Lesbók Morgunblaðsins - 20.08.1967, Side 1

Lesbók Morgunblaðsins - 20.08.1967, Side 1
10 IMM ÖLNAÐAR AF ORÐUM Veröldin er undrandi yfir þessum þjóðum. Flestir Araþar, allt frá Aden til Alsír, eru fátækir, heilsutæpir, lítt menntaðir og mjög þurftugir fyrir þá kennslu, sem til þarf, svo hægt sé að halda lífi á 20. öldinni. Ljóminn af fornri frægð siðmenningar, sem í eina tið gnæfði hátt, yfirfærður til aldar nú- tímans, ætti að geta glætt eldmó'ð í hugum og sálum Arabanna, orðið sam- einandi lýðhvöt til að byggja upp þjóð- lega reisn og framfarahug. En samt hafa leiðtogar Araba í tvo áratugi fremur borið fyrir brjósti að stofna til sjálfs- eyðandi stríðs gegn ísrael. Ef Arabar tækju raunverulega að vega og meta eigin hagsmuni eftir síðasta óheilla- vænlega ósigur sinn, myndu þeir horf- ast í augu við staðreyndir, taka í út- rétta hönd ísraels og fara að fylgjast með í framkvæmdum, sem koma eýði- mörkum til að bera blóm — og þeir gætu lyft Austurlöndum nær upp í meiri hæð friðar og velferðar en þar hefir nokkru sinni áður verið. Þannig myndi a. m. k. vestrænn maður líta á málið. Til að hefja þetta verk, þyrftu þeir ekki endilega að faðma ísrael allt í einu að sér, né skríða fyrir ísraelsmönnum. Þeir þyrftu aðeins að viðurkenna til- verurétt landsins. En flestir Arabalei'ð- togar hafna þeirri hugmynd gjörsam- iega. Jafnvel þeir Arabar, sem virðast skynsamir og vel lesnir, æpa upp að lát- laust stríð gegn óvininum sé rétt ný- byrjað, og þeir færa sannfærandi rök fyrir því að „réttlætið heimti endalok ísraels sem ríkis“. Þær 110 milljónir Araba, sem í heim- inum eru, hafa aftur og aftur sýnt al- gjöra óhæfni til að kyngja stolti sínu, og algjöra hæfni til að ala sjálfa sig á eigin ýkjum. Þeim mun meiri, sem nið- urlæging þeirra er, þeim mun ósveigjan- legri virðast þeir verða. Að neita viður- kenningu bragðvondra staðreynda kann að vera mjög mannlegur veikleiki, og á því hafa Arabar vissulega ekkert einka- leyfi, en í þessu ganga Arabar undarlega langt. Hvað er a'ð þeim? Geta þeir ekki jafnað sig og tekið upp hætti, sem heppnast í heimi nútímans? Eða hafa þeir lent í þróunarstöðnun, eru þeir í nokkra ættliði dæmdir til annars eins jafnvægisleysis í tilfinningum og póli- tík eins og þess, sem nú gerir Austur- lönd nær að einu af hættusvæðum jarð- ar? Enginn billmgur á trúgirni. Arabar þjást af einu versta tilfelli minnimáttarkenndar í sögunni, og það stafar af því áfalli, sem þeir hafa orðið fyrir við að uppgötva hversu ljómandi fortíðar frægð þeirra hefir reynzt hald- laus til að bæta úr magnleysisástandi þeirra nú. Þeir upprunalegu Arabar voru semí- tiskir ættbálkamenn frá Arabíuskaga, tilfinningaríkir hir'öingjar, fæddir trú- arbragðahöfundar, sem T. E. Lawrence nefndi „fólk frumlitanna". Nú er varla hægt að skilgreina Araba; nafnið tekur til manna af alls konar litarhætti. Arabi kann að vera þybbinn náungi frá Líban- on, hávaxinn Saudimaður,- hvítur Sýr- lendingur, eða Súdanbúi, dökkur líkt og vínber. Þeirra á meðal eru Kuwaiti- menn, haldnir dollara-svima, dularfullir Drúsar, frönskumælandi Alsírbúar og kristnir Koptverjar. Aðeins um 10% eru hirðingjar, en flestir búa í borgum, sumum mjög stórum, svo sem Baghdad með 2.200.000 íbúum og Cairo með 4.200.000 íbúum. Egyptaland er „höfuð- staður" Araba, enda sendi það stærsta herinn gegn ísrael. En Egyptar voru upprunalega ekki Arabar, þótt þeir séu svo taldir nú. Þeir eru af Hamítastofni, undirgefin þjóð, sem veiklazt hefir veru- lega af sjúkdómum og loftslagi Nílar- dalsins; hafa þeir sjaldan, eftir að sög- ur hófust, sigrað í nokkru stríði. Saudi- menn, sem eru méðal hreinræktuðustu Araba, eru með beztu hermönnum, en þeir börðust ekki að ráði við ísraelsmenn. Arabar geta verið hraust- ir hermenn á eigin jörð, svo sem Alsír- ingar gegn Frökkum og Jórdanar í Palestínu. En þrátt fyrir allan and-ísra- elskan ofsa eru fáir Arabar fúsir til að leggja líf sitt í hættu vegna Arabanna í Palestínu. „Arabíska þjóðin", sem svo oft er getið af leiðtogum, „er ekkert annað en skapnaður viljans" segir brezki Arabíusérfræðingurinn sir Ha- milton Gibb. HPún svarar ekki til neinnar sýnilegrar pólitískrar heildar. Stór- Arabíuhyggjan er í senn skáldlegur draumur um liðna tíma og skáldleg fullyr’ðing um einingu, sem ekki er til. Samt eiga hinar ýmsu arabísku þjóðir mikið sameiginlegt. Menn þeirra hafa lilhneigingu til að vera bæði púritanskir og ástleitnir úr hófi. Þeir eru tilfinn- inganæmir, í veizlum sem stríði, svo oss finnst keyra um þverbak. Þeir halda enn fornaldarlegum formum kurteisi og gestrisni. En þetta álítur Morroe Berger, lærdómsmaður í Princeton, að hjólpi þeim til að hafa stjórn á sterkustu ár- ásarhneigðum sínum. En þó eru þeir þolinmóðir, allt inn í lamandi örlaga- hyggju. Sá þáttur í fari þeirra kemur fram í siendurteknum orðatiltækjum, svo sem inshallah, ef Guð vill, malesh, það gerir ekkert til, og bukra, á morgun. Umfram allt er það tungan, sem er þeim sameiginleg. „Arabi er sérhver sá sem á arabisku að móðurmáli" segir Gamal Abdel Nasser. Hún er ekki a'ðeins það meginband, sem sameinar, heldur einnig meginuppspretta vandræðanna. Öll áherzla hennar hvílir á mælsku og hljómgrunni, ekki á meiningu og inni- Arabar á bæn. Lamandi örlagahyggja, tilfinn- inganæmi og púritanismi eru sterkir drættir í fari þeirra. « t

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.