Lesbók Morgunblaðsins - 30.03.1969, Side 11

Lesbók Morgunblaðsins - 30.03.1969, Side 11
Stýrisleggur með öryggi, ameríska gerðin. Að ofan: Undir venjulegum kringumstæðum. Að neðan: Eftir árekstur. Bíll með stýrislegg án öryggis. Við árekstur hlyti þetta stýri að ganga í brjóst ökumannsins. Öryggisbelti með þrem endum. Önnur gjörðin nær upp yfir öxlina og hindrar að ökumaður skelii fram á stýri eða á rúðu. konur og rúðusprauta séu í fyllsta lagi, og það ætti að telj- ast nauðsynlegt að hafa blást- ur upp á afturrúðu jafnt sem framrúðu. Hemlarnir eru mikilvægasta öryggistæki bílsins; ekkert ann að getur ráðið öðrum eins úr- slitum um það, hvort komast má hjá óhappi eða slysi. Hinir venjulegu borðahemlar verða að teljast gamaldags og ófuli- nægjandi, og telja allir sérfræð- ingar, sem um þessi mál hafa ritað, að diskahemlar séu mikl- um mun öruggari og fljótvirk- ari. Helzit þurfa diskahemlar að vera á öllum hjólum en ekki er það talið skipta máli í þessu sambandi, hvort loftkútur fylgir hemlunum, sem gerir ástigið léttara. Diskahemlar eru með þeim hætti, að við hvert hjól er allstór málmdiskur og utan um hann grípa fíberklossar, þeg ar stigið er á fetilinn. Kostir diskahemla eru fyrst og fremst fólgnir í því, að þeir stöðva bílinn fyrr, að nokkru leyfi vegna þess að hjólin læsast aldrei. Og einmitt þessvegna verður bíllinn einnig stöðugri í rásinni á hættustund. Margar gerðir amerískra bíla hafa ein- ungis verið fáanlegar með diska hemlum væru þeir pantaðir sér staklega en nú munu þeir all- ir til með diskáhemlum að fram- an í venjulegri útgáfu. Það er að vísu til mikilla bóta, en engu að síður áframhaldandi hætta á, að afturhjól læsist með viðsjárverðum afleiðingum. Að- eins sex tegundir allra þeirra bila, er hingað til íslands eru fluttar munu vera með diska- hemla á öllum hjólum. Það eru Fíat (124, 125, og allar dýrari gerðir af Fíat) .Zephyr, Zodiac, Renault (8 Luxe og Renault 16) Volvo 142 og 144. Af þeim bílategundum, sem ekki flytj- ast til íslands en hafa diska- hemla á öllum hjólum má nefna Rover, Alfa Romeo, Lancia, Ferrari og Rolls Royce. Ástæða er til að taka fram, að hvorki diskahemlar né borða hemlar veita fullkomið öryggi, • nema um tvöfallt kerfi sé að ræða. Verði bilun á öðru kerf- inu, kviknar ljós í mælaborði og þessi búnaður á að geta forð- að manni frá þeim voða, að vera allt í einu hemlalaus, þeg- ar lífið liggur við. GERÐ OG STYRKLEIKI Á síðustu árum hafa menn öðlast mikilvægar upplýsingar um það, 'hvar bíllinn á að vera sterkur, og hvar beinlínis er betra að hann sé ekki um of sterkbyggður. í þessu skyni hafa farið fram vísindalegar rannsóknir og hafa tölvur ver- ið notaðar þar til. Þær bíla- tegundir, sem mesta áherzlu hafa lagt á öryggi á þessu sviði, t.d. Rover, Volvo og Mer- cedes Benz byggja nokkurs konar stálgrindarbúr utan um farþegarýmið og þetta búr er mjög sterkt og kunnáttusam- lega uppbyggt. Jafnframt er fram- og afturendi bílsins þann- ig uppbyggður, að þar lætur málmurinn auðveldlega undan, og hefur það stórkostleg áhrif til að draga úr höggi. Mörg dauðaslys hafa orðið með þeim hætti, að hurðir opn- ast og farþegar kastast út. Á nokkrum gerðum vandaðra bíla hafa verið útbúnar sérstakar læsingar með það fyrir augum að þetta geti ekki komið fyrir. Sé ramminn um farþegarýmið nægilega sterkur, eru mestar líkur til að sleppa óskaddaður frá árekstri, með því að geta haldið sig við sætið. En til þess að það sé hægt að einhverju gagni, þarf að sjálfsögðu ör- yggisbelti. BÚNAÐUR TIL VERNDAR Þá er komið að þeim hluta búnaðarins, sem verður til að bjarga ökumanni og farþegum frá meiðslum eða d-auða, þegar slys ber að höndum. Helztu framfarir bílaiðnaðarins upp á síðkastið eru einmitt fólgnar í þessum búnaði, og skal þá fyrst telja það sem þýðingarmest er, öryggisbelti. Allmörg ár eru liðin siðan það kom í ljós, svo ekki verð- ur um villzt, að menn ganga ómeiddir frá ótrúlega hörðum árekstrum hafi þeir haft ör- yggisbeltin spennt. Skýrslur frá Bretlandi herma, að líkurnar á alvarlegum meiðslum, eða þeim meiðslum sem leiða ti-1 dauða, minnki um allt að 80prs. þegar öryggisbelti eru notuð. En gall- i-nn við öryggisbeltin er eink- um sá, að fólk nennir ekki að nota þau, og það kemur að litlu gagni að hafa öryggisbelti í bíl, séu þau ekki notuð. Til eru einkum tvær gerðir belta: Gjörð yfir um mittið einvörðungu, og í öðru lagi belti með gjörð yfir um mittið og annarri gjörð sem liggur upp yfir öxlina. Það er sú gerð af öryggisbeltum, sem eindregið verður að mæla með, þar sem hún kemur í veg fyrir, að maður kastist fram á mæla- borð eða í framrúðu. Mörgum finnst fremur óþægilegt að hreyfa sig undir stýri með ör- yggisbelti, spennt, e-n það kemst í vana, og veitir mönnum jafn- vel sérstaka öryggiskennd, sem þeir vilja ekki vera án, þegar þeir fara að venj-ast því. En það er raunar sam-a hvað fyrir kemur; hvort bílnum hvolfir eða hann lendir í hörðum árekstri, fólk á ævinlega að vera betur sett með beltin spen-nt. Sumir eru haldnir þeim ótta að e.t.v. geti beltislásin-n orðið fastur, þegar mikið liggur við að kom- ast út úr bílnum, t.d. ef kvikn- aði í honum eldur. En beltis- lásarnir eru mjög einfaldir og það þarf aðeins að taka brot úr sekúndu að losa af sér belt- ið. Að sjálfsögðu þurfa aftur- sætisfarþegar einnig að hafa öryggisbelti og þeir sem á ann- að borð eiga bíla með öryggis- beltum, ættu að hafa fyrir fasta reglu að nota þau sem oftast og undantekningarlaust, þegar farið er út á þjóðvegina. STÝRI SEM EKKI DREPUR Þótt ekið sé með öryggis- belti verða þau ökumanninum lítt til hjálpar ef bíllinn er þannig búinn, að stýrið geti gengið inn við harðan árekst- ur. Óteljandi dauðaslys hafa átt sér stað með þessum hætti: það má líkja þessu við spjót, sem sífellt er beint að hjarta- stað ökumannsins. Og sé spjót- skaftið heilt og órofið, gengur það við áreksturinn í brjóst ökumannsins og drepur hann. Fyrir tveim eða þrem árum reyndu margar helztu bílaverk- smiðjur heimsins að ráða bót á þessu og nú er hægt að velja um álitlegan fjölda af bílum, með stýri sem ekki getur geng- ið inn við árekstur. Þá er ör- yggi á stýrisleggnum og er einkum um tvær gerðir að ræða: Þá amerísku, (stýrisleggurinn krumpast saman) og þá sænsku sem notuð er á Volvo (stýris- leggurinn gengur á misvíxl.) ÖNNUR ÖRYGGISTÆKI Höfuðpúðar telj-ast til þeirra öryggistækja, sem gott er að hafa í hverjum bil, og koma þeir í veg fyrir sérstaka teg- und meiðsla, sem verður þegar ekið er aftan á. Ökumaður og farþeg-ar í þeim bíl, sem ekið er aftan á, fá á sig mikinn slink; höfuð þeirra kastast aft- ur á bak og orsakast af því meiðsli á höfði og hálsi, sem stund-um reynist mjög erfitt að ráða bót á. Hins vegar hafa höfuðpúðar þá ókosti, að þeir hindra fremur útsýni. Ýmis minniháttar öryggistæki er einnig um að ræða, og öll geta þau verið gagnleg og átt sinn hlut í því að draga úr meiðslum. Þar má nefna bólstr- að mælaborð og stýri, innfelld handföng, og rofa í mælaborði, sem ekki er hægt að slasa sig Framh. á bls. 14 Höfuðpúðinn tekur við þeim slinki, sem höfuðið fær, Dæmi um það, þegar línurnar eru einar látnar ráða þegar ekið er aftan á bílinn. og útsýni stórlega hindrað að óþörfu. í Triumph er hún og rúðusveif óvenju hugvitsam- lega fyrir komið í gróp í hurðinni. 30. marz 1969 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS H

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.