Lesbók Morgunblaðsins - 18.04.1970, Blaðsíða 18

Lesbók Morgunblaðsins - 18.04.1970, Blaðsíða 18
Volvo 1970 volvo: lækkun: 142 Evrópa.61.500,- P142 + 4.76.000,- P164....95.000,- Mikil verðlækkun! Suðurlandsbraut 16 • Reykjavik • Simnefni: Volver • Sími 35200 ‘“‘"'"BDÖRNSSONAca SKEIFAN11 SÍMI 81530 • Fallegur, rúmgóður, þægilegur og öruggur. O Fullur af tækrtilegum nýjungum. • Hefur frábæra aksturseiginleika. • Viðhaldskostnaður í algeru lágmarki. • Bifreið fyrir erfiðustu aðstæður — íslenzkar aðstæður. 0 ATH: SAAB-umboðið er með fullkomna viðgerða- og vara- h.utaþjónustu á eigin verkstæði. - Bílar og menn Framhald af bls. 2 farnir. Sá sem er í eðli sínu seinn og sljór í viðbrögðum, ætti samkvæmt þeirri kenn- ingu að aka hægt og gætilega. Samt verður tiltölulega mikið af árekstrum hér. En það sann- ar kannski bara málsháttinn, að aldrei skyldi seinn maður flýta sér. Athyglisvert er, að fram- koma manna breytist, þegar þeir eru kornnir undir stýri. í Suðurlöndum steyta þeir hnef- ana hver að öðrum og stund- um rjúka ítalskir bílstjórar út og hella úr skálum reiði sinnar, ef þeim finnst, að gengið hafi ve»ið á rétt sinn. Þjóðverjar eru frægir um alla Evrópu fyrir frekju á vegum og bæði þeir og aðrir eru mjög við- kvæmir fyrir því, ef einhver reynir að komast fram úr. Þar á meðal eru íslendingar. Sú árátta, að hleypa ekki fram úr var mjög við lýði fyrir nokkr- um árum, en hefur sem betur fer minnkað. Eftirtektarvert er, að menn á góðum bílum hleypa fremur fram úr, en hin- ir sem aka á ódýrum og jafn- vel lélegum bílum. En eitt virðist hafa komið í ljós: Bílar eru ekki tæki, sem skóla menn í kurteisi nema síður sé. Ljúfustu menn eiga til að aka mjög ruddalega. Og ef eitthvað kemur fyrir, þá eru stóryrðin ekki spöruð, og öll yfirborðs kurteisi er látin lönd og leið. Dæmi um þetta er sagan af Ólafi Ketilssyni, þeg- ar hann lenti í einhverju um- ferðaróhappi og fylgdu því til- heyrandi skammir á báða bóga. Ólafur þúaði þrjótinn, sem hins vegar sagðist ekki vita til þess, að þeir væru dús. Ólafur sagði þá, sem víst er undan- tekningalítil staðreynd, að ekki væri venja, að menn þéruðust í árekstrum. Margt fleira mætti tína til um bíla og menn en hér skal látið staðar numið. Enn er margt sem íslenzkir bíleigend- ur geta gert sér vonir um að verði lagfært í þessu landi. Þar af ber tvö stórmál hæst: að einhvern tím'a komi sú tíð, að byggðir verði varanlegir vegir á íslandi; og í öðru lagi: að sá tími megi einhvern tíma upp renna, að stjórnvöld hætti að líta á bíla sem lúxusvarning og tollskráning þeirra verði sam- kvæmt því. • • — Orlygur Framhald af bls. S kaf og þá var ekki að sökum að spyrja, en um að gera að halda sér dauðahaldi og detta ekki af baki og forðast háls- brot og rófubrot. Fjöðrun var fullkomin eins og sænsk „spring madressa" með gullbrúðkaups ,garantí‘. Vinrautt plussið á sæt um og drossiunni innanverðri var eitthvað í ætt við belg- mjúka áferðina á Hollywood- stjörnu. Hún var öll kolsvört og gljábrennd hið ytra eins og álfakroppur úr Harlem og það hvítmattaði í útstandandi ljós- kerin, þessa töfraspegla sálar- innar, sem skyggndust vítt og breitt um dimmar nætur. Hún bar sig bezt á botnakstri á MORGUNBLAÐIB — BÍLAR 1970 18. apríl 1970.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.