Lesbók Morgunblaðsins - 30.03.1969, Page 14

Lesbók Morgunblaðsins - 30.03.1969, Page 14
ingunum árið 1960 hafi reyní einna mest á þolrifin, einkum vegna dætranna. Þær voru á viðkvæmum aldri, sú yngri var aðeins 12 ára, og þær tóku nærri sér árásir þær, er faðir þeirra varð fyrir af hálfu and- stæðinga sinna. Sjálf hefur Pat aldrei haft hug á að taka virk- an þátt í stjórnmálum, en hún hefur aldrei færzt undan því að fylgja manni sínum á kosn- ingaferðum og koma á kosn- ingafundi, þegar þess hefur ver ið óskað. Einu sinni stó£ til að hún flytti ræðu í hans stað, þegar hann hafði fengið svo slæma hálsbólgu, að hann kom varla upp orði. En á síðustu stundu batnaði honum nægileg til þess að tala, svo að ræða Pats er enn óflutt. S em forsetafrú hefur hún mestan áhuga á að stuðla að bættum aðstæðum þeirra manna sem vilja afla sér meiri mennt- unar. Hún segist ekki hafa neinar raunhæfar tillögur í því efni, ef til vill mætti nýta bet- ur húsakost og kennaralið en nú er gert, t.d. með því að hafa skólana opna á sumrin og á kvöldin, en ef hú.i geti á nokk- urn hátt orðið að Iiði, sé það helzt á sviði menntunar og hollra tómstundastarfa, sem hún kjósi að beita sér. En mest hlakkar hún þó til að sýsla í garði Hvíta hússins, því að garðrækt hefui alltaf verið helzta tómstundagaman hennar. — „ég er þó, þegar allt kemur til alls, dóttir garðyrkju- minns", segir hún. Sprengingin mikla Framh. af bls. 9 ingin hafi verið kjarnorkulegs eðl- is sagði hann ennfremur, en þau eru fundur amerískra vísinda- manna árið 1965 á miklu magni geislavirks kolefnis í viði frá ár- inu eftir sprenginguna. Þrír vís- indamenn, Nóbelsverðlaunahafinn Dr. Willard F. Libby og C. R. Atluri við Kaliforníuháskóla I Los Angeles og Dr. Clyde Cowan við kaþólska háskólann í Washington fundu sýnishorn í Douglas-furu frá Arizona og í eikartré, sem fannst fyrir utan Los Angeles. — Þeir kváðu hið geislavirka kolefni finnast í trjám þessum á árhringj- um frá 1909. ,,Það hefur verið úrskurðað að geislavirkt kolefni, sem fram kemur við kjarnorku- sprengingar í háloftum dreifist um andrúmsloftið allt í kringum hnöttinn á naesta hálfu öðru ári," sagði sovézki geimrannsóknarsér- fræðingurinn. Dr. Ziegel sagði, að enda þótt fullnægjandi rannsóknum á geisla virkni í Tunguska héraðinu hefði aldrei verið lokið væri gnótt ann- arra sannana um að sprengingin 1908 hefði staðið I sambandi við kjarnorku. Það væri vitað með vissu, að kraftur sá er leystist við kjarnorkusprengju ylli af- brigðilegum vexti í hvers konar lifandi frumum í nágrenninu. í Tunguska héraðinu hefðu sovézk- ir vísindaleiðangursmenn orðið þess vísari, að óvenjuleg grózka hefði hlaupið í tré og allan annan gróður eftir sprenginguna 1908. Þessa grózku gætu náttúruvísindi alls ekki skýrt á neinn viðunandi hátt, samkvæmt þeim lögmálum sem giltu um vöxt trjáa og plantna. Héraðið, sem sprenging- in átti sér stað ! var svo ein- angrað fyrir 60 árum, að þegar vísindin raunverulega gátu áltið til sín taka við rannsóknir var það álitið, samkvæmt þeirri grundvall arþekkingu, sem fyrir hendi var á þeim tímum, að um loftsteina- sprengingu hefði verið að ræða. Það var ekki fyrr en raunveru- legir vísindaleiðangrar voru gerð- ir til héraðsins, að sú skoðun tók að missa fylgi meðal sovézkra vísindamanna. Og það var vegna þess, að grundvallarsönnunina fyrir loftsteinafalli var ekki að finna, nefnilega, að það fannst enginn gígur. Auk þess fundust engar leyfar af loftsteininum, þrátt fyrir nákvæma leit og er það mjög óvenjulegt í þessu sam bandi. Þar eð einangrun Tunguska héraðsins kom í veg fyrir allar meiriháttar rannsóknir um langt skeið, álítur Dr. Ziegel að Rússar megi vera þakklátir fyrir að sprengingin varð á þessum stað. Hefði lítilsháttar seinkun orðið og loftfarið haldið lokastefnu sinni í vestur gæti sprengingin hæglega hafa orðið yfir Péturs- borg. „Af því hefði orsakazt hræðileg eyðilegging og mannfall," segir Dr. Ziegel að lokum. Líftrygging Framh. af bls. 11 á. Þá er það mikilvægt að fram- rúðan fari úr í heilu lagi við árekstur Með þeim búnaði er Mercedes Benz, og hinar dýr- ari tegundir af Volvó, en ekki er mér kunnugt um, hvort þess háttar ráður eru á fleiri gerðum bíla. Svíar hafa öðrum fremur ástundað leit að bættum örygg isbúnaði, og nýlega flutti eitt af dagblöðunum hér frétt um nýj- ar öryggiskröfur, sem gerðar verða í Svíþjóð í náinni fram- tíð. Samkvæmt þeim kröfum, standast aðeins tveir bílar próf- ið, Volvo 144 og Rolls Royce. Líklegt er að svipaðar reglur verði lögboðnar í fleiri lönd- um, enda geta þær ráðið úr- slitum um hvort bílar verða ör- ugg farartæki eða gildrur sem leiða til örkumla og da-uða. Að vísu er ekki hægt að ímynda sér að nokkur íslend- ingur hugleiði bílakaup eins og verðlagi er nú háttað. En þegar að því kemur að Íslendingum verður gert kleift að kaupa bíla að nýju, ættu væntanlegir kaupendur að líta á fleira en línurnar og vélarstærðina. Eng- inn ætti að kaupa bíl, sem ekki er með styrktu húsi, diskaheml um að framan að minnsta kosti, öryggi á stýrislegg, öryggisbelt- um, öruggum læsingum á hurð- um og bólstruðu mælaborði. Og að sjálfsögðu er ekki hægt að skilja svo við þessi mikilsverðu öryggismál, að ekki sé minnst á hjólbarðana. Bíll á slitnum dekkjum er ekki öruggur, hversu vel sem hann er búinn að öðru leyti. Þess ber að minnast að óslitin dekk auka á hemlunar- hæfni bílsins, og dekk með breiðum slitfleti ætti að öðru jöfnu að gera bílinn stöðugri. Allt þetta ættu bílakaupendur að hafa í huga. Þeir æbtu að minnast þess að þar dugar engan veginn að fara alltaf varlega sjálfur, heldur verður að brynja sig og það er of seint að iðrast eftir dauðann, eða þegar komið er í hjóla- stólinn. Beðið á ströndinni Framh. af bls. 2 mótað í hraun og hamra, hver hefur ekki séð eitthvað þess konar — minnsta kosti þegar hann var barn? Eða þá þessar undar'legu verur í skýjum him ins, já jafnvel í mosa, grasi og kjarri, — skyldu þær ekki vera eins og gamlir kunningjar úr draumi eða vöku? .. . Nú, — listamaðurinn sjálfur, víst hefur manni komið hann undarlega fyrir sjónir, þó að maður hafi ekki séð hann nema álengdar, og margt hefur maður heyrt um hann og eftir honum haft, sem gæti virzt benda til þess, að hann sé meira en lítið undar- legur ... En einhvern veginn fellur manni þetta ekki illa, hvað þá það komi á óvart, — sko, þegar maður hefur séð myndirnar, sérðu, og mann gæti svo sem meira en grunað, að sá vissi nú sínu viti og vel það . .. Þótt orðin hafi ekki fallið nákvæmlega svona, hygg ég, að þarna sé farið nokkuð nærri meiningunni, og ékki þætti mér ólíklegt, að þeir menn, sem þannig hafa notið listar Kjar- vals og getið sér til um gerð hans og vitsmuni í samræmi við það, læsu hina litlu, en ærið sérkennilegu og eftirminnilegu bók Matthíasar af mikilli at- hygli og ánægju, þótt þeir kynnu stöku sinnum að hrista höfuðið og stundum hætta lestr inum um hríð og sitja hugsi. „Þá mundi ég eftir því, að okkur vantaði efni í Lesbók- ina“, segir Matthías á einum stað í Kjarvalskveri, nefnir þetta sem tilefni þess, að hann hringir til Kjarvals og fær hann með sér út úr bænum. Ég hygg, að enginn, sem les „kverið“, telji sig geta vænt höfund viðtalanna um það, að hann hafi fyrst og fremst hitt viðmælanda sinn til að geta fyllt eyður í dálkum blaðs síns eða Lesbókarinnar. Hann hefur séð Kjarval og skoðað málverk hans allt frá því, að hann man eftir sér, og svo sem hann er skapi farinn og gáfum gædd ur hefur hann auðvitað snemma hrifizt af hinni sérstæðu og margslungnu list snillingsins — og maðurinn Kjarval, í ö'llum sinum sérleik, vakið honum undrun og eftirvæntingu þrungna forvitni. Ég veit ekki, hvenær persónuleg kynni þeirra hófust, en þá er Matthías hefur komizt að raun um, að hann átti greiða leið til slíkra kynna, einmitt komandi til dyranna eins og hann er klæddur, — barnslega hrifnæmur, hugkvæm ur, orðhvatur, sérkennilegur í orði og að nokkru í háttum, — hefur hann að sjálfsögðu sætt færi til eins tíðra samfunda og hann hefur haft á tilfinning- unni, að hann mætti leyfa sér, því að kynnin hafa síður en svo valdið honum vonbrigðum, eins og mörg dæmi eru til, að orðið hefur raunin, þá er dá- andi mikils listamanns hefur fengið uppfyilingu þeirrar ósk ar áð kynnast honum persónu- lega. Þvert á móti hefur Matt- hías fljótlega orðið þess meir og meir vís við hverja nýja samfundi þeirra Kjarvals, að persónuleiki hans er óþrot- leg uppspretta margvíslegra hug hrifa, hugsana og hugmynda sár viðkvæms, síleitandi og síspyrj andi listamanns, sem í djúpri auðmýkt og lotningu gagnvart viðfangsefnum sínum og skap- ara þeirra finnst hann aldrei geta fórnað sér svo algert fyrir túlkun þeirra, að hann fái gert þeim þau skil, sem þeim sé samboðin og hinum mikla gjafara köllunar sinnar og gáfna, — og svo fer þá ýmist einförum löngum og löngum eða á samfundum við menn varpar gjarnan yfir sig dul óræðra orða og afbrigðilegrar framkomu, en þó við og við bregður í leiftr- andi setningum birtu yfir við- horf sin til lífs og listar, þegar hann er á tali við mann, sem er svo lánsamur að hafa náð að vernda sitt barnslega undr- unar- og spurnareðli og jafn- framt finnur hjá sér hvöt til þess, sem Kjarval segir í einu viðtalinu, að menn séu „hrædd astir við nú á dögum — „að lífa menningar’lífi." Kjarval segir á öðrum stað í „kverinu“: „Það er móðgun við alnátt- úruna, þegar fólk sér eitthvað fallegt í henni og segir: Þetta er kjarvalskt." Svoleiðisfólk ætti að fá kárínur fyrir. f stað- inn fyrir að það ætti að segja eins og þeir í Brazilíuförunum, þegar þeir sáu eitthvað fall- egt: „Nú ætti bróðir minn að vera kominn og sjá þetta með mér.“ Ég fullyrði, að þarna sé orð- uð spaklega hvöt hvers náttúr- legs og nokkurn veginn sann- heilbrigðs listamanns ti'l birt- ingar þess, sem hefur heillað hann, hvort sem hann notar orð, tóna eða liti og línur, og svo mundi þá ekki þurfa lengra að leita orsakar þess, að Matt- hías tók að birta í fjöllesnasta blaði landsins þau viðtöl, sem nú gefst kostur á að lesa hvert af öðru í Kjarvalskveri. Við og við bregður þar fyrir skýrum og sérkennilegum mynd um af sjálfum höfundi viðtal- anna, en svo sem áður er að vikið, skyggja þau álls ekki á viðmælanda hans, heldur gera lesandanum það skiljanlegra en ella, hve vel höfundinum lán- ast í viðræðunum að koma lista- manninum í það skap, að hann telji ástæðu til að segja: „En nú skulum við fara varlega, því að við erum komnir út á hálan ís, það kemur margt út með munnvatninu, góði, þegar maður hefur einhvern að tala við“. Og það er margt spaklegt og forvitnilegt, sem „kemur út með munnvatninu,11 þegar 'lista- maðurinn man ekki eftir að fara nógu varlega, og skal hér aðeins vakin athygli á fáeinum setning um, sem lýsa hverja hann telur vera köllun sína og skyldu, sem listamanns — og raunar ekki aðeins sína, hcldur og sér hvers ærlegs og ábyrgs lista- manns. í framhaldi af því, sem hann segir um hræðslu nútíma mannsins við að lifa menningar lífi, farast honum þannig orð: „Það, sem við listamennirnir eig um að gera er aðeins þetta: að vera guði til ánægju og reyna að sannfæra fó'lk um, að það sé einhver tilgangur með þessu“. „Hvaða tilgangur?" spyr Matt- hías. Og Kjarval svarar: „Við spyrjum ekki um það, en við höldum alltaf að við séum að finna tilgang, lengra megum við ekki komast í bili. En náttúran sér íyrlr þvl, að það verði ekkl stoppað þarna, hugleiddu það, góði, það er ærið verkefni fyrir okkur, ef nánar er að gætt. . Hann er ekki alveg svona ó- vitandi um tilganginn, þegar Matthías spyr um foreldra hans. Þá svarar hann: „Þau voru ekkert minna en yfirnáttúr- legt fólk, sem var að koma ein- hverju á framfæri fyrir almætt- ið. Heldurðu við séum ekki um- boðsmenn almættisins, kæri vin ur, ojú, ekkert minna.“ En hann gerir sér það ljóst, að það er annað að vita þetta en að geta þjónað slíkri skyldu og köllun svo, að vel sé, jafn- vel þótt listamaðurinn sé fædd- ur af yfirnáttúrulegu foreldri, sem hann hefur með einhverjum hætti þegið frá gáfuna og um leið skylduna til að skapa þá list, sem í sé fólgin hans þjón- usta við almættið. Hann þekkir vanmátt sinn og hikar ekki við að játa það, úr því að hann er nú einu sinni kominn út á hinn hála ís: „Ég er nýbúinn að mála stóra steininn á Jökuldal, en maður nær þessu ekki alveg. Það er ekki alltaf hægt að gleðja guð, þó að viljinn sé góður.“ . .. Hann hefur verið kallaður „meistari" — og Matthías ger- ist svo djarfur að spyrja: „Ertu meistari Kjarval?“ Svarið er: „Nei, en ég er alltaf að leitast við að sanna mér, að meistar- inn hafi rétt fyrir sér. Ég er ekki meistari sjálfur, ég er fjósamaður hans.“ . . . Hann seg- ir svo rétt á eftir: „Ég hef eðli til að vinna, og það hef ég alltaf haft, en ég er ekki meistari." Nokkru áður í sama viðtali hefur hann sagt: „Menn ta'la um að njóta lífsins. Við- bjóður“ Það er einmitt á eft ir þessum orðum, sem hann tal ar um að fara varlega — og um hinn hála ís . . . Ójá, skyldi það ekki vera svolítið viðkvæmt mál, sem hann hefur þarna nálg ast? Ef maður á að halda sér við líkinguna um ísinn, mundi nær að segja, að þarna hafi ekki aðeins háskaleg hálka ver ið fram undan, heldur brestur í svellinu, jafnvel vök. í síðasta kafla Kjarvalskvers, viðbót, sem heitir Móðir, kona, meyja, víkur Matthías af aðdá- anlegri hófsemi, aðgát, varfærni — að þeirri þyngstu, þeirri dýr ustu fórn, sem hugsan'legt er að nokkur listamaður — gæddur mannlegum veikleika til að njóta fái fært þeirri köllun og skyldu að gleðja guð, — fórn, er á sinni tíð aðeins hún skildi, sem auk hans, er fórnina færði, var ein um að vita, hvað hún kost- aði, þessi fórn. Þegar aldraður maður lítur um öxl, geta honum virzt fjórir áratugir stuttur tími — og í lífi þjóðar eru þeir óumdeilan- lega aðeins örstutt stund. En það kynni að fylgja því nokk- ur kvöl, jafnvel hjá þeim, sem veifað getur vængjum göfugrar kö'llunar og dásamlegra listar, að troða fórnareld slíka smá- stund og finna og sjá sífellt loga flugfjaðrir síungrar ástar — án þess þó að þær brenni — frekar en þyrnirunninn forð um ... „En ströndin bíður, þögul,“ þetta eru síðustu orðin í Kjar- valskveri, og biðin styttist og styttist. Og kannski verður það ekki einu sinni leyft, þegar þangað kemur, að fórna því, sem fjörutíu ára fórnareldur hefur ekki náð að brenna? 14 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 30. marz 1969

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.