Lesbók Morgunblaðsins - 18.04.1970, Blaðsíða 13

Lesbók Morgunblaðsins - 18.04.1970, Blaðsíða 13
Ford Capri 1500 Eftir að Mustang hinn ameriski hafði farið sigurför um heiminn og haft inikil áhrif á útlit flestra sportlegra bíla, þótti útibúum Ford í Evrópu tími til kominn að unga út eins konar Evrópuútgáfu af þessum fræga bil. Sá bíll hefur nú séð dagsins ljós og heitir Capri 1500. Hann er framleiddur bæði í Þýzkalandi og Englandi. Lengd bílsins er 4,26 m, breidd 164,5 cm, hæð 133 cm og hæð undir lægsta punkt 12,5 cm. Dekkjastærð er 600x13 og þvermál krappasta snúnings- hrings er 9,6 m. Capri er með aðskildum stólum að framan, hann er fjögurra manna, tveggja dyra. Völ er um 5 vélar, frá 1300 rúmcm til 2300 rúmcm, en vélin er að framan og drif á afturhjólum. Vélin er 4ra strokka, vatnskæld, þjöppun 9:1 og hestöflin 75. Capri er búinn tvöföldu bremsukerfi með diskum að framan og borðum að aftan. í honum er að sjálfsögðu gólfskipting eins og í flestöllum bílum af þessu tagi. Hámarkshraðinn miðað við 75 hestafla vél er 142 km á klst. Viðbragðið í 100 km hraða sr 16,6 sek. Umboð á íslandi hafa Sveinn Egilsson h.f. og Kr. Kristjánsson, en verðið er frá 305 þús. kr. Ford 12 M Þessi gerð er sú minnsta sem Ford v-srksmiðjumar í Þýzkalandi framlciða. Lengdin er 4,38 m, breidd 160 cm, hæð 140 cm, þyngd 870 kg og hæð undir lægsta punkt 16,5 cm. Dekkjastærð er 560x13 og þvermál krappasta snúnings- hrings er 10,8 m. Ford 12 M er ýmist tveggja sða fjögurra dyra. Vélin er að framan og þessi bíll er einnig með framhjóladrifi. Vélin er fjögurra strokka, vatnskæld, þjöppun 8,2:1, og hestaflatalan 63. Bremsukerfið er tvöfalt, diskar að framan en borðar að aftan. Ford 12 M er búinn stýrisskiptingu, hámarkshrað- iun er 130 km á klst. og viöbragðið úr kyrr iiöðu í 100 km hraða er 23 sek. Um- boð fyrir Ford hafa Sveinn Egilsson h.f. og Kr. Kristjánsson. Verðið er 280 þús- und krónur. Ford 20 M Þetta er stærsta gerðin, sem útibú Ford í Þýzkalandi framleiöir. Eins og aðrir bílar, sem amerísku Evrópuverksmiðjurnar framleiða er hann að sumu leyti kynblendingur. Það leynir sér ekki að á bak við hann -er amerísk hugsun og smekkur, en reynt er að lialda í ýmislegt þáð er Evrópumenn hafa mætur á í bílum. Lengd þessa bíls er 4,72 m, brcidd 175 cm, hæð 147 cm, þyngd 1080 kg og hæð undir lægsta punkt 18 cm. Dekkjastærð er 640x13 og þvermál krappasta snúningshrings er 10 m. Með aðskildum stólum að framan er Ford 20 M 5 manna, en ýmist er liann tveggja eða fjögurra dyra. Vélin er að framan og fáanleg í 106 og 113 eða 126 hestafla stærð. Drif er á afturhjólum. Allar eru vélamar 6 strokka, vatnskældar. Bremsukerfi er tvöfalt, diskar að framan en borðar áð aftan. Skipt- ing er við stýri. Miðað við 106 hestafla vél, er hámarkshraðinn 155 km á klst. og miðað við sömu vél «r viðbragðið úr 0 í 100 km á klst. 15,2 sek. Umboð á íslandi hafa Sveinn Egilsson h.f. og Kr. Kristjánsson. Verðið er 405 þús. kr. Mercedes Benz 200 Hér er ódýrasta útgáfan sem til er af Mercedes Benz. Að ytraf útliti er hann nálega eins og aðrar gsrðir, allt upp í 250 og livað getu snertir er hann efcki meira en í meðallagi, en frág'angur allur virðist í þessari gerð vera jafn vand- aður og í hinum dýrari. Benz 200 ®r 4,69 m á lengd, breidd 177 cm, hæð 144 cm, þyngd 1325 kg, og hæð undir lægsta punkt 19 cm. Þvermál krappasta snúnings- hrings er 10,8 m. Diskabremsur eru í bak og fyrir, servoknúnar og tvöfalt kerfi. Bíllinn er 4ra dyra, fimm manna, vél að framan og drif á afturlijólum. Vélin er 105 hestöfl, 4ra strokka, vatnskæld. Skiptingar í gólfi eða við stýri, 4 gírar áfram. Einnig er hann fáanlegur sjálfskiptur. Hámarkshraði er 158 km á klst. og viðbragðið í 100 km hraða er 16.1 sek. Umboð á íslandi hefur Ræsir h.f. Verð: 550 þús. kr. Mercedes Benz 220 Geri maður sig ekki ánægðan með ódýrustu gerðina af Benz, kostar það að bæta við 20 þús. krónum, en næsta gerð við, sem auðkennd er með tölunni 220, er nákvæmlega eins á lengd og breidd og hæð og Benz 200. — Útlitið má einnig heita eins. Hér er einnig um að ræða 4ra strokka vél, vatns- kælda. En þessi hefur 116 hestafla orku. Öll uppbygging er eins og á Benz 200. En vinnslan er nokkuð skarpari: Hámarkshraðinn er 164 km á klst., og viðbragðið í 100 km liraða er 13.6 sek. Umboð á íslandi hefur Ræsir h.f. Verð: 570 þús. kr. Mercedes Benz 250 Gerðir af Mercedes Benz eru mjög margar og nokkrar þeirra svo dýrar, að sala þeirra á íslandi kemur naumast til greina. Dýrasta g-srðin, sem við sjáum ástæðu til að nefna hér af þessum sökum er Benz 250, sem raunar er uppbyggður úr nákvæmlega sömu boddystærð og Benz 200 og 220. Munurinú er þó sá, að Benz 250 er með 6 strokka vél, 146 hestafla, vatnskælda. En að öðru leyti er bíllinn svipaður, 4ra dyra, vél að framan og drif á afturhjólum. Skipting er í gólfi eða við stýri, 4 eða 5 gírar áfram og sjálfskipting fáanleg. Diskabremsur eru í bak og fyrir, servoknúnar og 2 kerfi. Lengd, breidd, hæð og þyngd eru nákvæmlega eins og á ódýrari gerðunum. B-enz 250 þekkist á því að framstuðari er tvöfaldur. Hámarkshraðinn er 180 km á klst., en við- bragðið í 100 km hraða er 12.8 sek. Umboð á íslandi hefur Ræsir h.f. Verð: 655 þús. kr. 18. apríl 1970. MORGUNBLAÐIÐ — BÍLAR 1970 13

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.