Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 07.04.1968, Qupperneq 10

Lesbók Morgunblaðsins - 07.04.1968, Qupperneq 10
□□ Lj n M Sitt af hverju úr samtalsrabbi við Böðvar frá Bakka Eftir séra Císla Brynjólfsson — Fyrri hluti Við kynntumst fyrst í lyftunni með „Góðan daginn“ og „Gott er blessað veðrið“ o.s.frv. og það var strax eitthvað aðlaðandi við hann. Hress í bragði, hýr á brá, ern og minnugur og kunni auðheyrilega frá mörgu að segja með næstum áttatíu ár að baki. Hér var maður, sem æskilegt var að fræð- ast af um fyrri tíma, þá tíma, sem eru önnur öld og annar heimur heldur en sá, sem við þekkjum af eigin raun, prestssonur frá þeim stóra stað, Vatns- firði, kaupfélagsstjóri á Bakka og Bíldu dal, hefur nú unnið á Skattstofunni í 15 ár. Böðvar? í höfuðið á? Það var mikill efnismaður, sem ég var heitinn eftir. Hann dó mjög fyrir aldur fram. Það var Böðvar, sonur sr. Þórarins í Görðum. Hann lézt í skóla aðeins 19 ára, öllum mikill harmdauði, sem þekktu þennan gáfaða og hug- ljúfa skólasvein. Þeir voru aldavinir Böðvar og faðir minn, svo það var engin furða þótt hann vildi koma nafninu upp. Til minningar um þennan elskaða og efnilega son sinn stofnaði sr. Þórarinn Flensborgarskólann. Þú ert ekki fæddur í Vatnsfirði? Nei, á Prestbakka í Hrútafirði. Eins og þú veizt var faðir minn son- ur sr. Ólafs dómkirkjuprests, síðar á Mel, Pálssonar prests Ólafssonar í Gutt ormshaga, þess er drukknaði á Mýr- dalssandi 14. september 1823 með þeim Öfjörð sýslumanni og Benedikt skálda. — Sr. Páll í Guttormshaga var dóttur- sonur sr. Jóns Steingrímssonar, svo að ég er einn af hinum fjölmörgu afkom- endum Eldklerksins, fimmti maður frá honum. Faðir minn vígðist aðstoðarprestur til föður síns að Melstað. En ekki fékk hann brauðið eftir hann, komst ekki einusinni á skrá. Það var veitt sr. Þorvaldi Bjarnasyni á Reynivöllum. Þá fluttist faðir minn vestur í Hrútafjörð, fyrst að Stað, síðan að Prestsbakka eft- ir að sr. Brandur Tómasson fór austur að Ásum í Skaftártungu. Prestsbakki var frekar rýrt brauð en þó farsælt. Föður mínum búnaðist þar vel þrátt fyrir mikla ómegð. Hér er bezt að geta þess, þótt öllum sæmilega fróðum mönnum sé það vit- anlega kunnugt, að foreldrar Böðvars voru þau Páll Ólafsson og Arndís Pét- ursdóttir Eggerz. Þau giftust haustið áður en sr. Páll fékk Prestsbakka. Þar, í Hrútafirðinum voru þau einkar vel látin. Sr. Páll fékk Vatnsfjörð 13. októ- ber aldamótaárið og fluttist vestur vor ið eftir. Sighvatur Borgfirðingur seg- ir í Prestaævum um sr. Pál: „Þótti Hrútfirðingum ærinn sneyðir að brott- för hans. Var hann þá talinn með landsins merkustu klerkum og auk þess uppbyggilegur og góður félagsmaður, framkvæmdasamur, frjálslyndur og lip- ur forsprakki allra góðra og gagn- legra mála“. Meðan sr. Páll var á Prestsbakka var hann prófastur Strandamanna. Sagði dr. Jón biskup Helgason, að svo vel hefði hann rækt það starf, „að ég efast um, að nokkur hafi verið honum fremri sam- tíðarmanna hans meðan hann var upp á sitt bezta". Eitt kjörtímabil var sr. Páll þingmaður Strandasýslu. Má af öllu þessu glöggt marka, hve ágætur embættismaður hann var og hver höfð- ingi hann var í héraði. Mannstu eftir nokkru frá Prests- bakka? Já, hvort það nú væri. Við þann stað eru margar bernskuminningarnar bundnar, um glaða daga í fjölmennum systkinahópi á heimili góðra foreldra. Faðir ykkar hefur kennt ykkur? Nei, það gerði hann aldrei. Bæði var nú það, að hann hafði mikið að starfa við embætti sitt og að félags- málum. Og svo held ég hann hafi ekki verið gefinn fyrir kennslu. Honum hafi látið annað betur. En hann tók heimilis- kennara handa okkur svo við nutum góðrar uppfræðslu. Þetta voru margir ágætir kennarar. Ég man eftir Oddnýju Finnsdóttur frá Kjörseyri og Sigurjóni Jónssyni á Kollsá. Hann var ljósmynd- ari. Það var óvanalegt í sveitum á þeim tímum. Og ekki má gleyma hon- um Stefáni frænda. Hann varð bóndi á Brandagili og hreppstjóri. Sá var nú ekki að hika við að setja okkur í skammakrókinn ef við kunnum ekki. — Stefán var mikili gleði- og sel- skapsmaður, músikalskur með afbrigð- um spilaði og söng með sinni sterku hreinu rödd. Hefði hann menntazt á því sviði, held ég hann hefði orðið ann- ar Carúsó eða eitthvað í þá átt. Alltaf man ég eftir jólunum á Prests- bakka. Mynd þessi var tekin á rúmhelgum degi síðsumars 1906. Ljósmyndari var Sigurjón Jónsson á Kollsá. Nokkuð af heimilisfólkinu vantar á myndina, þ.a.m. Guðrúnu Pálsdóttur. f manntali í Vatns- firði voru þetta ár alls 27 manns. Nr. 1. Halldór Sigurðsson húsmaður í Miðhúsum í kaupavinnu í Vatnsfirði þetta sumar og oftar, en stundaði ann- ars sjó. Halldór dó í Vogum við ísa- fjörð árið 1931. Nr. 2. Sigrún dóttir Halldórs, lengi .vinnukona í Vatnsfirði. Hún varð sínum á Bjarnastöðum, fluttist til ísa- seinna ráðskona hjá Jóni föðurbróður fjarðar, dáin þar fyrir fáum árum. Nr. 3. Jakobína Þorleifsdóttir vinnu- kona, fluttist norður í Húnavatnssýslu, giftist Gísla skáldi Ólafssyni frá Eiríks- stöðum, enn á lífi á Sauðárkróki. Nr. 4. „Fóstra,“ Kristrún Magnúsdóttir. Barnkoman var svo ör, að það yngsta var ekki komið af höndum, er það næsta fæddist, og Kristrún fóstraði börn in hvert af öðru. „Okkur þótti jafn- vænt um hana og móður okkar“ (B.P.) „Fóstra“ dó 85 ára hjá Páli í Þúfum 24. sept 1947. Nr. 5. „Manga litla“, Margrét Guð- mundsdóttir, móðir Guðjóns vaktara á ísafirði „Hún var með fádæmum árris- ul, fór alltaf fyrst á fætur og þótti mikið miður þegar við strákarnir vorum að læðast ofan á undan henni“ (B.P.) Margrét andaðist í Vatnsfirði 74 ára þ. 15. ág. 1922 og hafði þá verið 39 ár í sömu vist. Nr. 6. Guðbjörg Sæmundsdóttir vinnu- kona frá Hörgshlíð í Mjóafirði. Hún fór til Ameríku. Nr. 7. Jakobína Pálsdóttir. Hún giftist Ágúst Sigurðssyni á Bíldudal. Þau fór- ust bæði með Þormóði 1943. Nr. 8. Guðrún Jónsdóttir frá Vatns- fjarðarseli. Hún ólst að öllu leyti upp í Vatnsfirði til fullorðins ára, lærði ljósmóðurfræði. Nú búsett í Hafnar- firði. Nr. 9. Sigríður Pálsdóttir, giftist Hann esi B. Stephensen á Bíldudal. Hún dó í Reykjavík 1966. Nr. 10. Prófastsfrúin Arndís Pétursdótt- ir Eggerz. Hún andaðist í Þúfum hjá Páli syni sínum og Björgu Andrésdóttur konu hans 5. sept. 1937. Nr. 11. Stefán Pálsson. Hann varð bóndi í Miðhúsum, fluttist þaðan til Hnífs- dals og síðan til Reykjavíkur, dáinn 1967. Nr. 12. Pétur Pálsson, bjó á Bjarna- stöðum, síðan lengi í Hafnardal, fluttist til ísafjarðar. Dáinn í Reykjavík 1966. Nr. 13. Jóna Guðmundsdóttir, Ásgeirs- sonar frá Látrum í Mjóafirði. Hún flutt- ist til ísafjarðar, stundar þar sauma- skap o.fl. Nr. 14, 15 og 18: Nr. 15 Krístján Hólm húsasmiður í ísafirði, nr. 18 kona hans, nr. 14 dóttir þeirra. Þetta sumar var Kristján við kirkjusmíði í Vatnsfirði. Nr. 16. Sr. Páll Ólafsson prófastur, f. 20.7 1850. Hann andaðist í Vatnsfirði 11 — nóv. 1928. Fór útför hans fram 25. s. mán. Nr. 17 Ragna Pétursdóttir, Pálssonar ólst upp að öllu leyti í Vatnsfirði, gift- ist Sigurði alþm. Kristjánssyni. Ragna dó 21.11. 1955. Nr. 19. Einn af kirkjusmiðunum, Jens Jónatansson frá Engidal. Nr. 20. Sigþrúður Pálsdóttir, giftist Oddi Guðmundssyni frá Hafrafelli í Skutulsfirði, þau bjuggu á ísafirði. Hún er nú búsett í Reykjavík. Nr. 21. Páll Pálsson, böndi í Þúfum. Nr. 22. Böðvar Pálsson. Nr. 23. Sigurður Pálsson, lengi bóndi á Nauteyri, nú við afgreiðslu Djúp- bátsins á Isafirði. Nr. 24. Þorbjörn Eggertsson, sonur Eggerts, sem var vinnumaður prófasts- hjónanna bæði á Prestbakka og í Vatns- firði. Þorbjörn fluttist til Bolungarvík- ur, siðan til ísafjarðar. Hann andaðist á Hrafnistu fyrir fáum árum. Eggert faðir hans er ekki á myndinni. Hann fylgdi kvíaánum í haga allt sumarið. 25. Þórarinn Dósóþeusson frá Svein- húsum, vinnumaður í Vatnsfirði nokk- ur ár, síðan bóndi í Þernuvík í ögur- sveit. Dvelur nú hjá dóttur sinni í Reykjavík. 26. Jón Ásgeirsson snikkari frá Skjald- fönn. Hann var við smíði kirkjunnar. 10 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 7. apríl 1968.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.