Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 12.10.1969, Qupperneq 10

Lesbók Morgunblaðsins - 12.10.1969, Qupperneq 10
SVIPMYND NORMAN MAILER N. , ■i'u arar vel hjá Norman Mailer. Eftir skrykkjóttan fer- il sem skáldsagnahöfundur hef ur hann haslað sér völl sem frumlegasti fréttaritari í Banda ríkjunum, unnið verðlaun fyr- ir frásagnir sínar af pólitískum ráðstefnum árið 1968 og mót- mælagöngu að Pentagon vegna Vietnam-málsins. Nú nýlega lagði hann síðustu hönd á nýj- asta ritverk sitt, söguna um geimfarana og tungllendingu þeirra. Þessi úfni sköpunarandi frá Brooklyn getur varla talizt dæmigerður Ameríkumaður. En á áratug þar sem landið hefur, eins og Mailer orðar það „öskr að eins og helsært naut“, virð- ist hann hafa lýst með orðum og gerðum meira af ótalaðri hugsun, þrá og kvöl lýðveld- isins en nokkur annar ein- staklingur, að sumum forsetun um meðtöldum. Skoðanir hans eru, að vísu, mjög flokksbundnar og mótað- ar af hams eigin fremur rugl- ingslegu tegund gerbótastefnu. Engu að síður eru þær ófrá- víkjanlega og einlæglega al- amerískar í anda. Beizkar vissu lega, fyndnar, klúrar, oft uppi- vöðslusamar, en þær láta í ljósi þá löngun sem jafnvel harð- svíraðasti republikani getur fundið fyrir eins og gigtarverk í beinunum. Hann er tengdur landi sínu sterkum böndum, en jafnframt ofsalega frábitinn þeirri braut, sem það er á. Mailer er þraut- seigasti túlkandi samtímans á hinum ameríska draumi. Ein- hvers staðar ininira með homium er rómantísk, Whitmönsk til- finning fyrir sígrænum, blund- andi möguleikum lýðveldisins — vonin um siðferðisgöfugt landnemalýðræði, sem bíði upp götvunar handan við næsta götuhorn. En skarpskyggni hans — „hæfileikinn til að koma auga á pólitíska hnign- un“ eins og einn gagnrýnand- inn orðar það — segir honum að Draumurinn sé orðinn að draug, sem vekúr til skiptis skelfingu og vonbrigði. Hann veitir athygli siðferðilegum á- hrifum Vietnam deilunnar, upp þotum svartra og viðbrögðum hvítra, ómennsku og stjórn- leysi borganna en þó einkum þeirri staðreynd, að hin póli- tíska mannfórnavél hindrar all ar aðgerðir í þessum málum. Óþarfi er að minnast á að aðrir og hæfari gáfumenn en Mailer glíma að staðaidri við þennan vanda. Sérstaða Mailers er í því fólgin að hann tekur glöp og galla ættjarðar sinnar sem persónulega smán, högg í kviðinn. Ringlun og vanlíðan hins ameríska þjóðfélags tekur hann til sín: gæti hann aðeins kveðið niður þennan draug myndi hann læknast. Nánast hver bók og pólitísk útrás, sem komið hefur frá honum er enn ein lota í hinum endalausa bar- daga. Hann gengur á hólminn í hvert skipti með örþrifabjart- sýni fyrrverandi meistarans, sem vill reyna aftur við titil- inn. Hann kreppir málfarið, sveiflar setningunum, stundum með erfiðismunum og slær vind högg en hittir oft beint í mark. Þégar bjallan tilkynnir leiks- lok og heimsmeistaravofan er enn uppistandandi, hin sið- lausa Ameríka enn jafn sið- laus, dregur Mailer andann djúpt og býr sig undir að reyna aftur frá annarri hlið. Hann vantar sannarlega ekki þol. Sem rithöfundur hefur hann töluverðu af að státa þetta ár- ið. Fyrir frásögn sína „Armies of the Night“ af göngunni til Pentagon, hlaut hann Pulitzer verðlaunin og National Book viðurkenninguna. Saga hans af tungllendingunni færir honum að líkindiuim um 800.000 doll- ara í aðra hönd fyrir bókarút- gáfu og kvikmyndunarrétt. En á mælikvarða eigin framgirni á hann þó enn langt í land. Fjöru tíu og sex ára gamall er hann enn sami umbrotamaðurinn og innhverfi leitandinn þótt væg- ari sé en fyrr á árum, staðráð- iinm í að skirifa einhvem tíma skáldsöguna miklu, sem á að „breyta meðvitund okkar tíma“. Þótt rangsnúið kunni að virð ast einbeitir hann sér samt ekki að þessu verkefni, held- ur eyddi kröftum í að þramma um götur borgarinnar síðastlið ið sumar í kosningabaráttu um borgarstjóraembættið í New York (og léttdst um sjö kíió á meðan). Sú barátta var von- laus frá upphafi, og úrslitin þar sem Mailer hlaut aðeins fimm prósent atkvæða í útnefn ingu demókrataflokksins, voru nákvæmlega eins og við var búizt. M frlailer ólst upp í Brooklyn, New York, sonur fátæks bók- haldara sem var Gyðingur. Fjölskyldan nurlaði saman næg- um peningum til að senda hann á skóla í Harvard. Þar las hann flugvélaverkfræði en gekk með „gelgjulega ást“ á þeirri hugmynd að verða rit- höfundrur. Hciirm sigraðii í smá- sagnasamkeppni og skrifaði eina mjög lélega skáldsögu áð- ur en hann var kallaður í her- inn árið 1944. Útkoman varð „The Naked and the Dead“, allmögnuð og raunsæ saga, mikið skuldbund- in Hemingway, Dos Passos og öðrum slíkum átrúnaðargoðum höfundarins. Að vissu leyti var hún success d’obscéne eða sig- ur ruddaskaparins, þar eð hún vakti skielfiogu suimna vegmia mikillar notkunar dónalegra orða, en seldist hinu vegair í 250.000 eintökum, hlaut mikið lof gagnrýnenda og skaut Mailer upp á tindinn 25 ára gömlum. Það segir mikið um ráðvendni hans sem rithöfund- ur að honum var þvert um geð að komast þangað svo snemma, vitandi að hann átti margt betra ógert. Gagnstætt öðrum skáldbræðr um sínum hefur Mailer aldrei sótt innblástur að neinu ráði í gyðinglegan uppruna sinn. Þar sem þetta vantaði, eyddi hann um miðbik rithöfundarferils síns löngum stundum í ákafa sjálfsgreiningu, leit að vísi að einhverju stóru. Hann sökkti sér niður í dulrænt afbrigði Marx- isma. Úr þessu varð önnur skáldsaga, „Barbary Shore“, sem féll ekki í góðan jarðveg hjá gagnrýnendum og sama varð uppi á teningnum með næstu bók, „The Deer Park“, vonbrigðasöguna um Holly- wood, sem hann var í fjögur ár að skrifa og endurskrifa og átti í miklum brösum um við útgefendur varðandi takmörk sóðaskaparins. Hann telur hana enn sína beztu bók og sú ónáttúra gagn rýnenda að verða ekki hrifnir af henni líka, rak enn á eftir honum í glímuna við eigin von- ir og vonleysi. Frami, frægð og endemi Mailers hafa að miklu leyti haldizt í hendur en á þessu tímabili fékk hið síðast- nefnda nokkuð forskot. Fregn- ir gengu af vínstofuryskingum og árás á siðari eiginkonu hans. Næstu bækur hans voru safn ritgerða, hugleiðinga og sjálfskoðandi bollalegginga, eins og „Advertisement for my- self“ og „Presidential Papers“. Mailer lítur í ríkara mæli en aðrir rithöfundar á verk sín sem læknandi skriftastól, að- gerð til að staðsetja sjálfan sig sem rithöfund í pólitísku um- hverfi. Af þessu stafar hin undandráttarlausa bersögli, sem éinkennir ritgerðir hans og jafnframt hið atburðaríka félagslíf hans. Þessi hreinskilni er annað og meira en angi af sannleiksást Georgs Washing- tons. Hún felur í sér vott ör- væntingar, þá tilfinningu að ef hann slái af andartak muni hann kafna í því mollulofti úr- drátta og hálÆlygia sem krimg- um hann er. Eðlilegt væri að þetta eyðilegði alla vináttu en það virðist það ekki gera. Aft- ur á móti getur það spillt verk- um hans. Eigi hann að velja um listrænan aga eða það að viðra ára sína og gefa þeim lausan tauminn, mun Mailer ávallt taka síðari kostinn. í einni bóka sinna minnist Mailer þess að vera vakinn með fréttinni af morði Bobby Kemmiedyis. Skefltfimiganóp hamis: „Nei! Nei!“ er átakanlegt. Það er ósvikið og kemur frá hjart- anu, og dæmigert fyrir Mailer. En sama er að segja um óþarfa og óviðeigandi frásögn hans af því, að síðari hluta þessa sorg- ardags hafi hann varið í fram- hjáhaldi. Þetta er sú tegund sálar- fræði, sem gert hefur hann að eins kioniar heitju aillkia hiruna ungu byltingarsinna, þjóðfé- lagsandstæðinga, hippía, eitur- lyfjaneytenda, svertingja, mót- mælastúdenta, þeirrar skugga- hliðar menningarinnar, sem hneigist til samhengislausra öfga. Mailer tekur meistara- hlutverkinu með kímni og lítil- læti. En hann varast að fylla neinn flokk er gæti haft áhrif á hreinskilni hans sem einstakl ings. Hann er eins manns mun- aðarleysingjahæli, sem er reiðubúið að taka við öllum olnbogabörnum lýðveldisins. Hann hefur að nokkru leyti fært í búning hugmyndir þess- arar neðanjarðarmótspyrnu. Fréttabækur hans, „Armies of the Night“, og „Miami and the Siege of Chicago", (um ráð- stefnurnar) sýndu hann upp á sitt bezta. í báðum bókunum nefnir hann sjálfan sig „frétta- ritarann", en eins og einn am- erískur gagnrýnandi segir, „enginn nema skáldsagnahöf- undur gæti skrifað mannkyns- sögu svo gáfulega, glettna, hnit miðáðia og iiifamidi, svo mionainidi af mannfólki á hinu mikla sviði, sem er bandarískt lýðræði . . . “ Þessar bækur hefði enginn get að skrifað nema Mailer, vegna þess að í þeim er litið með von- gleði og þó með illu auga á trosnaða jaðra Draumsins. Hann getur virt fyrir sér að- stoðar útfararstjórann Tricky Dick með móðgandi nákvæmni en samt verið vongóður vegna þess að forsetinn Nixon virðist hafa lært eitthvað um sjálfan sig, hafa hlotið örlitla synda- lausn. Hann langar að finna til með Euigene McCarthy, hinum heilbrigða og réttsýna frjáls- hyggjumanni, en Mailer hrekk ur enn frá — hinn dyggðugi vegur frjálshyggjumannanna er honum of auðveldur. 10 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 12. ofctóbeir 1969

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.