Lesbók Morgunblaðsins - 12.04.1970, Síða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 12.04.1970, Síða 6
Guðlaugur Guðmundsson „Tveir eru farnir að rífast eins og hundar og aðrir tveir standa og horfa á“ Hvað gerðist á Kili? Höfundur bókarinnar um afdrif Reynistaðarbræðra, leggur orð í belg og segir frá því, er miðill sá á Kili Teikning' eftir Halldór Pétursson úr bók Guðlaugs um afdrif Reynistaðarbræðra. Bræðurnir bornir í klettaskoruna. Guðlaugur Guðmundsson Undainfarma 'V'etrannámuði hefur mikið verið ritað í Les- bók Morgunblað-sins um afdrif Reynistaðarbræðra, og virðist svo sem bók mí-n, „Reynistaðar- bræður“, sem út kom árið 1968, sé ein meginorsök þessara Skrifa, er sum hafa gengið það langt, að tveir ágætir menn hafa deilt af hörku. Nú er mér ljóst, engu síður en þegar ég skrifaði bókina, að aldrei verð- ur fundinn endir, sem alldr geta fellt sig við, enda enginn til frá- sagnar, er sannað geti eitt eða neitt í því máli. I>ví hefur hver og einn leyfi til að mynda sér sína skoðun um þennan hörmu- lega atburð, án þess að aðrir þurfi af þeim sökum að rjúka upp í hugaræsingi. Finnst mér og, að menn ættu að hafa það að leið-arljósi að vera mannleg- ir og sanngjarnir í dómum sín- um. Þegar ég fyrir nokkrum ár- um för að hugsa um þennan atburð og lesa mér til um hann og málaferlin, sem honum fylgdu, í gömlum sögnum (einna helzt frásögnum Gísla Konráðssonar, sem mér fundust vera fyllsta-r), leitaði ég svars við ýmsum spurningum, er vöknuðu í huga mínum, eins og t.d. þessari: Hvað gat komið þeim Jóni, Sigurði og Birni, heimamönnum og landsetum Reynistað'arhjóna, til þesis að fara að burðast með hálfrotn- uð lík sona þeirra hjóna og fela þau, svo að þau fengu ekki kristilega greftrun, en það var þá, ekki síður en nú, mög þýð- ingarmikið atriði. Og hverju voru þeir nær að hylja stuld á þennan hátt, hafi nökkru verið að stela? Þegar nánar er athugaður æviferill þessara ungu manna, Björns og Sigurðar, sem grun- aðir voru um ódæðisverkið á Kili, kemur í ljós, að þeir urðu síðar fyrirmenn og mannasætt- ir hvor í sinni sveit. Tómas á Flugumýri og menn hans töldu sig hafa séð 3 lík í tjaldinu. Þá vantar eitt. Mætti ekki ætla, að þeir hefðu talið víst, þegar þeir fundu tjaldið, að þeir félagar allir lægju und- ir því? Tjaldskörin er semlímd við jörðina og tjaldið loftþétt. Mennirnir lyfta upp tjalds-kör- inni og á móti þeim gýs ægileg nálykt af rotnandi líkum. Er þá undarlegt, þótt athygli þeirra hafi eitthvað brenglazt við slíkar aðstæð-ur, og þeir jafnvel séð ofsjónir? Enda virð ast þeir hafa lokað tjaldinu aftur hið skjótasta og þá sjálf- sagt slegið því föstu um leið, að þarna væru þeir allir, án þess að athuga málið frekar. Hvernig átti ég nú að leysa úr þessum spurningum? „Farðu á miðilsfund," sagði kunningi minn eitt sinn við mig, er við spjölluðum um þetta. Ég fór að hugleiða málið, hafði samband við Hafstein Björnsson, miðil, og bað hann að koma með mér upp á Beina- hól og vita hvers hann yrði þar var. Hann tók vel í þetta en aldrei fékk hann tíma til að fara í þessa ferð. í stað þess lofaði hann mér einkafundi við tækifæri. En hugmyndin um að fara með miðil upp á Beinahól leið mér ekki úr minni, og loks komst ég í samband við konu, sem var til í að reyna þetta. Það var einn laug-ardag í ágústbyrjun sumarið 1966, að við lögðum upp þrjú saman. Segir ekki af ferð okkar fyrr en við komum upp á sandauðn- ina fyrir ofan Gullfoss, nokkru áður en komið er að Sandá. Þar komst konan í mið- iilsástand og horfði hálfluktum starandi augum ú-t yfir auðn- ina, yfir Hvítá að því er mér virtist. Síðan fór hún að tala, eins og henni væri mjög mikið niðri fyrir. „Þarna fara þeir og reka féð eins hratt og þeir geta. Þeir eru mjög óværir og al-lhressir, já, hálffu-llir sumir hverjir. Það er ungur drengur með í hópn- um. Hann er svo dapur og á eitthvað svo bágt.“ „Hvað eru mennirni-r marg- ir?“ spurði ég. „Þeir eru þrettán.“ „Hvaða menn eru þetta og hvert eru þeir að fara?“ „Þeir ætla yfir fjöllin, það er að segja ekki allir, því að sumir eru að fylgja þeim áleið. En nú sé ég heim að Reyni- stað, þangað sem þeir ætla. O, hvað fólkið er dapurt, og gamla konan raular sorgarljóð við rokkinn sinn.“ Konan hélt áfram að tala. „Nú taka sig tveir menn úr hópnum og ríða heim að bæn- um. Þeir tal-a við bóndann á hlaðinu, snúa síðan við og hverfa aftur til sinna m'anna." Þegar hér var komið fannst mér þetta lítið sannfærandi, því að ég hafði aldrei heyrt getið u-m neinn bæ þarna langt fyrir ofan Gullfoss og helduv hvergi lesið um svo marga fylgdar- menn. Ég fór því að halda, að ég myndi lítið græða á þessu ferðal-agi og datt í hug að snúa við, en konan hélt áfram tali sínu. Hún sagði, að féð væri fallegt, en færi heldur vonda jörð, enda ákaflega blautt. Víða smálækir, því að það hefði rignt mikið að undanförnu. Svo kallaði hún skyndilega: „Nú komast þeir ekki lengra, það er komin stórhríð. Þeir eru orðnir bara 5 og eru að reyna að tjalda." Er hér var komið sögu hefi ég víst gleymt mér og ekki at- hugað sem skyldi um stjórn- unina á bílnum, því að annað framhjólið lenti á allstórum st-eini, 'Svo að bíllinn kastaðist snöggt til og litlu munaði, að konan hrykki fram í framrúð- una, en maðurinn, sem með okkur var, greip í hana í tíma. Við þetta vaknaði konan úr dáleiðlslunni. Við héldum síðan áfram, en töluðum ekkert fyrr en við k'Omum að Innri-Skúta. Skóð- anir manna hafa verið skiptar um það, hvorum megin við Innri-Skúta — að norðan eða sunnan — Staðarmenn hafi rekið féð yfir Jökulfallið og framhjá Skútanum í áttina að Gránu- nesi. En nú kipptist konan snöggt til í sætinu, spyrnti hægra fæti hart fram á hval- bak bílsins, eins og hún ætlaði að hemla, og hrópaði: „Ertu vitlaus maður, ætlarðu að keyra á féð?“ Ég sá hvergi neina kind, en kon'an virtist vera í uppnámi. Samt róaðist hún fljótt, svo að sennilega hefi ég ekki ekið á féð, en hún hélt áfram að tala. „Já, þarna reka þeir féð. Ó, hvað það er þreytulegt og blautt. Mig undrar ekki, að það sé blautt, nýkomið úr ánni. Blessað barnið. Það er eitthvað lasið.“ -Síðan lýsti hún nokkuð bún- ingi mannanna og veðrin-u og hélt síðan áfram: „Þeir eru að tjalda í hríð- inni. Það gengur illa, en þeim tekst það þó. Féð er allt í þétt- um hópi. Þeir eru í vandræðum með það, það vill troða-st und- ir.“ Síðan varð stutt þögn. „Ó, Guð minn góður. Einn er orðinn veikur. Það er barnið. Einn maðurinn lætur sér svo annt um það. Ó, hvað það kvelst.“ „En hvað er nú þetta,“ sagði -hún svo og færðist öll í auk- ana, kreppti hnefana og s-viti spratt út á andliti hennar. „Tveir eru farnir að rífast eins og hundar og aðrir tveir standa og horfa á. Þeir steyta hnef- ana hvor framan í annan. Eru mennirnir vitlausir. Nei, nú t-ek ur annar hestinn sinn og fer í burtu. Hinn fer inn í tjaldið. Drengurinn er hljóður.“ Konan lýsti nú, hvernig drengurinn dó og maðurinn hjúkraði honum, síðan hvernig þessi maður veiktist með kvöl- um og dó. Tveir menn bárulík in burtu úr tjaldinu, fóru síðan aftur inn í tjaldið og dóu þar. Við héldum áfram að hraun- jaðrinum gegnt Beinhóli og gengum svo þaðan um klukku- tíma gang að hóln-um, en kon- an komst ekki í miðilsástand þar og snerum við síðan heim á leið. Ég komst síðar að því, að bær hafði verið í byggð rétt fyrir ofan Gullfoss, eins og konan sagði. Eins komst ég í gamalt handrit, er fjallaði um veru þeirra Staðarmanna í Hreppun um. Þar las ég, að 8 bændur hefðu fylgt þeim inn á afrétt, og stóð það einnig h-eima við það, sem konan sagði, hve margir mennirnir hefðu verið. í nóvember sama ár átti ég fund með Hafsteini Björnssyni miðli. Kornst ég þar í samband við Bjarna Halldórsson og spurði hann: Hver rændi ykk- ur bræður? En hann svaraði: „Við vorum ekki rændir." „Hvernig komust þið þá í klettas(koruna?“ spurði ég. „Sigurður og Guðmundur báru okkur þangað,“ svaraði hann. „Þeir gátu ekki legið hjá okk ur dauðum í tjaldinu.“ „En hvað um Jón?,“ spurði ég. „Við skildum ósáttir, en það er allt löngu jafnað okkar á milli,“ svaraði hann. Hér læt ég staðar numið, en vil benda þeim, er vildu kynnast þessu nánar að lesa um þessa atburði, og ferð Jóns til byggða í bókinni Reynistaða bræður, en þar er öðrum þræði stuðzt við upplýsingar fengnar á þessum miðilsfundi. 0 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 12. apríl 1970

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.