Lesbók Morgunblaðsins - 18.04.1970, Blaðsíða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 18.04.1970, Blaðsíða 2
Þeir eru svo sannfærðir um, að þessi gerð sé bezt allra bíla, að þeir hafa ekki einu sinni fyrir því að prófa neitt annað. Láti einhver í ljós vantrú á þessari gerð, þá samsvarar það móðgun og persónulegri árás. Allt frá árdögum bílanna hafa þeir verið stöðutákn í þjóðfélaginu. Þýðing þeirra, sem slíkra hefur þó stórminnk að upp á síðkastið með jafnari efnahag manna. Auk þess eiga ólíklegustu menn peninga til þess að geta keypt sér hvaða bíl sem vera skal. Þannig óku Bítlamir á Rolls Royce snemma á frægðarferli sínum. Og nú hefur Lennon keypt dýrasta bíl sem völ er á, Mercedes Benz 600, af sömu gerð og þjóð- höfðingjar eða olíukóngar aka á. Af þessum sökum og ýmsum öðrum missir bíllinn gildi sitt sem stöðutákn í þjóðfélaginu að verulegu leyti, þó ekki al- gerlega. Að eiga sportbílinn Maserati Ghibli er t.d. svo ákveðið stöðutákn, að aðaleig- andi og forráðamaður Ford- verksmiðjanna Henri Ford II. á einn slíkan bíl. Annars lýsti Henri Ford því yfir nýlega, að hann teldi dýrðardaga bílsins liðna tíð; í Ameríku færist sú skoðun mjög í vöxt að líta á bílinn aðeins sem farartæki á hjólum, hentugt til að komast leiðar sinnar. Sú skoðun er þó engan veg- inn almenn ennþá, og þarf ekki langt að fara til að finna dæmi til rökstuðnings. Segja má, að allir ættu að geta kom- izt leiðar sinnar á bíl eins og Cortinu, sem kostar eitthvað nálægt 240 þús. kr. Hann virð- ist vera nægilega rúmgóður að innan fyrir hvem sem er, og þar að auki fremur þokkaleg- ur í útliti. Samt kaupir tals- verður fjöldi manna hér á landi bíla, sem kosta tvö- falt verð Cortinunnar, eða 480 þúsund. Á sama hátt má segja, að það verð samsvari 3 Skoda- bílum. Og þeir sem eiga Skoda, láta flestir vel af þeim og segja, að vel sé hægt að kom- ast leiðar sinnar á þeim. Nú eru t.d. minni gerðimar af amerísku bílunum, dýrasta gerðin af Volvo, BMW eða Peugeot 504 ekki til muna stærri að innan en Cortinan er. Samt horfa menn ekki í að verja heilu bílverði eða tíföld um miðlungs mánaðarlaunum í þann mismun, sem kann að vera á þessum betri bilum og venju- legu farartæki eins og Cortinu. Þetta er merkilegt rannsókn arefni og sýnir að menn líta öðrum augum á bíla en aðrar vélar og heimilistæki. Það er t.d. staðreynd sem sölumönn- um er fyrir löngu kunn, að út- litið ræður mestu um það, hvaða bíl menn kaupa. Þann- ig er það að minnsta kosti er- lendis, en hér á íslandi gegnir ef til vill öðru máli, þar sem verð á bílum er óeðlilega hátt, miðað við tekjur manna al- mennt og margir verða að slá af því sem þeir mundu kjósa sér helzt sökum kostnaðarins. En þegar um er að ræða bíla á sambærilegu verði, þá stað- næmist kaupandinn að lokum við þann, sem honum finnst fal- legastur, jafnvel þótt hann viti að hinir kunni að hafa eitt- hvað framyfir í tæknilegum efnum. En fegurðarsmekkur manna er ákaflega misjafn og sú bílategund er víst alls ekki til í veröldinni, að einhverjum þyki hún ekki taka öllum öðr- um fram frá fagurfræðilegu sjónarmiði. íslendingar leggja oft ótrú- lega og ef til vill óeðlilega mikið á sig til að geta ekið á sæmilegum bíl. Meðan vega- kerfi okkar stendur í stað að mestu, fást sífellt færri og færri bílar, sem beinlínis er gert ráð fyrir að komi á mal- arvegi. Og ýmsum fallegustu og bezt búnu bílum heimsins hafa Islendingar aldrei kynnzt af þeim sökum, að hér væru þeir ókaupandi. Þar að auki nytu þeir sín engan veginn á holóttum malarvegum. í víðlesnu, erlendu frétta- tímariti var getið um það, að þýzkur eigandi Mercedes Benz dró upp skammbyssu sína og skaut annan mann til bana, vegna þess að sá hafði haldið því fram, að hann vildi fullt eins eiga Opel. Það hefur líka oft verið sagt, að Þjóðverjar fari betur með bílinn en eig- inkonuna. Natni þeirra við að þrífa og pússa Benzana sína er löngu heimskunn. íslendingar eru aftur á móti draslarar í eðli sínu. Þótt margir hafi sanna ánægju af bílum, nenna þeir ekki endalaust að standa í að þrífa og bóna. Enda mætti það æra óstöðugan á stundum. Þegar komið er út fyrir poll- inn til Englands, Þýzkalands eða Ítalíu, þá rekur íslending- urinn augun í það, að allir bíl- ar sýnast nýbónaðir. Þegar heim er komið, sér maður að hér eru bílar meira eða minna útataðir, en það á sér oftast eðli lega skýringu. En það er líka annað, sem maður tekur eftir. Það er hinn stórkostlegi sila- keppagangur í umferðinni hér. Það hefur verið sagt að menn aki eins og þeir eru skapi Framhald á bla. 18 Einkennileg löggæzla NÝLEGA hitti ég útlending, sem dvalizt hefur á íslandi um nökkurn tíma. Hann varð fyrir því að kvöldi dags að lög- reglan stöðvaði hann. Vildu lögreglu- menn vita hvert hann væri að fara, fá að sjá ökuskírteini og skoðunarvottorð og loks láta hann anda framan í sig. Maður þessi hefur ferðazt víða um heiim. Kom honum þetta mjög á óvart, því að hann segist ekki vera vanur því í vest- rænum löndum, að lögreglan láti ai- menna borgara ekki í friði, þegar þeir eru ekki að brjóta lög. Hefur hann ekki lent í slíku atviiki síðan hann var í upp sveitum Búlgaríu fyrir nokkrum árum. Ég hef sömu sögu að segja. Ég hef ekið um alla Evrópu á síðustu sex árum og hef aldrei verið stöðvaður af lögregl- unni. Bæði í Vestur-Evrópu og Banda- ríkjunum tíðkast það að hafa sérstök skilti á vegurn, þar sem radarmælingar á hraða fara fram. Tilgangurinn með því er að vara borgarana við, en ekki að ná þeim með því að fela sig bak við runna. Þessi útlendingur var furðu lostinn og áhyggjufullur, enda full ástæða til. Ef maður er ekkert að gera af sér, en fær samt ekki frið fyrir lögreglunni, er lög- gæzlan komin á undarlegar leiðir. Svona lagað gerist ekki nema í lögreglurikjum. Við þetta bætist, að mikið af löggæzl unni í Reykjavík er út í hött. Það fara aldrei fram radarmælingar á Suð- urgötu við Kirkjugarðinn og þar aka menn áhyggjulausir eins hratt og þeim þóknast á mjórri og ósléttri götu. Á Suð urgötu við Háskólann eru aftur á móti af og til radarmæhngar, enda gatan breið og að öllu leyti greiðfær. Virðist það vera meginregla hjá lögreglunni að mæla ekki hraða nema þar, sem hætta er lítil og umfarð greiðfær. Helzta und- antekning frá þessu er nálægt horni Sóleyjargötu og Hringbrautar. Staðir, þar sam mæling fer fram, virð ast aðallega þurfa að uppfylla eitt dkil- yrði, það að auðvelt sé að fela sig. Virð- ist þvi augljóst, að tilgangurinn með þessum mælingum er ekki að hindra of hraðan aikstur á tilteknum stað, heldur að sekta menn. Algengustu staðir, þar sem mælingar fara fram, eru á Hring- braut í vestur við Smáragötu, Hring- braut nokkru vestan við tjörnina, Miklu araut í báðar áttir við Shell-stöðvarnar, Skúlagötu í vestur við bensínstöðina á Klöpp, Miklubraut í vestur nálægt Tóna bæ og Suðurgötu við Háskólann. Á öll um þessum stöðum er skjól að finna fyrir þessa laumustarfsemi. Kunnugir fullyrða, að aldrei sé mæld ur hraði með radar að nóttu til, aidrei þegar mikil umferð er, vegna þess að þá myndast svo mikið umferðaröng- þveiti, aldrei nema í lítilli rigningu, því stórrigning ruglar radarinn, sjaldan í vonduim veðrum, því að l'ögregluþjóna langi ekkert meira að vera kalt en ofck- ur hina. Sé þetta rétt, og vissulega er eitthvað til í því, fara radarmælingar fram að degi til, í björtu veðrd, á þurr- um vegi, þegar lítil umferð er og fyrst og fremst á breiðum og greiðfærum um ferðaræðum. Það er einmitt við þæir að- stæður, sem slysahætta er minnst. Sú spurning hlýtur að vakna hvort ekki mætti nýta betur þá vinnu, sem fer í þetta, svo sem til þess að segja óvönu fólki til, þegar það gerir vitleysur í um- ferðinni. ' — Sv. Þ. 2 MORGUNBLAÐIÐ — BÍLAR 1970 18. april 1970.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.