Lesbók Morgunblaðsins - 12.04.1970, Blaðsíða 13

Lesbók Morgunblaðsins - 12.04.1970, Blaðsíða 13
TEIkU. HAR.Qu&liERSSSöd RIFSDRAUSURINN "þci.6 bar uix) ó-'Rkft uQ'otu.r un.clúr Cprt©.- {QLl&jofciu, o.b sjorriQnn. urbu tóbate&'.cujLslr Urxdu þalrIpuC CUcu an. urou uo baþx þoo þuu VxuercjL fsVcYtet tóbuVc Ibuup&töðura acmcx c tlofbö&coq ti.öfóaVcO-up-öto.b. Ltottu þu'bjom'inn. upp drCkUCj ocj &cndu honn._ norour uo ooVsjcx tóbotu.t)rcxucjurcn.n. Ycuoöut <2.í_ CjQtu. Co.rcO n.Q'búolcucb puC txann. oapbcot Pafa 00.0.0 VcuubsQttur. ‘ 1 6n_ po.ó Puab UQra tm. aó ocu pQnpu þaCr pcu drojuonurru droupur þurfC mat SQm. bocp- rrQbtC oo Cór h.ann.'buoan. Ur h.Qpxr uQrco profcn.ru pQpcr QpkC of fcróum. Vxano. ön.&uo bar u'cb að rxobkru. Qftir fór maóur nokPur yfcr FróðurVxQÍóu.ft&nn ocuhuur madur oot ú brQhhu Qcnrxc op uar ad napa oX brcnpuhotic ftafdú Vxann tbbah &bc£a aLU. • t hrúncjunru &Lp. bobarxna op fer þapar a{ &tab 'Rah hana undarx &a.r adcu. toboh&brQcburxa pp Cór mcð Vxurca oe&tur u'RcpCr &uo &agt aó QhhC þrout þötóboh. þann. uQtur IRCfCrxu- Bókmenntir og listir Framhald af bls. 3 fanginn af jafnöldru sinni. Sif heitir hún. Þau kyssast heil- mikið og fela sig bak við hey- sátur. Og Berki dettur ekki í hug, að ást þeirra vari ekki alltaf. Þar til Sif sýkist af berklum, flyzt suður og á ekki afturkvæmt til dvalar í sveit- inni. Annar maður hreppir hana. En ekki er Sif fyrr horfin en önnur stúlka kemur á vettvang og fyllir upp í tómið; Bína; hraust, náttúrleg, ástfangin. Börkur gleymir ekki Sif, ekki alveg. En Bína verður þó draumadís karleðlis hans upp frá því. Hann dáist að henni og langar að eiga hana. En „tafl hans við konur endar mestan- part í biðskákum,“ eins og Indriði G. Þorsteinsson orðar það. Nauðugur viljugur stjakar hann Bínu í fang keppinaut sínum; þar með er það tækifær- ið gengið honum úr greipum. Nokkru síðar leitar Börkur — að áeggjan fóstru sinnar, hann er þá orðinn fyrirvinna heim- ilisins — ráðahags við ferming- arsystur sína, myndarstúlku. En sú málaleitun fer í handa- skolum eins og annað þrátt fyrir góðan vilja stúlkunnar. Tíminn er nú kominn á fulla ferð. Heimafólk Barkar tekur að eldast og deyja. Þá fær 1(2. >dl 1971} Börkur til sín ráðskonu úr kaupstað, lauslætisdrós með barn í eftirdragi. Hún dvelst hjá honum nógu lengi, til að hann taki ástfóslri við barn hennar. En þegar svo er komið, að hann má vart af því sjá, axlar ráðskonan sín skinn, og barn leikur ekki framar í túni bóndans. Nágrannar Barkar flosna upp, hver af öðrum, ým- issa hluta vegna. Sumir telja hag sínum betur borgið á möl- inni. Aðrir fara á eftir brott- hlaupnum ráðskonum. Það fækkar kringum heiðarbónd- ann. Að lokum stendur hann einn eftir í koti sínu, gamall, snauður og hamingjulaus; æsk- an óralangt að baki og ekkert framundan nema ellin og dauð- inn. Er ekki afsakanlegt, að nokkurrar tilfinningasemi skuli gæta í þvílíkri raunasögu? Stöku útjaskaður orðaleppur má vafasamlega vera lagður í munn sögufólki: „ég er svo óhamingjusamur“ . . . „ég elska þig“, og svo framvegis. Líka á höfundur til að gerast ónauð- synlega heimspekilegur, „beyg- ir sig,“ svo aftur sé vitnað í orð Indriða G. Þorsteinssonar, „stundum undir það ok pappírsaldar að segja langt frá því, sem mætti afgreiða í fá- einum orðum.“ En hvorugt lýtir Hinumegin við heiminn meir en svo, að sagan hlýtur að teljast merki- legt skáldverk, hvernig sem á hana er litið; alveg sama hvaða mælikvarði er á hana lagður. Til að mynda ástin — hún get- ur vart talizt öðrum viðfangs- efnum auðveldari, þó tíðum hafi verið reynt að krydda með henni léleg verk. Guðmundur sleppur bærilega frá henni. Ástarsaga Barkar er örlaga- saga í fornum skilningi. Líf Barkar ræðst ekki nema að nokkru leyti að vilja hans sjálfs. Tilviljanirnar hafa ekki minni áhrif á rás viðburðanna í lífi hans. Áræði skortir Börk ekki. Að minnsta kosti er hann gæddur því til jafns við suma, sem betur vinrust. Aufc þess er hann traustur maður, heill, ein- lægur, varkár. Þeir eiginleikar auka traust annarra á honum. Stúlkurnar elska hann heitar fyrir bragðið. En svo mótsagn- arkennt sem það nú er, þá verða þessir kostir honum ekki til farnaðar, heldur til ógæfu — líkt og t. d. heilræði Njáls urðu honum sjálfum og vinum hans til tjóns. Aðrir og óprúttn ari menn taka frá Berki, það sem honum var ætlað, af því hann fer of heiðarlega að; skoðar hug sinn of lengi. „Þú stóðst þig skítt að láta þá taka af þér stelpurnar." — Þvíhvað er það nema tryggð Barkar við Sif, sem verður þess beint og óbeint valdandi, að hann miss- ir af Bínu? Og slík er einnig tryggð hans við heiðina, að hann verður þar kyrr, eftir að aðrir eru horfnir á braut. Harmsaga hans er því ekki fólgin í, að honum bjóðist ekki tækifæri til jafns við aðra menn, heldur í hinu, að hann notar sér ekki úrræðin. Tæki- færin — sem og líf hans allt — renna úr greipum hans eins og sandur. En vitaskuld hefur fleira áhrif á gang málanna í lífs- hlaupi Barkar. Það er ekki að- eins vegna persónulegs ham- ingjuleysis hans, að hann þrumir að lokum einn eftir í heiðinni. Upphaf þjóðlífsbylt- ingar, þar með talinn „flóttinn úr sveitunum", segir einnig til sín. Ef Börkur hefði verið uppi aldarfjórðungi fyrr, hefði tæpast verið rökrétt, að hann endaði ævi sína sem einstæð- ingur uppi í heiði. Og aldar- fjórðungi síðar hefði verið frá- leitt að láta hann sitja kyrr- an, eftir að aðrir voru horfnir á braut, samanber t. d. Einar í Landi og sonum Indriða G. Þorsteinssonar. Börkur er haldinn tortryggni sveitamannsins. Það er því ekki aðeins tryggð hans við heimahagana, sem heldur hon- um föstum, eftir að hreyfing er komin á sveitunga hans — hann sér þá glöggt, að hverju stefnir — heldur líka ótrú á þeim úrræðum, sem við blasa í þéttbýlinu. Sem heiðar- legur maður fyrirlitur hann brask og spákaupmennsku. Og sjálfstæðið er líka runnið hon- um í merg og bein. Með hlið- sjón af því síðarnefnda stend- ur hann nær Bjarti í Sumar- húsum og Einari í Landi og sonum. Muninn á örlögum þessara þriggja sveitamanna: Bjarts, Barkar og Einars, mætti ef til vill orða svo, að Bjart- ur hafi grafizt í fortíðinni, Börk dagað uppi í nútíðinni, en Einar einn gangi nýja tímanum á hönd. Bjartur endurheimtir lifsblóm sitt í sögulok og flyzt lengra inn i heiðina. Börkur verður kyrr í heiðinni, eftir að aðrir eru horfnir á braut; öllu rúinn nema minningum sínum. En Einar hrindir frá sér því, sem hefði getað orðið lífsblóm- ið hans í sveitinni, af því það hefði reyrt hann við torfuna; hneppt hann í vonlausan þræl- dóm; freistar þess í stað nýrr- ar gæfu í nýjum heimkynnum. —★— Indriði G. Þorsteinsson, sem skrifaði á sínum tíma umsögn um Hinumegin við heiminn og hér hefur verið skírskotað til, fullyrðir ekkl of mikið, er hann segir; „Mér vitanlega hefur ekki komið út önnur nýtízkulegri bók um viðhorf bóndans til þeirra, sem fara . . . Jafnframt er þessi bók uppgjör einyrkja við samtíð, sem er ekki pasturs mikil, þegar búið er að hleypa loftinu úr henni.“ Indriði telur ennfremur, að sagan fái „aukið gildi vegna þess að höfundur hennar er bóndi.“ Mikið rétt. Guðmundur L. Friðfinnsson lýsir ævikjör- um bóndans frá sjónarhóli bóndans sjálfs líkt og t. d. nafni hans á Sandi forðum. Þó Hinumegin við heiminn sé tæp- ast eins mikii íslendingasaga og smásögur Guðmundar Frið- jónssonar og fari hvergi fram Framhald á bls. 14 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.