Lesbók Morgunblaðsins - 22.08.1971, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 22.08.1971, Blaðsíða 8
Tíu ár, — einn áratiiffnr; Jjað et ekki langur tínii, þegar lit- kl er iun öxl. Það er svona þeg- ^' maður er ung-ur, segja þeir inigu; þá líður nú tíminn. Bíð- ið þið bara við, segja þeir elari: Tíminn líður sífellt lirað- ar og liraðar, eða öllu Iielilur: Manni finnst hann sífellt hlaupa hraðar frá manni. En það er auðvitað blekking, já iivað er það sosum, sem er ekki blekking? En það var einn sólbjartan dag fyrir tíu árum, eða réttara sagt að kvöldi eins þessara vordaga, sem aldrei enda í rauninni og lialda áfram inn í nóttina, svo maður hefur ekki nokkra eirð í sínum beinum og langar sízt af öllu til að fara í liáttinn, — það var þá að ung stúlka iagði leið sína í skemmti húsið Lidó við Skaftahlíðina. Þá var í tízku að fara í Lidó; það var áður en pophljómsveit- ir urðu til og öll vélvœðingin í dansmúsíkinni. tJnga stúlkan fór með frænda sínum og þau settust við tveggja manna borð, sem er auðvitað alls ekki í frá- sögur færandi. En svona var það nú samt þetta vorkvöld fyrir tíu árum. Kannski hefur ekkert merki- legt átt sér stað þarna í Lidó þetta kvöld, utan kannski það eitt, að ókunnur maður byrjaði að stara á ungu stúlkuna, sem sat þarna, sakleysið uppmálað, með frændanum. Menn stara stundum á ungar stúlkur, þótt þeir þekki þær ekki hót, svo það var sízt af öllu einsdæmi. Samt var greinilegt, að maður- inn átti í einhverri innri liar- áttu, unz hann snýr sér að sessunaut sínum með svofelld- um orðum; „Ég er búinn að sjá eina, sem er alveg upplögð. Ég hjóla bara í hana strax, ella missir maður af henni. Það er bölvaður dónaskapur að gera þetta, ég veit það, því hún er með gæja með sér, en það verð- ur að hafa það.“ Að því búnu stóð Jóhannes Jörundsson upp og stikaði yfir gölfið, heilsaði við borðið og baðst afsökunar, því Jóhannes var maður kurteis. Hann bað unga mann- inn leyfis að mega eiga orða- stað við ilömuna og skyldi hann ekki trufla þau lengi. Hann kvaðst bafa látið til leið- ast að ganga á vertshús og í danssali þeirra erinda að gefa gaum að konum, því nú væri fegurðarsamkeppni framundan: Hvort unga stúlkan teldi frá- leitt að koma í myndatöku til reynslu? María Guðnnindsdóttir tók Jiessari óvæntu heimsókn með stiliingu og vildi hugleiða mál- ið, en taldi þó áhættulítið að láta taka svo sem eina mynd í reynsluskyni. Þar með var það ákveðið; örlagavefur Maríu Guðmundsdóttur byrjaði að breytast og mótast i nýja átt frá og með þessu vorkvöldi árið 1961. En Jóhannes Jör- nndsson gat Jiví miður ekki Iengi fylgzt með sigriim henn- J A FORSIÐUM ] HEIMS- B LAÐAN NA Rætt við Maríu Guðmundsdóttur Eftir Gísla Sigurðsson ar; liann lézt litlu síðar á bezta aldri, en það er önnur saga. Á Jjessum áratug hefur at- vinnumennska á öllum hugsan legum sviðum færzt í aukana. I nútimaniun hefði María Guð- mundsdóttir verið send til at- vinnuljósmyndara og kannsld hefði Vikan, sem stóð að feg- urðarsamkeppninni, fengið myndirnar með miklum harm- kvaelum eftir niánuð, því ljós- myndarar eru einhverjir erfið- ustu menn, sem dæmi er hægt að nefna um. En fyrir tíu ár- um var atvinnumennskan í þessari grein talinn óþarfur lúxus, sem blaðið hafði ekki efni á. Auk Jjess var tíminn naumur eins og vant er og við þurftum að fá myndirnar fljótt. Þessvegna varð upphafið á fyrirsætuferli Maríu Guð- mundsdóttur með Jjeim hætti, að myndatökunni var liespað af á hálftíma eða svo í ónot- uðu geymsluherbergi, Jjar sem hvorki voru tjöld, ljósabúnaður rié yfirhöfuð Jjeir hlutir, sem al- mennt eru talilir ómissandi við Jiá iðju. Það kom í minn Iilut að taka myndirnar á rolleiflex vél, sem blaðið átti, en Runólf- ur Elentínusson, sem nú er orð inn virðulegur bókaútgefandi i Keflavík, var listrænn ráðu- nautur og aðstoðarmaður, ef ég man rétt. Satt að segja hef ég oft undrazt það síðar, livað þessar myndir af Maríu tókust vel við svo frumstæðar aðstæð ur og s\-o mikið var víst, að hún var með miklum meirihluta kjörin fegurðardrottning. Það leyndi sér lieldur ekki strax Jjá, að María hafði til að bera eðlilega fegurð ásamt sterkum og eftirminnilegum persónuleika, sem skar sig úr 8 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 22. ágúst 1971

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.