Lesbók Morgunblaðsins - 06.06.1971, Blaðsíða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 06.06.1971, Blaðsíða 6
JÖNAS HARALZ MARKMIÐ OG LEIÐIR SÍÐARI HLUTI LEIÐIR VAL LEIÐA Hér að framan hefur fyrst og fremst verið leitazt við að gera grein fyrir markmiðum þjóðfélagsþróunar, hver þau helztu þeirra hafi verið á und- anförnum áratugum, hvaða mis munandi áherzla hafi verið á þau lögð, og hvaða viðhorf blasi nú við í vali markmdða. Leiðirnar að þessum markmið- um hafa ekki beinlinis verið gerðar að umræðuefni, þær að- ferðir, sem beitt hefur verið eða unnt er að beita í sókn- inni að þeim, nema að þvi leyti, sem umræður um leiðir óhjá- kvæmilega hljóta að fléttast saman við umræður um mark- miðin sjálf, svo nátengt sem þetta tvennt er hvort öðru. Rétt er þó að beina athyglinni einnig að sjálfum leiðunum, að reyna að átta sig á þvi, hvað reynsla undanfarinna áratuga getur kennt okkur um þessar leiðir, hversu árangursríkar þær hafa reynzt og hverjar þeirra sé sennilegt að reynist hagkvæmastar framvegis. Þetta er því mikilvægara, þar sem mismunur þjóðfélags- og stjórnimálaskoðana og ágrein- ingur á milli stjórnmáiafiokka er meiri í þessu efni en varð- andi sjálf markmiðin. Það er ekki við öðru að bú- ast, en að einstrengingshætti í skoðunum og vali á markmið- um fylgi einstrengingsháttur í vali leiða. Ef eitt eða fá mark- mið eru talin skipta öilu máli, er ekki nema eðlilegt, að hver sú leið, sem talin er ná mark- inu með skjótustum hætti, sé talin sú bezta og lítið sé um það hirt, hvaða aðrar afleiðingar hún hafi í för með sér. 1 styrj- öld virðist mönnum aðeins eitt skipta máli, að vinna sigur. Á sama hátt er það arðeins eitt, sem máli skiptir fyrir þann mann, sem er nægilega sann- færður um ágæti þess mark- miðs, sem hann keppir að, nægi lega trúaður á, að það og það eitt færi fólki biessun. Siíkum mönnum finnst í raun og veru, að þeir séu í sífelldri styrjöld og það þjóðféiagsástand getur myndazt, að fjölda fólks, jafn- vel miklum hluta heillar þjóð- ar, finnist þetta sama. Jafnvel í styrjöld hafa þó ekki allar fljótvirkar leiðir reynzt árangursríkar þegar til lengdar lét. Orrustur hafa ver- ið unnar, en styrjaldir tapazt. Unnir sigrar hafa orðið upphaf nýrra ósigra. Með hliðstæðum hætti og við höfum áður rakið um markmiðin sjálf getur sú leið, sem í fyrstu virðist bein- asta leiðin i reynd orðið sú, sem aldrei nær markinu, en sú, sem virðist krókótt og tafsöm, þegar allt kemur til alls reynzt vera sú, sem skilar lengst í átt ina. „Vort ferðalag gengur svo grátlega seint“ sagði Þor- steinn Erlingsson, . . gaufið og krókana höfum við reynt — og framtiðarlandið er fjarri." Þess vegna vildi hann reyna, „að brjótast það beint, þó brekkurnar verði þar hærri.“ Samtíðarmaður Þorsteins, Einar Benediktsson, talaði aft- ur á móti um „að brjótast frá sókn þeirra vinnandi vega, um vonlausu klifin á hrapandi feH.“ Hvað er nú til málanna að leggja í ljósi reynslu und- anfarinna áratuga? Hver hef- ur reynslan orðið af beinum leiðum og krókóttum, af því að ráðast á brekkur og fell eða þræða dali og skörð? BEITING RÍKISVALDSINS Ágreiningurinn um val leiða hefur á þessari öld fyrst og fremst snúizt um þátt ríkis- valdsins í þjóðfélagsþróuninni. Þeir, sem lengst hafa viljað ganga, hafa viljað beita ríkis- valdinu út í yztu æsar, til að ná þeim markmiðum, sem stefnt hefur verið að. Rekstur rikis- ins á atvinnufyrirtækjum og hvers konar stofnunum, bein fyrirmæli frá ríkinu um fram- leiðslu og verðlag, jafnvel bein fyrirmæli rikisins til almenn- ings um atvinnu, neyzlu og vinnutíma, hafa þótt eðlileg tæki til að ná eftirsóttum mark miðum, hvort sem um var að ræða atvinnuöryggi eða aukna velmegun, eða þetta hvort tveggja í senn. Á hinn bóginn hefur verið uppi sú skoðun, að afskipti ríkisvaldsins ættu að vera sem allra minnst, í raun réttri ekki annað en að halda uppi lögum og rétti og reka nokkra aðra mikilvæga þjón- ustustarfsemi, sem erfitt væri að koma fyrir með öðru móti. Hvorug þessara andstæðu skoð ana hefur þó í hreinni mynd sinni átt nokkru fylgi að fagna á Vesturlöndum nú um langt skeið, enda þótt þær kunni enn að skjóta upp kollin.um í stjórnmálaumræðum. Fyrri leiðin hefur sem kunn- ugt er verið reynd í iöndum kommúnismans i Austur- Evrópu og Kína, og nú síðast í nokkrum þróunarlöndum í ýmsum heimsálfum, alls staðar með alkunnum og skelfilegum afleiðingum. Það athyglisverð- asta í þeirri reynslu, eru þó jafnvel ekki þær skelfing- ar, sem þessar þjóðir hafa orð ið að ganga í gegnum, því að þær skelfingar sáu leiðtogarn- ir sjálfir að meiru eða minna leyti fyrir og voru fúsir til að réttlæta í nafni þess mikla og skjóta árangurs, sem vænta mátti. Harmleikurinn er öllu fremur fólginn i því að þraut- irnar hafa verið unnar fyrir gýg, að heilum kynslóðum hef- ur verið fórnað til einskis. Sá árangur, sem lönd kommúnism- ans hafa náð i að tryggja fé- lagslegt öryggi, efla hagvöxt, ná almennri velmegun, í stuttu máli sagt að ná öllum þeim markmiðum, sem réttlæta áttu hið geysilega átak, er sizt meiri en aðrar þjóðir, sem beittu öðr- um aðferðum, náðu á svipuðu þróunarstigi eða hafa náð á sama tíma. Lönd Austur- Evrópu horfa nú fram á við- tæka stöðnun og efnahags- kreppu, svo framarlega sem þeim tekst ekki að koma á rót- tækum breytingum í efnahags- málum í þá átt að draga úr beinum afskiptum og áhrifum ríkisins, veita stjórnendum at- vinnufyrirtækja meiri áhrif og ábyrgð og almenningi meira frelsi í atvinnu og neyzlu. Öll hafa þessi lönd á síðustu árum reynt að stefna i þessa átt, en yfirleitt með litlum árangri, vegna þess hversu fast þau eru reyrð í það skipulag, sem all- an vanda átti að leysa, en nú er 1 litlu unnt að breyta eða lagfæra án þess að eiga á hættu, að það hrynjd til grunna. HAGKERFI VESTURLANDA Andstæða þessarar skoðunar, algert eða svo til algert af- skiptaleysi rikisins, hefur í raun og veru hvergi verið framkvæmd á Vesturlöndum síðan fyrir heimsstyrjöldina fyrri, enda þótt hún hafi í meg- in atriðum átt við stjórnarfar sumra Evrópulanda — og þá einkum Bretlands — á öldinni sem leið. Þróun almenns lýð- ræðis annars vegar og það æ margbrotnara þjóðfélag, sem óx með iðnbyltingunni hins vegar, gerðu það að verkum, að þessi þjóðfélagshu gmyn d varð ekki lengur raunhæf fyrirmynd. 1 stað þessara tveggja fyrir- mynda hefur á Vesturlöndum þróast nýtt fyrirkomulag efna- hagsmála, sem oft á tiðum er nefnt blandað hagkerfi. Hugs- unin, sem að baki þeirri nafn- gift liggur, er sú, að ríkjandi hagkerfi sameini viss atriði beggja þeirra andstæðu skoð- ana, sem áður eru nefndar. f rauninni er þetta nafn þó rang- nefni. Réttlátara er að líta á þá hagstjórnarhætti, sem þró- azt hafa á Vesturlöndum und- anfarna áratugi, sem sjálfstætt kerfi heldur en einhvers kon- ar blöndu óskyldra og raun- ar ósamrýmanlegra hagkerfa. Hver eru þá aðaleinkenni þessara hagstjórnarhátta? f stuttu máli má segja, að aðal- inntak þeirra sé einbeitt og öfl- ug stjórn opinberra aðila á þeim þáttum efnahagslífsins, sem mynda almenna umgerð um efnahagsstarfsemina, og þá einkum á fjármálum og pen- ingamálum, samfara því að ábyrgð á atvinnurekstri og hvers konar þjónustustarfsemi sé hjá fyrirtækjum og stofnun- um og frelsi almennings til að ráða neyzlu sinni og velja sér menntun og störf sé sem mest. MISMUNUR STJÓRNMÁLASKOPANA Um grundvallaratriði þessara hagstjórnarhátta hefur i reynd myndazt viðtæk samstaða stjórnmálaflokka, hvað sem flokkarnir kunna að láta í veðri vaka í stefnuskrám og ávörpum. Þessi samstaða hef- ur víða myndað grundvöll stjórnmálasamstarfs ólíkra flokka, jafnvel um langt skeið, eins og reyndin hefur orð- ið hér á landi. Samfara þessu hafa stjórnmáladeil.ur í raun- inni mjög sljákkað frá því, sem áður var. Þessi samstaða felur þó ekki i sér, að enginn ágrein ingur á milli stjórnmálafiokka sé lengur fyrir hendi, held- ur að þessa ágreinings gæti ekki, þegar flokkarnir, oft á tíðum í sameiningu, standa and spænis úrlausn knýjandi við- fangsefna. 1 raun og veru er enn sem fyrr til staðar grund- vallarmunur á stjórnmáiavið horfum, raunar mætti segja á Iífsviðhorfum, sem mestu ræð- ur um það, hverm.g menn skipa sér i stjórnmálaflokka. Sá munur á stjórnmálaskoð- un.um, sem hvarvetna gætir á Vesturlöndu.m, og einni.g hér á landi, er í aðalatriðum fólginn í því, að þeir flokkar, sem kenna sig við jafnaðarstefnu eða sósíalisma, eða telja sig vinstri flokka, eru fúsari eða ákafari til þess að ganga til- tölulega langt í beitingu rík- isvaldsins en aðrir flokkar. Þeir eru að vísu ekki lengur fylgjandi þjóðnýtingu eða rík- isnekstri, sem alls staðar hefur gefizt illa nema rikisfyrirtæk- in séu í ein.u og öllu rekin eft- ir sömu sjónarmiðum og einka- fyrirtæki. En þeir hafa allríka tilhneigingu til ýmiss konar annarra ríkisafskipta af at- vinnulifinu. Þessi afskipti geta verið í mynd beins fjárhags- legs stuðndngs við atvinnufyr- irtæki í vissum atvinnugrein- um, eða heilum landshlutum, jafnvel við einstök fyrirtæki. Þau geta verið fólgin í starf- semi opinberra sjóða eða banka. f Svíþjóð hefur stjórn jafnaðarmanna um alllangt skeið markvisst unnið að au.kn um áhrifum rikisins á atvinnu- lífið einmitt með þessum hætti. Þau geta einnig komið fram í sköttum, sem leggjast sérstak- lega á atvinmureksturinn eða jafnvel vissar tegundir at- vinnurekstrar. Loks geta þau verið í mynd verðlagseftirlits eða beinnar íhlutunar um verð- lag og laun undir sérstökum kringumstæðum. Þótt undarlegt kunni að virðast, fylgir þess- ari viðleitni til ihlutunar jafn- framt nokkur hneigð til tdlslök unar í hinni almennu stjórn efnahagsmála. Er þá talið, að hin almenna stjórn geti verið of hörð og taki ekki alltaf nægilegt tildit til félagslegra atriða eða sérstakra aðstæðna. Þess vegna geti verið seskilegt að slaka á henni að vissu marki, og þetta komi ekki að sök, sé bein rikisíhlutun auk- in að sama skapi. Þeir stjórnmálaflokkar aftur á móti, sem aðhyllzt hafa frjálst framtak og taldir eru standa í miðju stjórmmálanna eða á hægri væng þeirra, eru yfir- leitt mótfallnir rikisíhlutun af því tagi, sem að framan er lýst, nema þá í takmörkuðum mæli og i skamman tíma. Þeir gera sér jafnframt ljósa grein fyr- ir nauðsyn styrkrar stjórnar hinna almennu þátta efnahags- málanna. Það er á því bili, sem hér hefur verið lýst, og sem í raun og veru nær ekki frá einni and stæðu til amnarrar, sem stjóm- málaumræður fara fram og stjórnmálabarátta er háð alls staðar á Vesturlöndum. Bilið er það mjótt, ágreiningurinn það litill, að engin þáttaskil verða, þegar ein stjórn tekur við af annarri, enda þótt önn- ur sé talin til vinstri en hin til hægri. Sumir stjórnmálafræð- ingar, ekki sízt Svíinn Herbert Framhald á l)ls. 12. 6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 6. júní 1971

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.