Lesbók Morgunblaðsins - 31.03.1968, Blaðsíða 10

Lesbók Morgunblaðsins - 31.03.1968, Blaðsíða 10
IU jy GLl M R ■®-*-oy Jenkins, hinn nýi fjármála- ráðherra Bretlands á langan stjórn- málaferil að baki, þótt ekki sé hann eldri en 45 ára gamall. Aðeins 27 ára gamall komst hann á þing fyrir Verka- mannaflokkinn og hefur setið á þingi síðan í ríkisstjórn Wilsons hafði hann fyrst ó hendi embætti flugmálaráðherra 5 eitt ár en síðan embætti innanríkis- ráðherra. Þaðan fór hann nú í sæti fjármalaráðherra, en Callaghan fyrir- rennari hans þar treystist ekki til að sitja áfram eftir þá örlagaríku ákvörð un að fella gengi pundsins. Callaghan vék þó ekki, sem kunnugt er úr ríkis- stjórn en var gerður að innanríkis- ráðherra, Hafa þessir tveir menn því baft skipti á ráðherraembættum og ligg ur nú fyrir Jenkins það erfiða hlut- verk að efla fjármálalíf Bretlands og styrkja á ný traust manna á hinu enska pundi. P oy Jenkins er ættaður úr námu- héruðum Suður-Wales og í föðurætt kom inn af námuverkamönnum. Faðir hans hlaut styrk til náms við Oxford há- skóla og síðar til náms í París. Að ioknu námi settist hann að í heimahér- sði sínu og hóf fljótlega afskipti af stjórnmálum og verkalýðsmálum námu- verkafólks. Hann varð varaformaður Samtaka námuverkamanna í Suður-Wal es og síðar þingmaður fyrir Verka- mannaflokkinn. Var hann mikils metinn bæði innan flokks síns og heima í hér aði. Eftir allsherjarverkfall námumanna iaust fyrir 1930 var hann sakaður um að hafa efnt til uppþota og dæmdur til þriggjá mánaða fangelsisvistar. Þá var Roy sonur hans sex ára gamall og var fangeisisvist föður hans huldið leyndri fyrir honum þar til hann var stálpaður orðinn. Segir Roy Jenkins að ákvörðun foreldra hans að halda leyndri fyrir hon um fangelsisvist föðurins hafi valdið ótti þeirra við að sonurinn mundi fyll ast uppreisnarhug gegn yfirvöldunum. Sjálfur mun Jenkins eldri hafa talið dóminn gegn sér óréttlátan og á röng- um forsendum reistan. Faðir minn var ekki uppreisnarmaður að eðlisfari, seg- ir Roy Jenkins, né heldur taldi hann að byltingar eða uppþot væru árang- ursrík tæki í stjórnmálabaráttunni. Sér stakar aðstæður gerðu hann að upp- reisnarmanni í þetta sinn, en það var algerlega andstætt eðli hans að lifa í ósami æmi við lögin. Roy Jenkins var einkabarn foreldra sinna og átti mjög glaða og áhyggju- lausa bernsku. Faðir hans tók hann oft með sér í ferðalög til meginlandsins þegar hann sótti þing verkalýðssamtaka- Bókasafn heimiiisins var allstórt að vöxt um og naut Roy allmikils frjálsræðis 1 bernsku. Heimilið var ekki auðugt en þau höfðu sjálf ætíð nóg fyrir sig að íeggja. En fátæktin sem blasti við allt umhverfis þau hjá námuverkafólki varð foreldrum hans ætíð hvöt til meiri og stærri átaka í baráttunni fyrir bættum kjörum stéttarinnar. Móðir hans lét sinn hlut ekki eftir liggja. Hún tók mikinn þátt í ýmis konar félagsstarf- semi og sat m.a. í sveitastjórn eftir lát rnanns síns. Þótt Roy Jenkins viður- kennir að faðir hans hafi haft m ikil áhrif á hann á uppvaxtarárunum, legg- ur hann mikla áherzlu á þá staðreynd að hann hafi aldrei lagt að honum að gefa sig að stjórnmálum öðru fremur. Hann lifði það ekki að sjá son sinn taka sæti á þingi, en lézt tveim árum áður, árið 1946. Ég held að honum hefði þótt leiðinlegt, segir nýi fjármálaráð- herra Bretlands, hefði ég ekki sýnt áhuga á öðru en afla fjár, en að öðru leyti var ég sjálfráður. H áskólanám stundaði Roy Jenkins við Balliol College í Oxford og þar hóf hann virka þátttöku í stjórnmálum. Þetta var á árunum rétt fyrir stríð og óhugi stúdenta fyrir stjórnmálum var mikill. Samtímis Jenkins í Oxford voru m a. Edward Heath og Denis Healy sem var þá strangtrúaður marxisti. Stjórn- málabaráttan var hörð og Jenkins, sem tók þátt í henni af lífi og sál, segist hafa verið undtandi þegar hann fékk fyrstu einkunn í námi sínu þrátt fyrir allt félagsstarfið. Hann lagði stund á stjórnmálavísindi, heimspeki og hag- fræði. Um þetta leyti kynntist hann konuefni sínu Jennifer Morris að nafni., þótt ekki giftust þau fyrr en nokkrum árum síðar. Hún stundaði raunar nám við Cambridge háskólann og vár þar íormaður stúdentafélags Verkamanna- flokltsins. Árið 1942 var hann kallaður til her- þjónustu og gegndi þar sérstökum íkipulagsstörfum en tók ekki þátt í bar- dögum. Að stríðinu loknu var hann bú- mn að taka þá ákvörðun að bjóða sig fram til þings, • og _ hóf starf innan flokksins af kappi. í apríl 1945 bauð hann sig fram í Solihull en það sæti var talið 'vonlaust fyrir frambjóðanda Verkamannaflokksins enda fór svo að Jenkins tapaði kosningunum með um það bil 5000 atkvæða mun. Þrjú næstu árin starfaði hann við Jjármálastofn- un iðnaðar og verzlunar, sem sett var á fót á árunum eftir stríð til að reisa við minni fyrirtæki og efla bolmagn þeirra í atvinnulífinu. Segist Jenkins hafa hlotið góða reynslu og þekkingu í þessu starfi þótt ekki þætti honum það beinlínis skemmtilegt. í apríl 1948 var hann frambjóðandi Verkamanna- flokksins í Central Southwark sem tal ið var öruggt sæti, en honum var gert fyllilega ljóst að þingseta hans fyrir það kjördæmi mundi vara í aðeins tvö ár þar sem stóð til að sameina það kjördæminu North Southwark og yrði hann þá að víkja fyrir þingmanni þess kjördæmis. Jenkins tók samt boðinu í trausti þess að honum byðist annað s jördæmi síðar. Um þessar mundir vann Jenkins einnig að ævisagnaritun Attlees og kom hún út um sama leyti og hann tók sæti á þingi. Mikil vinátta ríkti milli Jenkins og Attlees frá fornu fari. Jenkins hafði séð um útgáfu á ræðu- safni Attlees nokkrum árum fyrr og Attlee var skírnarvottur er elzti sonur Jenkins var skírður. Þótti því brautin nokkuð bein fyrir stjórnmálaferil Jenk- ins þar sem faðir hans hafði verið einn virtasti þingmaður flokksins um árabil og sjálfur Attlee, nýskipaður forsætis- ; áðherra heimilisvinur hans. A. þingi starfaði hann aðallega í fiármálanefnd fyrstu árin og var ötull flokksmaður, en fór smám saman að öðlast fleiri áhugamál á þingi og var þá jafnframt7 ekki eins. flokksbundinn og áður, að því er hann sjálfur segir. Hann íór að. láta til sín taka í ýmsum félags- málum á þingi, m.a. barðist hann fyrir efnámi refsingarlaga fyrir kynvillu, og endurbótum á lögum um hjónaskiln- eði, fóstureyðingu. bg ritskoðun. Jafn- framt hélt hann áfram ritstörfum, skrif- áði m.a. fleiri ævisögur merkra stjórn- málamanna og verk sem fjallaði um stjórnmálaþróun Bretlands á árunum 1870 til 1914. Var miklu lofsorði lokið á þetta verk sem var hið fyrsta af þrem bókum um stjórnmál sem Jenkins hefur látið frá sér fara. Þykir hann skrifa mjög aðgengilegan og lipran stíl. Roy Jenkins hefur barizt ötulli bar- áttu fyrir því að Bretland gerist aðili að Efnahagsbandalagi Evrópu og hefur aldrei dregið dul á þá skoðun sína að iarsælast væri fyrir Bretland að hafa samflot með Evrópu: mun sú afstaða nans ekki sízt hafa stuðiað að því að Wilson gerði hann að fjármálaráðherra sínum einmitt nú. Roy Jenkins er sagður jafnlyndur mað ur með fágaða framkomu. Hann er sagð- ur nokkur samkvæmismaður sem kunni vel að meta góðan mat, dýrar veigar og félagsskap fagurra kvenna. En hann er ætíð óaðfinnanlegur í fram- komu og segja kunnugir að farsælt heimilislíf sé honum traustur bakhjarl. Hann nýtur álits og virðingar einnig meðal yngri manna flokksins og sumir spá því jafnvel að hann eigi eftir að værða Wilson skeinuhættur sem keppi- nautur um forustuna innan Verkamanna flokksins. Formœlingar Framhald af bls. 9 er nútimaíslenzku, orð af þessu tagi bókstaflega, til að mynda þannig að til- tekinn maður hafi ekki nema hálft vit, þótt hann sé kallaður hreinasti hálf- viti, svo að sjaldnast veldur þetta mis- skilningi, en upphaflega er þessi notkun orðanna af því tagi sem við mundum nefna ranga. Hér getur. þó verið mjótt á munum milli „rangs máls“ og „rétts“, því að stíll snillinga er einmitt oft fólginn í því að geta notað gömul orð í nýrri merkingu þannig að nýja merkingin sé gott og vandað mál. í sjálfu sér er eðlilegt að orðafarið breytist frá einni kynslóð til annarar, meðal annars beinlínis sökum þess að enginn lærir málið alveg eins og hún lærði það sjálf af horfinni kynslóð.En í því sambandi er rétt að minna á þá staðreynd að til að varðveita samhengið i málinu, samband einnar kynslóðar við aðra yfir víddir tímans, eftir því sem mögulegt er, er ein vænlegasta aðferð- in sú að forðast allar óþarfar breyt- ir.gar, forðast að leyfa öðrum breyt- ingum að festa rætur en þeim sem nauð- synlegar eru vegna breytinga á samfé- lagsháttum og daglegu lífi manna. Þegar notuð eru orð sem í daglegu máli hafa glatað tengslum við uppruna lega merkingu sína, merkingu sem er þó ljós við andartaks umhugsun, orkar slíkt sljóvgandi á málkenndina almennt, jafnvel hætt við að það smiti út frá sér.Og tíð notkun stóryrða, órökstuddra alhæfinga og fullyrðinga, veldur því að merking slíkra orða sljóvgast líkt og egg á bitjárni sem notað er jöfnum höndum til að telgja harðvið og sarga sundur frosið kjöt. Þegar orð eins og vitlaus, hálfviti („hann er hreinasti hálf viti“) eða ágætt fara að tíðkast fremur sem sljó eða merkingarlítil áherzluorð, verður sífellt erfiðara að nota þau í eldri merkingunni, að minnsta kosti ef hinni yngri er beitt í hófleysi Notkun stóryrða í tíma og ótíma gerir þau ein- mitt iila nothæf, þegar á þeim þarf að halda. Á þetta atriði er vert að benda sérstaklega, um leið og aftur er minnt á hitt að góðir stíluðir geta leyft sér frávik frá þessari hefð eins og öðrum venjum málsins. IV. Uppruni stóryrða er margvíslegur. Sum þeirra eru í slíkum tengslum við ónnur orð málsins að þeim er ætlandi að beina huganum helzt að aukinni merk- ingu tiltekins orðs eða orðasambands, einhver merking verður þyngri við það að sérstakt orð eða orðalag er látið fylgja orðinu. Dæmi um það eru m.a. atviksorð eins og ákaflega, mjög, sér- staklega, afar, svolítið, einnig orð eins og vel, Iítið, og nægir að minna á orða- sambönd eins og afar góður, svolítið hræödur, vel feitur. Ennfremur eru sér- stök orð notuð til að draga úr merk- ingu á svipaðan hátt, t.d. lítið skemmti- legur, miður þægilegur, f erlendum málum er algengt að orð sem upphaflega tákna eitthvað heilagt, 10 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 31. marz 1968

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.