Lesbók Morgunblaðsins - 21.02.1971, Side 4

Lesbók Morgunblaðsins - 21.02.1971, Side 4
JAPANIR MYNDA ISLAND Forsíða á japanska blaðinu, sem raunar er baksíða eftir okkar venjn. Bammíslenzkt landslag:, en liver þekkir þetta f jalllendi? Goðafoss. Myndin er tek in á móti sól og; að sjálf- söffðu úr lofti. Brúin lijá Fosshóli er í hægpra horni myndarinnar að neðan. Sannarlega óvenjulefj mynd af Skjálfandafljóti og- Goðafossi. Nýlega harst okkur npp í hendnr veg- legt tímarit frá Japan. I»ví miður liefur ekki tekizt að ráða í, hvað það lieitir, en þetta er mjög fallegt rit og forsíðan er að sjálfsögðu, þar sem við liöfum bak- síöii. Síðan flettir maður blaðinu öfugt og les. . . nei, annars, maður les ekki orð, því miður. Þvi blaðið er prentað með japönsku letri. En það sem sérstaka at- hygli vekur er forsíðan á bakinu. I>ar er landslag. Eitthvað kemur það kunnug- lega fyrir sjónir. Varla getur þetta verið í Japan, þó að Japan sé fjallaland, meira að segja eldfjallaland og þar að auki set ur þar snjó i fjöll og líklega á lláglendi líka. Á þessari mynd mátti sjá mikið í jall- lendi, fremur flatt efra, en inn í það skárust þröngir dalir með augljósu fann fergi. En handan fjalla: Blómlegt liérað í breiðum dal. Og sól skein á fannir. En gróður? Hann var ekki að sjá. Aðeins grjót. Melar, klappir, liamrabelti, skrið- ur. Öll tilbrigði grjóts. Hvað gat það verii’j annað en ísland? Viti menn; í næstu opnu þurfti maður Tvær ungar stúlkur með barnavagn. Myndin er í mjög heit ekki Iengur vitnanna við: ÞingvöIIur. um og sterkum litum og myndar fjöruga andstæðu við En myndin var tekin frá óvenjulegu víðáttur landslagsmyndanna. sjónarhorni: t'lr flugvél un» af Kárastaða- nesi og sá inn eftir endilöngnm gjánum. Stórkostlega falleg mynd. Gjárnar gáfu hugmynd um mikla dýpt, mikla f jarlægð. En. síðan hver opnan af annarri með stórfenglegum litmyndum: I>rír gígar á vatnsbakka, fjalllendið milli Skagafjarð- a.r og Eyjafjarðar. Námaskarð, óravídd- ir öræfanna í nánd við Hofsjökul og Herðubreið, dalbotn norðanlands, búðar rústir á Þingvöllum, Strokkur í Hauka- dal að gjósa, Goðafoss úr lofti, en að lokum nokkrar ungar stúlkur á götum Reykjavíkur og forseti fslands. Hvergi er mynd af húsi; íslenzk hús hafa greini Iega ekki vakið athygli þessara jap- önsku Ijósmyndara, sem lögðu leið sína hingað til lands síðastliðið sumar. Kannski er þeim ekki láandi. Að vísu sést grilla í hús á bak við ungu stúlk- urnar í Austurstræti og það er eitt þess ara nýju ál- og glerhúsa í öllu sínu yfir- þyrmandi andleysi. Var það nema von, að Japanir beindu linsum sínum öllu frem ur að grjótinu og víddum öræfanna. Svo bergnumdir hafa þeir orðið af ósnort- inni náttúru óbyggðanna, að livergi er svo niikið sem eina hríslu að sjá á öll- um þessum myndum. I>cir hafa ekki líkt og sumir íslenzkir ljósmyndarar, lagzt á magann undir einhverja runna til að gefa þá alröngu hugmynd, að skógur skipti einhverju máli fyrir útlit lands- ins. Svo er og hitt, að nóg er af trjám í Japan. Tré eru ekki fréttnæm. En silf urtært loft er það, ekki sízt í Japan, þar sem iðnaðarjöírarnir eru að kaffæra allt í ofboðslegri mengun, svo hægt sé að keppa við þróaðar iðnaðarþjóðir og selja ódýrt glingur á Vesturlöndum. Hvergi í heiminum hefur orðið önnur cins aukning á bílafjölda scm í Tokio. Umferðarvandamálið þar er geigvænlegt. Einnig liefur mengun náð þeim punkti, að luin má ekki aukast. Sagt hefur ver- ið að menn tali mest um það og óskl þess mest, sem þeir hafa ekki. Þegar Japanir auka framleiðslu sína ár frá ári og fara fram úr öllum áætlunum, þá verð ur þeim um leið Ijóst, livaða verði þess- ar svokölluðu framfarir eru keyptar. I>á kenuir i ljós, að til eru þeir lilutir, sem ekki verða keyptir fyrir peninga. Þá beina menn sjónum sínum þangað, sem náttúran er óspillt, loftið lireint, árnar tærar. Þá sjá menn ef til vill, að Ódáða hraun.er stórkostlegt í öllu sínu veldi, 4 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 21. febrúar 1971

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.