Lesbók Morgunblaðsins - 22.08.1971, Page 3

Lesbók Morgunblaðsins - 22.08.1971, Page 3
SSkJ EFTIR HALLDÓR PÉTURSSON WILLIAM HEINESEN ELFARNIÐUR yfirráð í litnum, hún er alltaf kólgufull af jökulleðju, en Lag arfljót, þótt talið sé jökulvatn, er aðeins skoliitt. Þetta er að- eins tilgáta, því að Lagarfljót hefði átt að ráða nafninu á far veginum, enda er það nefnt Fljót á þessu svæði, bæði í Njálu og Fljótsdælu. I þessum forna farvegi var úrvalisengi, þar til ræktunin aflagði engjar. Við Fljótskjaft- inn er nú tekin steypumöl. Ég þekkti strax steypuefnið af lyktinni og líka mölina, svo mikið áttum við Jökia saman að sælda. Eftir að Ásgrímur Geirmundsson hafi keyrt mig heim ti'l sín aftur, fór ég að hitta Ragnar bróður hans, sem býr á Sandi, nýbýli úr Hóls- landi. Við Ragnar gengum svo inn að Einarsstekk, sem ekki mun vera gamalt nafn. Þarna hefur áreiðanlega verið býli til forna, sem síðan hefur verið breytt í stekk. Mér datt meira að segja i hug, að nafn þetta gæti ver- uð kennit við Einar langafa minn, sem bjó á Hóli fyrir um 160 árum. Ásgrímur hyggur, að þarna hafi hið forna Bakkavað verið, sem getið er um í Fljóts- dælu og eftir öllum likum það sama og getið er um í Njálu i sambandi við för Flosa. Þarna hefur fljótið runnið í tveim kvíslum ein hvorum megin dá lítils hávaða og er lítið niður- grafið. En þarna rétt fyrir neðan snöggdýpkar f'arvegurinn svo, að þar mundi óreitt. Þarna gat hafa staðið býlið Bakki, sem kennt er við vaðið. Bakkatætt ur og Bakkatóftavégur eru enn til sem örnefni. Frá Einars stekk beygir farvegurinn sem næst í suðvestur, um 3ja km leið. Þá beygir hann aftur og krókar sig austur í Selfljót inn an við Klúku, nær Engiiæk og Jórvik. Fljótið hefur el'tir sam- runa við Jökulsá verið geysi- vatnsfall, og eftir að það féll i Selíljót, hefur það verið óreitt. Ef marka má fornar sögur, hef- ur Selfljót verið mikið vatns- fall eftir samruna vatnanna, sem ekki er að undra. Skipum á að hafa verið siglt inn að Arnarbæli neðan við Klúku og jafnvel inn að klettum við Kó- reksstaði, þar haifa átit að vera merki eftir festarhringi. Brand krossaþáttur er að vonum ekki hátt skrifaður, en þar er getið um tvo bræður, setm réðust ut- an i Unaósi og styðst það trú- lega við gamlar heimildir. Þetta er ekkert ótrúlegt, en haldið lygi miðað við Seifljót nú til dags. Eftir að fljótið brýtul' sér hinn nýja farveg, fyrnist hin gamla vatnaleið og orðtök og örnefni þessu viðvíkjandi verða lítt skiljanleg. III. Nú skulum við athuga yfir- skrift þessa greinarkorns: ,,fyr ir neðan Fljót.“ Ég hef hvergi heyrt þetta orðtak notað, né séð það ritað nema í Njálu, og þó einhvers staðar hefði verið sagt, „fyrir neðan Fljót,“ þá væri það ekki bundið við „og yfir heiði til Njarðvíkur." Ekki get ég heldur skilið að nokk- urs staðar á upphéraði geti verið sagt „fyrir neðan Fljót." Hafi upphéraðsmenn þurft að fara yfir heiði til Njarðvikur, fara þeir annaðhvort fyrir of- an íljótsbotn út að austan eða út með Fljóti að norðan, ríða það síðan á vöðum fyrir utan Egilsstaði, og þurfa þá ekki að nota Bakkavað. Við Austfirðing ar tölum mikið um „fyrir ofan og neðan, utan, innan og fram an, niður á við, upp á við“ og svo mætti lengi telja. Við erum utan þess með ótal áttamiðan- ir, sem ekkert eiga skylt við áttavita. Strax er ég fékk þessa hug- dettu um orðtakið „fyrir neðan Fljót“, þóttist ég u/idir eins skilja, hvernig það heyfSii mynd azt. Þegar fljótið vinkilbeygir til forna við Steinbogann, beint í austur, þá förum við fyrir neðan það, eftir okkar mál- venju, þvi að landinu hallar öllu til sjávar. Eins og ég hefi áður tekið fram, fyrnist yfir þetta máltæki, eftir að fljótið bi-eytir um farveg, og með tím- anum verður það óskiljanlegt og talið vitleysa. En höfundur Njálu virðist hafa vitað betur og setur þetta inn sem sjálf- sagðan hlut. Nú er mikið gert að þvi við sögukönnun og í leit að höfundum að athuga, hvar höfundar voru kunnug- astir á sögusvæðinu. Náttúr- lega getur það hent, að höfund ur hafi haft fyrir sér aðra sögu og tekið kafla úr henni að ein- hverju leyti, en vart mjög stað bundnar setningar. Sjálfur get ég ekki varizt þeirri hugs- un, að orðataikið: „fyrir neðan Fljót“ bendi tll að Austfirðingur hafi skrifað Njálu. Hverjum öðrum en ná- kunnugum manni gat dottið í hug að rita svona setningu, ef tilgáta min er rétt, um skýr- ingu hennar? Er hugsanlegt að t.d. Rangæingur hefði látið svona setningu drjúpa úr penna sínum ? ölll staðþekking Njáluhöfundar bendir skýrast til Austfjarða, því getur eng inn neitað. IV. Við skulum nú í stuttu máli athuga liðsbón Flosa. Hann gist ir á Bessastöðum, ríður svo út Hérað og „fyrir neðan Fljót“ til Njarðvíkur. I fornum sögum er lítið gert að því að lýsa lands- lagi og staðháttum, nema frá- sögnin beinlínis krefjist þess. I mínum augum er þetta ferðalag Flosa út Hérað og „fyrir neðan Fljót“ næsta broslegt. Við megum ekki gleyma því, að þetta er um hávetur og öll vötn ísilögð og stálheld. Hvað varðar Flosa um Fljótið, bráð- ókunnugan mann? Ekki neitt. Sjálfsagt er, að hann fari bein ustu leið um hávetur, annað hvort út Fljótið eða öðru hvor- um megin við það, afla leið út að Fossi. Þaðan fer hann út Eiða- og Hjaltastaðaþinghá og síðan til Njarðvikur. Það þarf tölu- vert hugmyndaflug til, að bráð- ókunnugur maður fari að krækja út hjá Steinboga til að fara fyrir n-eðan Fljótið á ís. Leynist hér ekki saga á bak við söguna. Að hyggju Barða Guðmundssonar, er Flosi í hinni fi-ægu liðsbón í gervi Þor varðair Þórarin-ssonar, og auð- vitað er það afilt önnur liðs- bón, sem þar er um að ræða, hefndin eftir Odd bi'óður hans. í þessari liðsbón, er ekki víst, að hann sé að koma frá Bessa- stöðum, þó gæti slíkt vei'ið, hafi hann farið Smjörvatnsheiði. Hann getur líka verið að koma að heintan, frá Hofi í Vopna- firði. Þetta er að sumarlagi og hann gagnkunnugur. Hann kem ur Hellisheiði, og trúlegt er, að á meðan Jökla fer svona mik- ið austur, hafi hún verið reið á svæðinu frá Geirastöðum og að ósi. Þetta er skeiðvegur að ríða Aurana, neðan við Steinbogann og síðan „fyrir neðan Fljót“ og yfir á Bakkavaði. Á þessum tíma mun þetta hafa verið leið Úfhliða/r- og Út- tungumanna, sem erindi höíðu í Útmannasveit og Borgarfjörð. í skáldsögum með sagnfræði legu ívafi, er hægt að hnika mörgu tifl. Haifi Þorvarður ritað Njálu, fer hann þessa leið í hug anum og gleymir þó ekki þessu forna máltæki sem ekk- ert á skylt við ísareið Flosa. Þessar hugdettur mínar skaða engan, en kannski hafa einhverjir gaman af að athuga þetta nánar. Með því að safna heimildum og gera kort af þessu, má óefað draga upp skýrari mynd. Hún gekk hjá fljótsins iðu á framandi strönd — en vorkvöldið leið — og sjá, það var hún sjálf, sem hún leiddi sér við hönd. — Komdu, komdu, komdu, þú, sem leiðir þig sjálfa þér við hönd. í straumiðuna hverfðust hin hvítu löðurblóm — en vorkvöldið leið — þau brustu þar og hurfu svo hvít í auðn og tóm. — Komdu, komdu, komdu með í dansinn og hverfðu í auðn og tóm. Hún setti sig hjá fljótinu, og föl var hún á brá — en vorkvöldið leið — af angist og kvíða hún augum lokar þá. — Komdu, komdu, nú spinnur svefninn draumsilki silfursnældur á. Raddir þúsund vatna runnu saman í einn hljóm — en voi'kvö-ldið leið — unz veröldina sveipuðu svefnsins hvítu blóm. — Komdu, komdu, nú sveipa draumi veröldina svefnsins löðurblóm. Og sál hennar leið inn í þennan undarlega hljóm — en vorkvöldið leið — og hún var eins og hörpuskel svo hrein og fáð og tóm. — Komdu, komdu, þín sál er djúpsins hörpuskel svo hrein og glöð og tóm. Þýð.: Giiðiiiundur Arnfinnsson. 22. ágúst 1971 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 3

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.