Egg- ert leggur Þorkatli mána í munn í kvæðinu, að hann hefur af spámann- legri andagift séð fyrir, að Reykjavík ætti eftir að verða stórborg, og má það merkilegt heita á þeirri tíð, þótt konungur hefði að vísu fallizt á það sex árum áður að gefa Reykjavíkur- fjörð undir innréttingarnar svonefndu samkvæmt tillögu Skúla fógeta Magn- ússonar, en þær voru fyrstu iðnfyrir- tæki á íslandi, sem því nafni má kalla. Eggert sér það einnig fyrir, að í Reykjavík muni Alþingi hafa aðsetur. Þar verði byggðar „kunnustur", eða mennta- og fræðisetur, og „rauk-turn- ar“ geta átt við háhýsin. Máni (Þorkell máni) segir m.a. um Reykjavík í kvæðinu: Koma munu lœknar þeirs Xandsmanna bæta geöbresti, bæta siðbresti, landstjórn bæta, byggja kunnustur ok vegligt bókavit. Skulu kaupferðir í kjör fallast ok vaxa velmegin, springa munu blómstur á bœjar tré, göfgu man þá fjölga frœi. 1 Þá munu lögkænir at lögbergi deila hvartki dóm; œtlanar- menn, orðsnillingar hreinni tungu tala. Sér ek um hin fögru fóstr-tún risit er at rœfrum ok rauk-turnum hátt við hamra ský. 14 LESBÖK MORGUNBLAÐSINS 5. marz 1967

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.