Lesbók Morgunblaðsins - 20.08.1967, Síða 13

Lesbók Morgunblaðsins - 20.08.1967, Síða 13
Atriði úr Brúðuheimilinu í uppsetningu Peters Zadeks í Borgarleikhúsinu í Bremen. sviðið, með lautum, sillum og klettum til hliðanna. Fyrir aftan og ofan er lín- himinn, sem varpað er á skuggamynd- um af sfinxinum, pálma, skýjum o. s. frv. Tónlist Hans Martin Majewskis hafði djúp éhrif með hljóðfalli sínu í jazzi þeim, sem saminn er eftir hug- mynd þjóðlaga og leikinn undir þjóð dansa brúðkaupsins, og langa, skæra og tilfinningaþrungna tóna í „söngi“ Sól- veigar. Elektróniskir hljómar voru not- aðir í atriðinu á geðveikrahælinu og skopstældur jazzballett í höll Dofrans. Sem heild er sýningin vel heppnúð og nútímaleg, — að minnsta kosti eins við- unandi mynd af veröld Gauts og við erum vön að sjá. I Borgarleikhúsinu í Bremen hefur einn djarfasti, imgi leikstjóri Þýzka- lands, Peter Zadek, beitt aðlögunarað- ferðinni við Brúðuheimilið. Hlutverk Önnu Maríu og stofustúlkunnar ásamt þriðjungi textans hafa horfið í um- skrift Zadeks. Árangurinn er 110 mín- útna sýning á 4x7 metra sviði í áhorf- endasal, sem tekur tæplega 300 manns, og spáný líkamleg og andleg snerting við hið tvöfalda tilverusvið persóna Ibsens. Nóra og miðsóknarafl allrar at- hygli um hana er aðalþáttur yfirborðs- sviðsins, gefur verkinu líftaug og drífur atburðarásina, nægilega hratt til að halda áhorfendum í stöðugri eftirvænt- ingu, og nægilega rólega til að þeir geti fylgt þráðum verksins inn í lítt með- vitað sálarlífsúrverk persónanna, hið innra, sálræna tilverusvið. í tíu stuttum myndum fyrir hlé, leiknum fyrir opn- um tjöldum, með ljósum í salnum og örstuttum myrkvúnum milli atriða og einu löngu lokaatriði, tekst Zadek með undraver'ðri nákvæmni og valdi yfir leikendum að færa höfuðáherzluna af kvenfrelsisvandamálinu yfir á hið eilífa vandamál Brúðuheimilisins, — mannleg samskipti í hjónabandi, sem stofnað hef- ur verið til á vafasömum forsendum. Það, sem hefur eilíft gildi í verkinu, eru IBSEN Framhald af bls. 3 ingu Einars Benediktssonar: „Hverfur þá sálin svo hróplega snauð/ heim, inn í myrkrin köld og snauð?“) Þetta er óvenjuleg upphafssetning í Pétri Gaut. Thalia-leikhúsið í Hamborg tók í mó- derniseringu sinni þann kost, að gefa áhorfendum þegar í stað skýra hug- mynd um boðskap verksins. Eftir atrið- ið með „hinum magra“ (úr 5. þætti) leggur áhorfandinn út á refilstigu lífs- ins með Pétri til að sjá, hvar persónu- leiki hans brast, hvar falsið og hálflygin í lífi hans liggur. Innra orsakasamhengi verksins fær á þennan hátt frá byrjun sömu áherzlu og hin ytri atburöarás. Það er leikstjórinn, Otto Wilhelm, sem á hugmyndina að þessum túlkunarmáta. Og þetta var ekki hið eina nýstárlega við sýninguna, — verkið er nú í fyrsta sinn, svo vitað sé, flutt á óbundnu, þýzku nútímamáli, allt rím er fellt nið- ur, föst leikmynd er aðeins ein, og not- uð er nýsamin tónlist við sýninguna. Lausa málið er svo hversdagslegt og blæbrigðalaust í stil, að stemmningsrík atriði á borð við ræ’ðu prestsins (sem er mjög stytt) og vögguvísuna í lokin missa hin hátíðlega, ljóðræna svip. Söngur Sólveigar var hins vegar áhrifamikill og sannfærandi. Helzti veikleiki óbundna málsins er sá, að með því myndast ann- að samband texta og framsagnar. Orða- röðin í bundnu máli gefur einnig mögu- leika til að leggja áherzlur á allt annan máta og ná fram öðrum áhrifum en í óbundnu máli. Hraðinn á sýningunni var leiftur snarpur og minnti helzt á aðferðir kvik- mynda til að bregða upp skýrum augna- bliksmyndum. Leikræn heildaráhrif eru sterk, en persónulýsingin verður likinga- kennd. Leikmyndin er ódýr og auðveld lausn, — dalverpi, sem þrengist upp Arndís Björnsðóttir sem Ása í Pétri Gaut. þau átök í sálardjúpinu, sem afhjúpast í samlífi fólks við sína nánustu, hin óljósu og hægu umskipti í fylgsnum per- sónuleikans. Uppsetning Zadeks undir- strikar tvöfeldnina í athöfnum persón- anna og hugsunum. L eikmyndin var í gulum, brúnum og dökkgrænum lit. Eina húsgagnið var plusssófi. Krogstad var svartklæddur, Helmer gráklæddur, Rank læknir í vín- rauðu vesti, frú Linde í gamaldags blá- um lit og Nóra fyrst í liflegum grænum og brúnum litum, sem var góð líking um tvíþætt líf hennar, og að síðustu alveg brúnklædd á kveðjustundinni. Tjöld og búningar táknuðu í stíl og lit- um stöðu persónanna í heildarmynd leiksins. Hinir ungu leikarar, fimm talsins, gáfu aga'ðar lýsingar á persónunum og yfir Edith Clevers var sérstök harmþrungin blíða í sálarlegri einangrun Nóru undir fargi sínu. Á þessum þremur sýningum má byggja stefnur í uppsetningu verka Ib- sens og nýtt samband milli leikhúss og áhorfenda. ARABAR Framhald af bls. 2 Araba með þjóðemislegum áróðri, og telja stofnun ísraels til ýtrustu niður- lægingar. í augum Araba voru Vestur- lönd ekki aðeins að nota Gyðinga sem umboðsmenn til að gera Palestínu að nýlendu, heldur til að útreka þá íbúa, sem þar voru fæddir. Arabar líta á ísraelsmenn sem ódulbúna árásarmenn, spjótsodd vestrænnar árásar á gjörvalla menningu þeirra. Augljóslega höfðu Vesturlönd rita'ð lyfseðil fyrir uppreisn. En þær stjórnir sem með heri að baki sér hafa tekið völd í ríkjum Araba frá 1948 að telja, hafa ekki virkjað byltinguna í upp- byggjandi tilgangi. Þær ólguðu af sjálfs- meðaumkun og steyptu sér út í óskyn- samlegar ógæfusmíðar út á við, fremur en skynsamlegar nýbyggingar inn á við. Þeim til málsbóta má geta þeirra gífur- legu hindrana, sem í vegi stóðu. Einn þeirra þátta, sem hindra mun arabiska framför, verður áfram Islam. Sem átrúnáður heldur hún áfram að laða að sér milljónir manna, sem ekki eru ara- biskar, allt frá Nigeríu til Pakistan og Filippseyja. Hún er skýr, öryggisveit- andi og umburðarlynd. Jafnvel animist- ar geta játað hana, án þess að snúa sér frá sínum sundurleitu vofum. í augum nálega allra Araba er samt íslam Guðs fullkomna þjóðfélag, en vandinn að bregðast við þeim truflandi staðreynd- um að vestrænt tækniþjóðfélag er aug- ijóslega miklu árangursríkara. Arnold Toynbee bendir á hvernig Tyrkland leysti vandann með því að greina trúar- félag og riki, fella úr gildi íslömsk lög í veraldlegum efnum, taka upp svissn- eska og ítalska lagabálka, skipta á ara- bisku letri og latnesku, og hvetja Tyrki til að stunda verzlun, gagnstætt ísl- amskri erfðavenju. En Tyrkir- búa enn yfir talsverðu af sjálfstrausti Ottomana þjóðhöfðingja, og Arabar eru þeim það clíkir að þeir geta ekki komið af sér þungum hrammi íslams. Arabisk menn- ing á sér ekki neina jákvæða veraldlega hliðstæðu við átrúnað sinn. „Araba- heimurinn hefir aldrei alið neinn Tom Paine né Voltaire", segir Wilfred Cant- well Smith, kennari guðfræðiskólans við Harvard. Erfikenning Gyðingdóms og kristindóms gerir manninn, í krafti viljafrjálsræðisins, færan um að glíma við náttúruna, jafnvel við Gúð. Hug- myndin um slíka skapandi spennu er framandi og hræðandi út frá hugsun íslams. NauSsyn nýrrar sjálfsvitundar. Ásamt íslömskum átrúnaði hafa alda- skeið erlendrar yfirstjórnar skilið Ara- 20. ágúst 1967 LESBÖK MORGUNBLAÐSINS 13

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.