Lesbók Morgunblaðsins - 30.03.1969, Page 1
13. tbl. 30. marz, 45. árg. 1969.
„Peisónuleiki hans er óþrotleg upp-
spretta margvíslegra hughrifa, hugs-
ana og hugmynda sárviðkvæms, sí-
leitandi og síspyrjandi listamanns.u
Hugleiðingar um viðtalsbókmenntir,
Kjarval og Kjarvalskver.
EFTIR CUÐMUND C. HACALÍN
Það er engin nýjung lengur,
þó að það væri sjaldgæft fyr-
ir nokkrum áratugum, að menn
skrifi viðtöl við þennan eða
hinn og birti í íslenzkum blöð-
um eða tímaritum. Stundum er
það tilgangurinn með viðtal-
inu að leiða í ljós og gera al-
menningi kunna afstöðu þess,
sem við er talað, til einhvers
merkilegs máls eða mála — eða
sérþekkingu hans á einhverju,
sem hann er talinn fróðari um,
en flestir aðrir, — en eins oft
er það, að höfundurinn vill
leiða í ljós viðhorf viðmæl-
anda síns almennt eða fá hann
til að segja frá mönnum, sem
hann hefur kynnzt og því, sem
merkast eða forvitnilegast hefur
fyrir hann komið — og þá
vænta lesendurnir gjarnan
þess, að fram komi í sæmi-
lega sönnum og skýrum drátt-
um gerð hans og mótun.
Þau viðtöl, sem fjalla um sér-
stök mál, hafa oftast eitthvert
tímabundið gildi, jafnvel þó að
þau séu birt í áróðursskyni —
og ýmis þeirra geta reynzt
merkileg heimild fyrir þá, er
síðar vilja kynna sér sögu mála,
viðhorf þeirra, sem að þeim
stóðu, og almennan málflutn-
ing á opinberum vettvangi. Hin