Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 12.04.1970, Qupperneq 3

Lesbók Morgunblaðsins - 12.04.1970, Qupperneq 3
Islenzk skáldsagnaritun eftir 1940 — 10. grein EFTIR ERLEND JÓNSSON INNI MILLI FJALLANNA BÓKMENNTIR - LISTIR Guðmundur L. Friðfinns- son fæddist á Egilsá í Norð- urárdal í Skagafirði (1905), nam í héraðsskóla og búnaðar- skóla og gerðist upp frá því bóndi á föðurleifð sinni og hef- ur því alið næstum allan ald- ur sinn á sama blettinum. Guð- mundur var orðinn hálf- fimmtugur, þegar hann sendi frá sér fyrstu bókina, unglinga bók. Síðan hefur hann sent frá sér: aðra unglingabók, eina bók með æviminningum og aðra með sagnaþáttum, þrjár skáld- sögur og eitt smásagnasafn. Máttur lífs og moldar (1952) heitir fyrsta skáldsaga Guð- mundar, meðallöng og „breið“ skáldsaga af gamla skólanum; sveitalífslýsing í ætt við Upp við fossa, Heiðarbýlissögurnar og fleiri slíkar; viðburðarík frásaga, persónur margar og sögusvið skýrum dráttum dreg- ið. Og á að gerast um síðustu aldamót, þegar sveitirnar eru að vakna af dvala, jarðrækt að hefjast og kaupfélög að rísa á fót. Aðalsöguhetjurnar eru ung hjón, sem stofna bú, þar sem áður var eyðibýli; byrja með tvær hendur tómar, en vinna sig upp með samheldni og dugnaði, svo þau verða veit endur í sveit sinni, virt af góðu fólki. VancValaust er að eygja galla á þessu verki, sé eftir þeim skyggnzt. Þetta er frum- raun. Höfundurinn er að þreifa fyrir sér. Hvað á heima í sögu, og hvað á þar ekki heima? Hvað ber að ýkja, og hverju ber að stilla í hóf? Þvilíkur vandi steðjar sýnilega að höf- undi Máttar lífs og moldar. Guðmundi tekst ekki að leyna erfiði sínu. Fyrirhöfn hans vegna formsins verður of aug- ljós. Söguþráðurinn verður með köflum of reyfaralegur og stíllinn óþarflega „skáldlegur“. Stundum er of lítið gefið til kynna, en of mikið sagt, svo jaðrar við barnaskap. Snöggt- um fleira er þó jákvætt um söguna að segja. Með hliðsjón af, að um frumraun er að ræða, hefur Guðmundur víða náð góðum tökum á þeim ljóðræna stíl, sem hann er að temja sér. En þess konar stíll fellur ein- mitt vel að rómantískri draum- sjón sögunnar, sem er fagurt mannlíf í skjóli gróskumikillar náttúru. Kaflarnir um tilhuga- líf hjónaefnanna í fyrsta hluta bókarinnar eru fagur skáldskapur, svo dæmi sé tekið, og þó ekki til lýta fegraður. Frásagnimar af lífsbaráttunni í dalnum eru þróttmiklar og hugnæmar; geta minnt á Gróð- ur jarðar Hamsuns og önnur verk af því tagi: erfiðið göfg- að og einfalt líf hafið til vegs. Flestu, sem taldist til sveita- lífsins — auk daglegrar lífsbar- áttu — er með ágætum lýst, svo sem nágrannakryt eða að hinu leytinu samhjálp ná- granna, ferðasvalki, gestakomu og öðru, sem lyfti huganum upp frá önn hversdagsins, því óverulegasta tilbreyting taldist viðburður í fásinni dalsins. í fáum orðum sagt er bjart yfir þessari fyrstu skáldsögu Guðmundar — þrátt fyrir aug- ljósan viðvaningsbrag. Hvergi leynir sér ást hans á efninu, vilji til að gera vel, trúnaður við þann málstað, sem er honum hugstæður, og að lokum hæfi- leikar, sem brjótast þarna fram í skemmtilega frumstæðri, en um leið ósvikinni, ferskri mynd. Skáldsögu þeirri, sem Guð- mundur sendi næst frá sér — Leikur blær að laufi (1957) heitir hún — svipar til hinnar fyrstu, en tekur henni ekki fram, nema síður sé. Er það — eins og Máttur lífs og moldar — saga úr gamla tímanum í sveitinni með þeim lifnaðar- háttum, sem honum byrjar: ein- um „Jóni ríka“; girnilegri heimasætu, sem er flestum hugs anlegum kostum búin og mikill- ar ástar verð; biðlum, sem eru annað tveggja: af heldra standi eða íturvaxnir og glæsilegir (því miður fer það ekki sam- an); kitlandi stefnumótum og launungarmálum; ástarbréfum, sem misfarast; háskalegum freistingum og að lokum sár- þráðum endurfundum. Út af fyrir sig er þessu efni þokka- leg ákil gerð, málfar vandað, náttúrulýsingar hugljúfar. En sögumið er óljósara en í Mætti lífs og moldar, og um frum- leika er enn síður að ræða. Söguþráöurinn og meðferð hans minnir á eldhúsreyfara, sem stældir hafa verið eftir Pilti og stúlku og Manni og konu annars vegar (það er að segja ástarrómantíkinni í þeim sögum, ekki öðru) og þýddum skemmtisögum hins vegar. Þjóð- lífsmyndin, sem gæti verið trú- verðug í sjálfu sér, er viðhöfð sem baksvið fyrir væmnar ást- arsenur einungis. í rauninni er þessi önnur skáldsaga G uð- mundar einkar glöggt dæmi þess, hve eðlisgreindum höf- undi verður smátt úr efni og tekst lítt að laga það í hendi sér, lúti hann um of lögum dauðrar og löngu úreltrar tízku. Enda þó Guðmundur væri orðinn fulltíða maður og vel það, þegar hann sendi frá sér fyrri skáldsögurnar, hljóta þær að skoðast svo sem byrj- andaverk. Öðru máli gegnir Um þriðju og síðustu skáldsöguna, Hinumegin við heiminn (1958). Sjónhringur Guðmundar hefur þá drjúgum víkkað, tök hans á stíl og efni bera með sér traustleika kunnáttunnar; hann er orðinn fagmaður í rit- listinni. Efnið í þessa þriðju skáld- sögu sækir Guðmundur sem fyrr í sveitalífið. En sveitin er ekki lengur lokuð veröld eins og í fyrri sögunum. Hún er nú partur af stærra heimi. Og tíma bil sögunnar er nær samtíð- inni en tími fyrri sagnanna: bílaöld er að hefjast. Bnnfrem- ur er tekið mið af þeirri félags legu þróun, sem átti sér stað á sama tíma: eyðing afskekktra byggða. Fólkið flyzt brott. Býli fara í eyði. Og þeir fáu, sem eftir þrauka, búa fáliðaðir, ef ekki aleinir á jörðum sínum, en allra helzt kvenmannslausir. Hinumegin við heiminn er saga af einyrkj a,, sem svo er ástatt fyrir. Börkur Arason heitir hann og segir söguna, gamall maður við upphaf og endi bók- arinnar. En meginsagan er svo endurminningar hans, raktar frá því hann man fyrst eftir sér í kotinu, barnið; síðan unglingsárin, þá frumvaxta mað ur með sætleika vorsins í blóði sér, og loks fullorðinsárin, sem bera hann, næstum án þess hann viti af, inn í skugga ell- innar. Á uppvaxtarárum Bark- ar var hver bær byggður; vin- ir og jafnaldrar allt um kring; mikil glaðværð; fyrirheit; ást. Ungur verður Börkur hug- Framhald á hls. 13 Tadeusz Rosewicz Veggurinn Hún sneri andlitinu að veggnum samt elskar hún mig hvers vegna sneri hún þá andlitinu að veggnum með einni höfuðhreyfingu er unnt að hverfa úr heiminum þar sem spörvar tísta og ungir menn reika með skrautleg háilsbindi nú stendur hún ein upp við nakinn vegginn og þannig mun hún standa með andlitið upp að veggnum sem teygist hærra og hærra lítil og grönn með krepptan hnefann og hér sit ég með fætur úr steini ég ber hana ekki burt ég lyfti henni ekki upp sem er léttari en andvarp Þýð.: GuSmundur Arnfinnssori. 112. apríl 1970 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 3

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.