Lesbók Morgunblaðsins - 02.11.1969, Page 14

Lesbók Morgunblaðsins - 02.11.1969, Page 14
VIÐ erurn stundum minnt á þá bjartsýni, sem menn segja, aö hafi ríkt um aldamótin síðustu. Það hafði verið vorhugur, líkt og eftir harðan vetur og von um betra líf í einu og öllu, jafnvel vissa. Sú vissa byggðist að verulegu leyti á því, að tœknin mundi skapa betra og fegurra líf meö því að létta af fólki þeim gífurlegu byrðum erfið- is, sem þá voru jafnan samfara lífs- baráttunni. Norðanmenn, sem gengu til sjó- róðra undir Jökul og Skaftfelling- ar, sem héldu á hestum sínum yfir óbrúuð fljóf til að sœkja sér nauð- synjar út á Eyrarbakka, þeir hefðu ugglaust trúað því, að framtíð flug- véla og bíla og annarra vélknú- inna farartœkja mundi bera sjálfa hamingjuna í skauti sér. Og þótt enn lifi þriðjungur aldarinnar, hef- ur víst allt það verið fundið upp, sem vísindamenn aldamótanna dreymdi um. Nú finnst okkur, að möguleikinn til að lifa mannsæm- andi lífi hvíli á tækninni. Hvers konar líf vœri án rafmagns, án síma, án útvarps, flugvéla, bíla og allra þeirra óteljandi smáhluta, sem við notum daglega og eru af- kvæmi tœkninnar. Meira að segja höfum við beizlað kjarnorkuna og komizt til tunglsins. Er það ekki kóróna þessa mannlega sköpunar- verks? Ef til vill, en engar rósir eru án þyrna. Með beizlun kjarnorkunnar til hernaðarþarfa varð fyrst alvar- lega vart við ugg um framtið mannsins. á jörðinni. Menn eygðu þann möguleika, að hin merka upp- gatvun kynni að útrýma mann- kyninu, þar sem félagslegur þroski tœki litlum framförum og væri engan veginn samferða tœkni- legum nýjungum. Skáldin höfðu miklar áhyggjur af framvindunni; þau ortu mikið um Sprengjuna á fimmta og sjötta áratugnum en ein- hverra hluta vegna er það minna nú orðið. Menn vissu, að andstœð stórveldi geymdu atómsprengjur í eldflaugum og svo að segja með einu handtaki var hægt að taka í þennan ógnvekjandi gikk. Þannig hafa ár hinna gagnkvœmu ógnana liðið og nú er sjaldnar minnst á þennan háska en áður. En nú er víða farið aö tala um nýj- an voða af völdum tœkninnar; voða, sem jafnvel kynni að ráða miklu um framtíð mannkynsins. Þessi nýuppgötvaða hætta er fólg- in í þeirri gífurlegu mengun vatns og andrúmslofts, sem nú á sér stað. Skáldin hafa að vísu ekki ort svo mjög um þennan voða, en sumir vísindamenn hafa aftur á móti tek- ið djúpt í árinni og sagt, að lífs- skilyrði gœtu víða orðið mjög óviss eftir 1980, ef ekki verði snarlega tekið í taumana. Óþyrmilegast verða háþróaðar iðnaðarþjóðir fyrir barðinu á meng uninni, enda valda þær mestu þar um. Nýlega var greint frá því í fréttum, að súrefni í Rínarfljóti vœri komið niður í fjórðapart af því sem verið hafði, enda er nú svo komið, að fiskar fljóta þar upp, dauðir. I Bandaríkjunum er Michi- hverjum fiski útrýmzt af sömu LLUUUI/I . i1 X-IU.fl/U-U// UIIUIIV t / ganvatn orðið ólíft hverji j og sundfugl hefur útrýmzt ástœðum. Úrgangsefnum frá stór- iðjuverum er veitt í vatnið úr öll- um áttum og allir sjá þann vanda, sem hér er upp kominn, en ekki þykir auðvelt úr að bœta. í stórborgum heimsins er and- rúmsloftið forpestað af sóti, reyk og kalsýrinai frá útblœstri bif- reiða. Ennþá er bensínhreyfillinn allsráðandi og hvorki vilja einstakl ingarnir afsala sér þægindum, né heldur að hinir voldugu iðnaðar- stólpar vilji neinu fórna af hagnaði sínum til framleiðslu á vél, sem ef til vill vœri ekki eins kraftmikil og stœðist þar af leiðandi ekki sam- keppni. í áratugi hafa menn verið sannfœrðir um, að rafhreyfill sé hin heppilegasta lausn til að frelsa heiminn frá útblástursgasinu, en allt um það virðist auðveldara að komast til annarfa hnatta en að fullkomna hann. Þegar Thor Heyerdal sigldi á papírusbátnum Ra langleiðina yfir Atlantshafið í sumar, veitti hann því athygli sér til mikillar furðu, að víða var úthafið eins og forar- pollur þar sem olíubrák og hvers kyns brak flaut í þykkum flekkj- um. Þannig getur jafnvel hafið misst lífsmagnið. Vélamenningin er náttúrunni fjandsamleg og að veru legu leyti stendur það í sambandi við þau úrgangsefni, sem verða við bruna. En raunar er víðar pottur brotinn: Skordýraeitur hefur verið notað í óhófi án þess að séð verði fyrir endann á afleiðingunum og við þurfum ekki annað en að ganga á nálægar fjörur til að sjá plast- brúsaflekkina, sem ekki rotna. Annars má segja, að við höfum ekki mikið af mengunarvandanum að segja, borið saman við sumar iðnaðarþjóðir. Ennþá er tœrt eða að minnsta kosti ómengað vaitn í flestum ám á fslandi og nœðingur- inn flytur óðar burtu þá óveru, sem hér verður til af mengun á and rúmslofti. Samt er sjálfsagður hlut ur að vera á verði, hvar sem meng- un getur orðið í umhverfinu og fleygja ekki gerviefnum á fjörur og viðavang, þar sem þau fljóta eða fljúka um án þess að eyðast. Gísli Sigurðsson. Lausn á síðustu krossgátu 14 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 2. mióvember 1960

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.