Lesbók Morgunblaðsins - 29.11.1970, Page 15
DUSTIN
HOFFMAN
*
„0, hann er svo sætur“
an ættað ©r. Aðalhluitverkdð í
Fyrir nokkrum dögum
lauk sýningum á myndinni
„Frú Robinson" („The Gradu-
ate“) í Reykjavík og á næstu
vikum og mánuðum verður hún
vafalaust sýnd víða um land.
Þessi mynd lætur ekki mikið
yfir sér, enda átti hún aldrei
að verða nein stórmynd. Henni
var einuingis ættað það hlut-
verk að skila sæmilegum gróða
til framleiðandans og leikstjór-
ans. En margt fer á annan veg
myndinni, stúdentinn Benjamín
Braddock, lék ungur og óþekkt
ur leikari, Dustin Hoffman.
Hann slió í gegin, hJaut afbragðs
góða dóma fyrir leik sinn og
varð uppáhaldsleikari ungu
stúlknanna, og hefur síðast
nefnda atriðið líklega haft
hvað mesta þýðingu fyrir Dust
in og myndina. Aðsóknin að
henni hefur verið gifurleg og
nú ei' hún komin i þriðja sæt-
ið á listanum yfir vinsælustu
kvikmyndir sögunnar. Aðeins
„Á hverfanda hveli“ og „Tóna
flóð“ standa henni framar. Á
tveim árum varð gróðinn af
myndinni litlar íólif hundr-
uð milljónir króna —
1200.000.000.00. krónur. Og
Dustin er á grænni grein.
Dustin Hoffman er nú 32
ára gamall og síðustu tvö —
þrjú árin hefur hann dansað á
rósum. En það, sem á undan
var gengið, er ekki til að öf-
unda hann af. Ekki alls fyrir
löngu lifði hann eymdarlifi í
New York. Hann hafði valdið
foreldrum sínum sárum von-
brigðum og — innst inni —
sjálifum sér llíka. Hanin hafði
langað til að verða mikill pi-
anóleikari. Því lagði hann
stund á tónlistarnám við há-
skólann í Los Angeles. En
reyndist bara ekki nógu góð-
ur. f>á ætlaði hann sér að
verða jasspíanóleikari, en það
var eins og hann gæti ekki
fengið fingurna til að fylgja
með, þegar heilinn spann upp
tónlistarkrúsidúllur. Og þá lét
hann tónlistina lönd og leið.
En hann vildi fyrir alla muni
koma fram á sviði — einhvern
veginn. Því flæktist hann til
New York til að freista gæf-
unnar í leikhúsunum á Broad-
way. En honum stóðu engar
dyr opnar. Þegar bezt lét, gat
hann troðið sér inn um þröng-
ar sviðsdyr, þegar eitthvert
hinna stóru leikhúsa hafði þörf
fyrir marga uppfyllingarleik-
ara fyrir lægsta mögulegt
kaup. Og hann neyddist til að
fá sér dagvinnu sem þjónn eða
búðarloka til að hafa ofan í
Sig að éta. Já, hainn tagðdst
jafnvel svo 'lágt að gerast
sendill. En á kvöldin hélt
hann sig á Broadway. Smám
saman eignaðist hann vini, sem
sáu til þess, að jakkaómyndin
hans var lagfærð og gerð okk
uð frambærileg — ef svo kynni
að fara, að einhver leikstjór-
inn, sem vantaði strákling ti)
að segja eitt orð sviðinr,
kæmi auga á hann.
Þessiir sömu vinir útveguðu
honum pláss á leikskóla —
honum að kostnaðarlausu -—
og fyrir velvilja skólayfirvalda
var honium boðiið smáhlutverk
í sjónvarpsþætti og annað
ámóta í leikriti á Broadway.
Eftir þetta hélt hann sig ein
göngu iininan veggja leikhús-
anna, tilbúinn til að gera hvað
sem var. Sendill, sviðsmaður,
hvíslari, ekkert starf var of
litið. Hann hafði allt að vinna
— engu að tapa. Fyrsta smá-
hlutverkið leiddi til annarra
smáhlutverka og á endanum
komst nafn hans í blöðin.
Árið 1964 vakti hann athygli
leikhúsgesta fyrir leilk sinn í
leikritánu „Harry, Noon And
Night“ og menin spurðu hver
ahnam: „Hver er hamin þeissi
Dustin Hoffman?" Rúmu ári
seinna vissu flestir þeirra eitt-
hvað um hann. Þá hafði hann
leikið i nýjum verkum og stað-
ið sig vel, svo vel, að leikstjór
inn Mike Nichols kallaði hann
til Hollywood til þess að kom-
ast að þvi, hvort Dustin Hoff-
man hefði — þrátt fyrir sér-
stætt útlit — einhverja hæfi-
leika fyrir kvikmyndir. Dustin
Dustin og Jon Voight í aðal-
hlutverkum myndarhmar „Mid
nigiit Cowboy“, en sú mynd
Iilaut Óskarsverðlaunm 1970
sem bezta mynd ársins.
var ein taugahrúga, en samt
komst hann gegnum prufu-
hlutverkið og honum var sam-
stundis boðið aðalhlutverkið i
myndinni um elskhuga frú Rob
inson. Dustin átti að leika ung
an stúdent, sem yljaði ríkri,
miðaldra konu í hótelherbergj
um um nætur. Dustin lék öðru
visi en áður hafði þekkzt, en
allir fylltust hrifningu. Morg-
uninn eftir frumsýningu mynd
arinnar var Dustin umkringd-
ur glæsilegum stúlkum, sem
voru allar hjartanlega sam-
mála um, að hann væri falleg-
ur.
Næst lék hamn í myndinni
„Midnight Cowboy" ásamt öðr
um ungum leikara, Jon Voiight
og aftur hlaut hann afbragðs
góða dóma gagnrýnenda og
áhorfenda. Síðan kom myndin
,John and IVÍary", þar sem
hann lék á móti Miu Farrow;
frábærir dómar. Siðasta mynd
in hans heitir „Little Big Man“
og fjallar hún um sögu villta
vestursins. Dustin leikur þar
ein tíu hlutverk, ef ekki fleiri.
Hanin er Indíáni, kúreki, skóla-
strákur, drykkjurútur, njósn-
ari, einsetumaður, byssubófi,
loðdýraveiðimaður og hver veit
hvað. Og alltaf leikur hann
óaðfinmaniega, og allifcaf ei-u
áhorfendur jafn hrifnir. Já,
Dustin er maður að okkar —
og ykkar — skapi.
Dustin — skólastrákúr í mynd inni „Little Big Man“.
29. nóvemiber 1970