Lesbók Morgunblaðsins - 04.07.1971, Blaðsíða 12

Lesbók Morgunblaðsins - 04.07.1971, Blaðsíða 12
"EN MÐ £R TIL Þ€1SS. RÐ f»0 RÆGIR SHNTCN OGTESPI SYNIRMLS HÖSKULT': K7 SKflLT BJÓÐR NJflLSSöNli hGJTÍ OG LCYSA LRÍBROTT flSÍ) GJÖFUM". PEG SMl LGGGJfl RflÐITJ TILj YGGIR VflLGRRÐUR. NOKKRU SÍÐflR R€lí) ITÖRDUR TIL BGRGÞÓRST1V0LS ÞGSSR RÉTRGCRÐ FGSTU ÞÖIRj ÍTCD SÉR... fEN ME GRU MRRGIR TIL eFTIRMflLS UM RflNN OG ÍMUNU ÞÁ NOflLSYNIR flF Þfílfl feÖKUM. LRGPNIR NGRTfl ". NxIflLS 5ÖGU §8 ; • m tthxi ..911 1 1 I ; Smásagan Framhald af bls. 4. hvert annað húsgagn, steig á bak hesti sínum og reið brottu eins og ekkert hefði orðið tíð- inda. Upp frá þessu kvöldi áttu þeir hana báðir. Enginn vissi öll smáatriði þessarar hneyksl- anlegu sambúðar, sem stríddi gegn allri sómatilfinningu fólksins þarna i grenndinni. Þetta gekk svona tii í nokkr- ar vikur, en þessi tilhögun átti enga framtíð fyrir sér. Sín á milli nefndu bræðurn- ir aldrei Júlíönu á nafn, ekki einu sinni til þess að kalla á hana, en þeir voru ósáttir þótt undir niðri væri og fundu sér þrætuefni án tiitakanlegrar fyrirhafnar. Þeir þráttuðu til dæmis um sölu á nokkrum nautshúðum, en voru í raun og veru að þrátta um allt annað. Cristian brýndi yfirleitt raust- ina, en Eduardo gætti jafnan stiilingar. Án þess að gera sér þess grein, voru þeir bræður orðnir afbrýðisamir. í þeim óheflaða félagsskap, sem þarna var i grenndinni lét enginn maður það uppi við annan og játaði það ekki einu sinni fyrir sjálf um sér að kona gæti skipt máli, nema þá sem eitthvað að girnast eða eignast, en Nilsen- bræður voru ástfangnir. Og þeim var auðmýking að þvá. Síðdegis dag einn á Plaza de Lomos rakst Eduardo á Juan Ibarra, sem lét í ljósi aðdáun sina á þessari stórsnjöliu til- högun, sem þeir bræður hefðu á hlutunum. Ég held að það hafi verið þá sem Eduardo tók hann taki. Engum leyfðist að segja hnjóðsyrði um Cristian í hans áheyrn. Konan þjönaði þeim báðum með undirgefni eins og skyn- laus skepna, en hún gat ekki leynt þvi, að óumdeilanlega var henni yngri bróðirinn skap felíldari og þótt hann hefði að vísu ekki falazt eftir þessari tilhögun á sambúð þeirra, hafði hann ekki heidur visað henni á bug. Dag einn sögðu þeir Júlíönu að ná í tvo stóla úr fremri húsagarðinum og halda sig svo fjarri, þvi þeir þyrftu að ræða einslega um alvörumál. Hún bjóst við löngum samræðum og iagðist fyrir að fá sér blund, en það leið ekki á löngu áður en þeir kölluðu á hana aftur. Þeir létu hana setja allar sín- ar eigur í dálítinn pokaskjatta, að ógleymdu glertalnabandinu og litla krossinum, sem hún móðir hennar sáluga hafði gef- ið henni. Án þess að orðlengja það frekar settu þeir stúlkuna upp í kerruna og iögðu af stað í langa ferð og stranga, ájn þess að mæla orð frá vör- um aila leiðina. Það hafði rignt, vegirnir voru erfiðir yfirferðar og klukkan var orðinn ellefu að kvöldi þegar þeir komu loks til Morón. Þar afhentu þeir hana forstöðukonu vændiskvenna- húss á staðnum, eins og áður hafði verið um samið. Cristi- an tók við peningunum og lét Ediuardo fá siinn hlut síðar. 1 Turdera reyndu þeir Nil- sen-bræður aftur að vera menn með mönnum, en voru þó eins og fiskar fangaðir i neti þessar ámælisverðu ástar sinnar á stúlkunni. Þeir fóru aftur að spila póker, slást og drekka sig f.uiia öðru hvoru og stundum fannst þeim kannski sem nú gætu þeir um frjálst höfuð strokið, en það kom fyr- ir að annar hvor þeirra var fjarri, kannski eðlilegra er- inda, kannski ekki. Nokkru fyrir árslok lét yngri bróðirinn þess getið að hann ætti erindi ti'l Buenos Aires. Cristian fór til Morón og í húsagarði húss þess sem áður hefur verið á minnzt þekkti hann aftur skjótta hest- inn bróður síns. Hann gekk inn fyrir. Bróðir hans beið þar eftir því að röðin kæmi að honum. Cristian sagðist svo: „Fari þessu svona fram, er það fráleitt slit á hestum. Við verðum að hafa einhver önn- ur úrræði með stúikuna." Hann tók forstöðukonuna talli, reiddi fram noikkra pen- inga úr beltisipyngju sér og þeir héldu burt með stúlkuna. Cristian reiddi Júlíönu. Edu- ardo rak sporana í hest sinn, svo hann ekki sæi til þeírra. Þegar heim var komið, sótti allt í sama horfið. Þeim hafði mistekizt að leiða málið til iykta með einurö og hörku. Báðir höfðu þeir faiiið í þá freistni að reyna að vilia hin- u.m sýn. Merki Kains var yfir þeim, en þeir voru tengdir traustum böndum. Þeir höfðu sigrast á ótöldum erfiðleikum, boðið byrginn ótal hættum, allt af saman — og þeir kusu að skeyta skapi sínu á öðrum — á ókunnugum, á hundunum, á Júiíönu, sem rekið hafði fleyg- inn í sambúð þeirra. Marz var nærri iiðinn og hit inn var enn samur og jafn. Sunnudag einn (það er siður á sunnudögium að fara snemma í háttinn), þegar Eduardo kom heim frá kránni á horninu, var Cristian að leggja á uxana. Hann mælti svo: „Haskaðu þér, bróðir. Við þurfum að skiia nokkrum nautshúðuim til Pardosfólksins. Ég er búinn að láta þær í kerr una. Við skulum hafa hraðann á, nota okkur kvöldkulið." Hús Pardosíjölskyildunnar iá að ég held fyrir sunnan þá. Þeir héldu eftir Camino de las Tropas, en tóku svo á sig dá- litinn krók. Landið var vítt og faguirt fyrir sjónum þeim í kvöldhúminu. Þeir fóru hjá brúsk aí þurrum marhálmi. Cristian fleygði frá sér vindlitngnum, sem hann hafðd kveikt í og sagði eins ag ekkert væri: „Jæja, bróðir, við skulum kotna okkur að verki. Hræ- fuglarnir leggja svo sitt af mörkum síðar. Ég drap hana I dag. Við skulum skilja haiia hér eftir meö glingrið sitt allt, hér, þar sem hún getur ekki gert okkur neitt til miska íramar.“ Þeir féllust í faðma bræðurn- ir, við lá að þeir táruðust. Nó batt þá enn eitt bandið — kon- an, sem fórnað hafði verið þungum harmi og sú kvöð að gleyma henni. 12 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 4. júlí 1971

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.