Lesbók Morgunblaðsins - 20.08.1967, Síða 5

Lesbók Morgunblaðsins - 20.08.1967, Síða 5
I>eir sem mcst kvarta yfir því að öll húsgögn séu eins, geta huggað sig við að til skuli vera svo frumlegur hægindastóll og sá, sem sést h ér á myndinni. Hann er að finna í Húsgagnaverzl- uninni Dúnu í Kópavogi, en verzluninni hefur nýlega verið gerbreytt og er núna stærsta hús- gagnaverzlun utan Reykjavíkur. Stóllinn er innfluttur frá Englandi og teikningin eftir þarlendan húsgagnateiknara. Eins og sjá má er þetta steypt trefjaplastskál, lökkuð svört eða hvít að utan og hreyfist á ailar hliðar innan í sökkii eða gjörð úr palisander. í skálinni er mjúk bólstrun úr svampgúmmíi, en yfir dekkt með ensku áklæði, blöndu af Perlon og S pun Rayon. Eitaúrval er mjög f jölbreytilegt. Verðið er kr, 18.500 og er þessi stóll vafaltíið sá dýrasti á markaönum, en hugsanlegt er að verðiö lækki um 1500 krónur, ef hann verður fluttur inn ósamsettur. Sófaborðin tvö, sem þarna mynda vinkil, eru í rauninni hluti af raðsetti, sem Siggi Karls, húsgagnateiknari í Vestmannaeyjum, hefur teiknað og smíðað. En borðin geta eins staðið sjálf- stæð. Efnið er guilálmur. Borðplatan er á löm um en hirzla fyrir handavinnudót eða blöð er þar undir. Borðin eru misstór og kosta kr. 2000 og 2.800.—. Mr að er án efa að íslenzkum húsgagnaiðn aði hefur fleygt fram á síðustu árunum. Þetta kemur í ljós í aukinni vöruvöndun, fjölbreyttari efnisnotkun og stundum en ekki alltaf fegurra formi og auknum þægindum. Það má segja húsgagnaiðnaðinum til hróss að hann gerir sér far um að fylgjast með. Það færist í vöxt, að h úsgagnaarkitektar séu fengnir til að teikna nýjar gerðir húsgagna í stað þess að stæla umsvifalaust eða kópíera alveg útlendar gerðir. Hörð samkeppni á ugglaust sinn þátt í þessu og sú samkeppni er einnig við innflutt húsgögn frá Norðurlöndunum og Englandi. Xil þess að kynna það sem nýjast er af nálinni í innlendri fram- leiðslu og innflutningi hefur Lesbókin gert ferð sína í fjórar þekktar húsgagnaverzlanir og þaðan er brugðið upp myndum af ýmsu, sem athyglisvert þótti. SVIPA2T UM Á HÚSGAGNA MARKAÐNUM 1 Húsgagnahöllinni við Laugaveg var þessi skápur og borðsfofuborð, hvorttveggja innflutt frá Noregi, en innflutningur á húsgögnum þaðan hefur verið þó nokkur að undanfömu. Yfirleitt er mjög falleg vinna á þessum norsku húsgögnum. Boröstofusamstæðan á myndinni er úr eik, með útskornu mynstri. BorÖið er hægt að stækka og verður það þá fyrir 12 manns. Það er einnig fáanlegt úr tckki. Stólarnir eru einnig úr eik, en hægt að velja um margskonar liti, bæði á skinnlíki og ullaráklæði. Skápurinn er 2,05 m á Iengd, á honum eru fjórar læstar hurðir. Hann kostar kr. 11.190, borðið kostar 6.175 og hver stóll kr. 2.890. Hringlaga borðstofuborð i Valbjöik er af', j ai' á. Þetta er 8—10 manna borð, scm ekki verður tr:kk ' . ■’ð er hér úr tekki en fáanlegt einnig úr eik og palfean' r. T œii. ■ er hverfi- borð, lítið eitt hærra en aðalborðið; þar á er raoað 'ium. Borð- ið er framleitt í þrem stærðum, þvermál 150 cm, l.i og 200 cm. Verð: kr. 15.500, kr. 18.000 og kr. 20.000. Stólar úv tekki og með ullaráklæði kosta kr. 2.475 með örmum, en kr. 2'33 armlausir. m 20. ágúst 1967 LESBÖK MORGUNBLAÐSINS 5

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.