Lesbók Morgunblaðsins - 29.11.1970, Page 8

Lesbók Morgunblaðsins - 29.11.1970, Page 8
Á slóðum Bólu-Hj álmars í Austurdal SÍÐARI HLUTI Fyrirsát við Stórhól. Litazt um í Tinnárseli og Nýjabæ. Reimleiki í Austurdal og hugmyndir manna um Hjálmar Eftir Gísla Sigurðsson tannig Iítur Austurdalur út, [jeffar koniið er Ianfíleiðina að Ábæ. Hæffra meg-in við Jökulsá s.jást Skatastaðir, innsti bær dalsins í b.vggð. I»aðan er unri klukkustund- ar gangur inn að Ný.jabæ, j>ar sem lljálmar skálil bjó á áriinum 1824—1829. Hjálmar kveður mæðginin á Skatastöðum í rökkurbyrjun. Hann veit, að á rifahjarni verð ur hann innan við klukku- stund að Nýjabæ. Hann er mik ill vinur vina sinna og eftir heimsóknina að Skatastöðum er honum létt í skapi. Hann hleypur við fót í kælunni, skaflinn verður háil í dag, veit hann. Allt í einu setur að hon- um óttalegt hugboð. Hann hæg ir á ferðinni, litast um, hugsar ráð sitt. Hann veit með sjáif- um sér, að ekki m uni alit hreint hjá Stórhól. Hann leysir ekki kláfinn, en grípur strengina og les sig yfir á höndunum. Það hefur hann oft gert áður. f þetta sinn flýtir hann sér meira en endranær; geigurinn býr enn með honum. Samt sér hann ekki neitt. En núna læt- ur hann skaflinn eiga sig. Neð- an við bakkann er naum skör á ánni; allt í einu flýgur hon- um í hug, að nú sé betra að feta sig inn eftir skörinni. Guðmundur í Ábæ lætur fara lítið fyrir sér uppi á skafl inum. Honum tekur að ieiðast þófið; það rökkvar og frostið bítur. Hann rýnir niður til ár- innar. Unz hann sér mann á ferð suður með ánni. Hann veit, að það er Hjálmar; sér í hendi sinni, að hann muni hafa haft pata af fyrirsátinni. En héðan af verður næsta vonlaust að ná honum. Guðmundur í Ábæ sprettur upp og tekur á rás inn brekkurnar eftir skáldinu. Svo virðist sem Hjálmar átti sig ekki á eftirförinni; Guð- mundur dregur á hann. Ábæj- ará er framundan, uppbólgin og sýnilega varasöm. En nú veit Hjálmar, að hugboð hans var rétt; hann sprettir úr spori, nálgast ána líkt og Skarphéðinn álinn á Markar- fljóti. Hér er enginn tími til að hika. íshroðinn sýnist ótrygg- ur um miðjuna; Hjálmar stekk- ur. Og skörin heldur. En Guð- mundur veit, að sig muni skorta fræknleik til hins sama. Hann þeytir kirkjujáminu á eftir skáldinu; það Syngur í ísnum, þegar járnið skellur á skör- inni. En Hjálmar er horfinn C- - / MÍáí an, Sagnir eru um 20—30 býli í Aiisturdal fyrr á öldum. Á leiðinni inn að Nýjabæ verða á vegi manns rústir af Jjessum bæjum, en sumir eru liorfnir með öllu. með það sama; blár skuggi kvöldsúns leggst yfir hjamibreið ur daisins. Júní 1969. Á mel'unum við Ábæjará verður jeppinn eftir. Áin er ófær í leysingu sumar- hitans. En hér er ágæt göngu- brú, þar sem áin brýzt fram úr gljúfri í fallegum streng. Ábær man fífil sinn fegri. Eitthvað er umliðið síðan bærinn féll; tóftirnar standa svartleitar og grjóthleðslan furðu heilleg. Að eins kirkjan stendur uppi, byggð 1920, steinsteypt, en ger- samlega yfirlætislaust guðshús með gluggaboru yfir dyrunum og krossmark uppi á burstinni: Fjallkirkja. Hér er ein minnsta kirkjusókn landsins; tvö byggð býli eiga kirkjusókn að Ábæ, en mér er sagt, að einhver prestur utan úr Skagafirði geri eina ferð inneftir á sumri hverju og þá er messað. En Ábær fór í eyði árið 1941. Enginn þurfti þó að flýja frá Ábæ sökum landþrengsla. Jörðin er víðlend austur um dalinn og inn um fjöllin. Menn segja, að fyrr á öldum hafi hátt í þrjátíu býli verið í Austur- dal. Þeirra sér nú lítinn stað. Þó verða á vegi manns vall- grónar rústir á stöku stað inn- um dalinn. Valllendiskraginn í kring er ögn grænni en um- hverfið og bendir til, að eitt sinn hafi töður verið færðar í garð af þessum þúfum. En allt hefur það verið smátt í sniðum og afgangurinn af heyskapnum einungis berjur í mýrarsundum ellegar á valllendisbökkum. Glötuð er saga þeirra, sem erjuðu þessa jörð; um gleði þeirra og sorgir veit enginn. En tóftirnar vekja spurn um líf þeirra og kjör, sem þarna ólu aldur sinn. Ekki urðu neinir til að rita annála um búskap í Austurdal og þá nauð, er skildi meira en tuttugu bæi i auðn. Við fækkum fötum í hita há- degisins; framundan er klukku tíma gangur inn að Nýjabæ. Leiðin liggur eftir kindagötum austur af Ábæjartúninu; þar verða víðlendar grundir, grón- ir troðningarnir liggja hlið við hlið eins og uppgrónir plóg- strengir. Langir og grösug- ir slakkar verða hérna megin dalsins, en vesturhliðin er há, snarbrött og ber. Síðasti áfang inn að Nýjabæ ætlar að verða drjúgur. Af kortinu mátti þó ráða, að spölurinn væri ekki R LESBÓK MOBGUNBLAÐSINS 29. nóvemiber 1970 . J

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.