Lesbók Morgunblaðsins - 30.03.1969, Síða 10

Lesbók Morgunblaðsins - 30.03.1969, Síða 10
 E itt ægilegasta vandamál samtímans eru umferðarslysin. í sumum háþróuðum löndum eru þau að verða viðlíka skæð- ur mannsbani og þeir sjúkdóm- ar, sem læknisfræðinni gengur erfiðlegast að fást við. Dauð- inn í umferðinni, bæði í borg- um og á þjóðvegum er víða orðin líkt og föst, viðtekin hefð, sem menn trúa ekki í fullri al- vöru að sé hægt að ráða bót á, fremur en óhagstæðu tíðarfari. Framferði bílaiðnaðarins, víð ast hvar í heiminum, hefur að segja má markast af fullkomnu ábyrgðarleysi; sú staðreynd hef ur einungis verið höfð í huga, að öryggi er ekki meðal þeirra hluta, sem fyrst og fremst ráða úrslitum um, hvort einn bíll selzt vel eða ekki. Hvergi hef- ur dauðinn á þjóðvegunum ver- ið ægilegri en í Bandaríkjun- um, og það má líka segja, að hinir stóru bandarísku fram- leiðendur hafi verið í farar- broddi um ábyrgðarleysi. í aug- lýsingum sínum hafa þeir lagt mesta áherzlu á vélarstærð, við- bragð og hámarkshraða og það var ekki fyrr en Ralph Nad- er skrifaði hina mjög svo um- töluðu bók: „Unsafe at any speed,“ að löggjafinn greip í taumana og hafa framleiðend- ur þar í landi verið skyldaðir til að taka upp mikilsverð ör- yggisatriði. egar litið er á okkar eig- in aðstæður, kemur í huga orð- takið, að fátt er svo með öllu illt, að ekki boði nokkuð gott. Við erum enn, því miður, með einhverja verstu þjóðvegi í öll- um heiminum, en fyrir bragðið er ekki hægt að aka á þeim með neinum viðlíka hraða, og tíðkast á steinsteyptum hrað- brautum erlendis. Tvenns kon- ar slys munu algeng_.st á ís- lenzkum þjóðvegum; annars veg ar útafakstur af ýmsum ástæð- um, einkum þó vegna þess að ökumenn missa vald á bílnum í lausamölinni utan hjólfaranna. Þá fer það eftir aðstæðum, hvað slysið verður alvarlegt: hvað kanturinn er hár, hvort þar er grjót o.s.frv. Hin megin orsökin er sú, að bílar aka saman á blindhæðum. Líklega eru blindhæðirnar flest um hættum hættulegri, sem fyrir koma á íslenzkum vegum, og hefur að vísu verið ráðin talsverð bót á þeim að undan- förnu með skiptingu. Blind- hæðaárekstrar verða oft mjög harðir, og þarf ekki mikinn hraða til að dauðaslys hljótist af. Er tveir bílar á miðlungs hraða, við skulum segja 50 km. á klst., rekast þannig á, verður höggið álíka mikið og þá, ef ekið væri á vegg með 100 km. hraða. ess er skemmst að minn- ast að nú í vetur hlutust dauða- slys og mikil örkuml og eigna- tjón af þjóðvegaárekstri hér sunnanlands. Þó var þar naum- ast um blindhæð að ræða, en sól lágt á lofti, snjóföl á jörðu, og skyggni þar af leiðandi tæp- lega sem bezt. Ökumenn virð- ast ekki hafa séð hvorn ann- an fyrr en á síðasta augna- bliki og í stað þess að ná bíl- unum út af veginum, sem sýn- ist vel mögulegt þegar hemla- för eru 30 metrar, virðast þeir aðeins hafa stigið hemla í botn og beðið þess er verða vildi. Það er athyglisvert, að annar bíllinn var í þessu tilfelli sterk- byggðari og hláut ökumaður hans að vísu meiðsli, en gat komizt til næsta bæjar eftir hjálp. f veikbyggðari bilnum, sem auk þess var með ónóg öryggistæki, létust báðir menn- irnir í framsætunum. Annar mun meira að segja hafa kast- azt gegnum framrú'ðu og langt fram fyrir bílirin. Eins og í fjölda mörgum álíka tilfellum má gera ráð fyrir, að allir hefðu sloppið lifandi, ef full- kominn öryggisbúnaðúr hefði verið fyrir hendi og hann not- aður. Skal nú lítillega minnst á sumt af því helzta, sem ör- yggissérfræðingar hafa ritað um í erlend blöð og mælt með sem sjálfsögðum hlut, ef menn vilja Er bíllinn þinn öruggt farartœki með góðum öryggisbúnaði, eða er hann viðsjárverð gildra, sem veldur dauða eða örkumlum, ef eitthvað út af ber. Gísli Sigurðsson tók saman. halda lífi, þegar óvænt slys ber að höndum. J. þessu sambandi er ærin ástæða að benda á, að sá bíll, sem hlýtur háa einkunn fyrir öryggi, hlýtur að teljast ein- hver sú bezta Iíftrygging, sem völ er á nú á dögum. í nú- tímaþjóðfélagi ferðast flestir eitthvað daglega á bíl, ýmist í borgarumferð eða á þjóðvegum, og það þýðir ekki að loka aug- unum fyrir þeirri staðreynd, að sá sem ekur um í óöruggum bil, ber litla virðingu fyfir lífi sínu og limum. Stundum getur jafnvel farið svo, að bráður dauði teljist eftirsóknarvert hlutskipti á móti limlestingum og ' ævilangri lömun. Hér er ekki um það eitt að ræða, að ævinlega sé nóg að fara var- lega sjálfur. Við erum ekki ein í heiminum, allra sízt í umferð- inni. Virðingarleysið fyrir aðal- brautarréttindum er ein algeng- asta slysaorsökin hér í þétt- býlinu, en stundum verða slys líka einungis vegna þess, að ökumaður virtist, þótt erfitt sé að skýra það, alls ekki hafa séð þann bíl, sem honum bar að vara sig á. Auk þess er og verður gálaus og ábyrgðarlaus akstur alltaf til, og sá mögu- leiki er jafnt fyrir hendi, að einhver slíkur glanni aki á hinn allra gætnasta ökumann og þá með hinum sorglegustu afleiðingum fyrir báða aðila. Líftryggingarfélögin selja mönnum líftryggingar, sem raunar koma ekki í veg fyrir að neinn deyi, en verða til þess að ekkjan lendir ekki á vonarvöl, ef eiginmaðurinn safnast óvænt til feðra sinna. Vilji menn hins vegar kaupa þá líftryggingu, sem líklegt er að lengi æfina, eða komi í veg fyrir að hjólastóll verði fastur samastaður, þá veit ég um fátt, sem jafnast á við fyllsta ör- yggisbúnað í bílum. HEMLAR OG ÚTSÝNI Öryggisatriðin eru tvíþætt: annars vegar þau, sem stuðla að því að koma i veg fyrir slys, og í öðru lagi þau, sem vernda ökumann og farþega sem bezt, eftir að árekstur eða slys er orðin staðreynd. Hin fyrirbyggj andi atriði felast einkum í tvennu: ótrufluðu útsýni á all- ar hliðar og góðum hemlum. Það er mjög mikilsvert að rúðu flöturinn sé hár allt um kring. Sú tilhneiging, sem gætt hefur að undanförnu að gera venju- lega fólksbíla sportlega í útliti, hefur haft það í för með sér að útsýni er stórlega hindrað, sérstaklega aftur á við. í þess konar bilum er stórum meiri hætta á óhöppum, sérstaklega í borgarumferð. Þá verður að teljast frumskilyrði að vinnu- Rover 2000 er einn öruggasti fjöldaframleiddi bíllinn sem völ er á. Sérstaklega styrkt stálgrind lykur um farþegarými en fram og afíurendi leggjast saman undan höggi. Mercedes Benz er framúrskarandi vel búinn frá öryggissjónarmiði og sézt hér hvað gerizt, þegar hann ekur á fullri ferð á annan kyrrstæðan. Fram og afturendi leggjast saman, hurðir haldast lokaðar, afturrúða annars fer í heilu lagi og farþegarnir (í þessu tilfelli brúður mcð öryggisbelti) gáfu til kynna að slys hefði ekki orðið á mönn um. - ;;:V' 10 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 30. marz 1969

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.