Lesbók Morgunblaðsins - 20.08.1967, Page 6

Lesbók Morgunblaðsins - 20.08.1967, Page 6
Til vinstri: Eitt af því sem Húsgagnahöllin hefur flutt inn frá Noregi er þessi hornsófasamstæða. Grindin er úr eik, svampur í sessum og yfirdekkt með ullaráklæði. Brciddin á tveggja sæta einingunni er 155 em en 190 cm á þriggja sæta einingu. Af hornsófasainstæðum eru þrjár aðrar gerðir fá- anlegar. Þessi samstæða kostar með hornborðinu kr. 2G.980. A myndinni sést einnig eikarskrifborð með sex skúffum. Það kostar kr. 10.780. Að neðan: Sófasamstæða frá Dúnu í Kópavogi. Sófinn er fjögurra sæta og stendur á tveim stálfótum. Bak- ið er fastbólstrað en lausir fjaðrapúðar í sessum. Bólstrun er framkvæmd í Dúna, en grindin inn- flutt frá Danmörku; teikningin er eftir Eric Nissen í Horsens. Hægt er að velja um fjölda áklæða í ýmsum litum. Sófinn kostar‘kr. 16.000. Stóllinn, sem gerður er á sama hátt og sófinn, kostar 7.200. Sófaborðið er þarna úr ljósri eik, en það er einnig fáanlegt úr palisander eða tekki. Það er lakkað með sérstöku lakki, sem bæði þolir hita og vínanda og fyrirbyggir að viðurinn dökkni. Borðið kostar kr. 4.420. Glæsilegir hægindastólar frá Dúnu í Kópavogi. Grindur frá Nissen í Horsens, svartlakkaðir eða krómaðir „jólatrésfætur“, sem mjög hafa rutt sér til rúms. Stólarnir snúast um fótinn en þeir eru einnig fáanlegir sem ruggustólar. Tréfætur fáanlegir. Fjaðrapúðar í baki og setu. Úrval áklæða, bæði ull og gerviefni. Verð: Lágt bak, stálfótur á kr. 8.500 en 9.000 kr. með ruggu. Með háu baki og stálfæti kr. 11.500 en kr. 12.000 með ruggu. Til vinstri: Á húsgagnamarkaðnum er nú völ á nokkrum góðum raðsófasamstæðum, en eitt það fallegasta mun'það, sem fæst í Húsgagnaverzlun Helga Einarssonar á Laugavegi 1G8. Grindin er úr tekki, en áklæði er fáanlegt eftir vali hvers og eins. Samstæðan, sem myndin er af, var klædd framúrskarandi fallegu, ljós- rauðu ullaráklæði. Þarna er hver sætis- eining út af fyrir sig og kostar hver um sig kr. 6.240, -en hornborðið kostar 2.850. Helgi hefur sjálfur teiknað sófaborð- ið, sem er kjörgripur, platan úr 10 mm spegilgleri, en fætur og grind úr matt- krómuðum stálprófílum. Kaktusakerið undir borðplötunni er úr járni, svart- málað. Verð kr. 4.965. Blómakerið lcngst til vinstri er úr tekki og klætt járni að innan, svo hafa má að vild lausa blómapotta eða planta beint í það. Ljósið yfir sófaborðinu er hinn svo- nefndi Heklulampi, fyrir hann fengu þeir 1. verðlaun í Danmörku, Jón Ólafs- son og Pétur Lúthcrsson, húsgagnaarki- tektar. Lampinn kostar um 4.500 krónur. 6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 20. ágúst 1967

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.