Lesbók Morgunblaðsins - 18.04.1970, Blaðsíða 21
Vauxhall Victor
Vauxhall-verksmiðjurnar í Englandi eru eign General Motors og Vietor er
bíll í miðlungsflokki. Á síðari árum hefur evrópskt útlit þessa bíls nokkuð
látið undan síga og er hann nú í útliti nánast sem smækkuð útgáfa af amerísk-
um bíl. Lengdin er 4,49 m, breidd 170 cm, hæð 131 cm, þyngd 1052 kg og hæð
undir lægsta punkt 15 cm. Dekkjastærð er 690x13, og þvermál krappasta
snúningslirings er 10,1 m. Victor er 5 manna bíll, 4ra dyra og vélin er að
framan, fjögurra strokka. Borðabremsur eru í bak og fyrir, servoknúnar. Hest-
aflatala er 84 og drif á afturhjólum. Skipting er í gólfi. Hámarkshraði er 149
km á klst., en viðbragðið frá 0—100 km á hraða á klst. er 15,2 sek. Umboð liefur
Véladeild SÍS og verðið er 320 þúsund krónur.
Volkswagen 1300 De Luxe
Þetta cr sá Voikswagen sem mest selst um víða veröld og gengur keppi-
nautunum illa að finna nokkuð, sem verulega ógnar honum. Enn er ekki útlit
fyrir að aðrir smábílar ógni Volkswagen. Breytingar á útliti bílsins eru engar
að heitið geti á árgerð 1970. Lengd er 4.03 m, breidd 155 cm, hæð 150 cm, og
dekkjastærð 560x15. Hæð undir lægsta punkt er 15 cm, en þvermál krappasta
snúningslirings 11 m. Þyngd: 775 kg. Volkswagen er með gírstöng í gólfi, 4 gír-
ar áfram og fáanlegur er hann sjálfskiptur. Bremsur: borðar að framan og aft-
an. Vélin er 50 h-estöfl, 4ra strokka, loftkæld. Hámarkshraði er 120 km á klst.,
en viðbragð í 100 km hraða er 26,0 sek. Umboð á íslandi: Hekla. Verð 209.700 kr.
^"^filÖPNSSON &co
SKEIFAN 11 SÍMI 81530
TRAUSTUR og VANDAÐUR..
SAAB V4 '96 — drgerð 1970 — er fraustur, stílhreinn og sérlega
vandaður, byggður fyrir erfiðustu aðstæður. Hver bifreið er
„testuð" í stormgöngum SAAB-herþotnanna og yfirfarin af
sérfræðingum. SAAB V4 '96 er sparneytinn, og ódýr í rekstri.
NÝJUNGAR I ÚTLITI OG ORYGGI:
Ný ferhyrnd framljós, sem gefa 50% betri dreifingu af nærljósi.
Endurbæltar bremsur, 40% lóftara bremsuóstig.
Ný tegund af samdróttar-stýrisstöng til varnar slysum.
öryggis„boddy" með sérstyrktum gluggapóstum.
Tvöfalt „lammer' gler í framrúðu.
Tvöfalt bremsukerfi með diskahemlum að framan.
Ný tegund af öryggisfelgum.
öryggisbelti fyrir framstóla og festingar fyrir aftursæti.
Innfeld dyrahandföng.
Betri bólstrun á sætum og nýir litir á óklæðum.
RÚMGOTT FARANGURSRÝMI
HÁMARKS FARANGURSRÝMI
'/W\
VIÐ LÆKJARTORG
18. apríl 1970.
MORGUNBLAÐIÐ — BÍLAR 1970 21
nt\i ..