Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 22.08.1971, Qupperneq 14

Lesbók Morgunblaðsins - 22.08.1971, Qupperneq 14
Lausn a síðustu krossgáti J t>w' •í V\3 'í. £:) íS* . T. SHfflWMgi . | -■y 1 lHra 3 * ) r 1*1 in It\ K Ó Sf ”7® r~i—i > r~ E 7$ zr> r m" r' E r TL 70 cn ■x. X m VA <- il k i J o -r, rj ■ 70 x>' T> n - o- 11 r r — lö m '•>. ■ *j| 1 > P Z p' T- X> 7° C Ls. 73 — JC P 3) -( O. ííj *>} r 70 •< J> a <3 7* & - z 1 tl 3) O. 3 I • |l *2. X - rrt S r'r - tr ■ 111 3 •3) [vT SZ || - á. r - V>rr> f> 'V z Z ««. m a> o. /3 x m > 7> -n j* ® i , I 70 T z n c -i; r l|o X 3J 3 C •ti g « •*> m T> ?, i 7Ö 3> r A 3) z p* P 1 x> 73 M 33 * O' fcr í - o -<' z. -• ■ 7> C x> — X On x> Va 3> /0 r tOÍ' Or -v. c. —1—L X> 'A 7 70 C •n X' H r p I X) r 31 X i 1 7> 3> X 70 C 7) 70 <TV -o * s L) ^ - -n 33 P' z. C r W V X 3L 3 7^ Ö > -ij'l O. 70 -x> 3 JD X 5.3 o 70 ~r\ - 3> X - (A 7*. X Á> « H > r O tr -í -- c I, » V' z jzT z o" H p • t* Z 7>‘n TiO ' - 2L — X. H a> n ZD ÍZL |a> 70 ÞAÐ er ekki svo ýkja langt siðan, að flestum er eflaust enn í fersku minni, þegar rokið var upp til handa og fóta og ríflegri fjárhœð safnað saman í einn sjóð til þess að bjóða í uppstoppaðan geirfugl hjá virðulegum brezkum uppboðs- haldara. Ráðagerðin tókst með ágætum, og fslendingar urðu ein- um uppstoppuðum geirfugli ríkari. Eflaust yrði engri þjóð fundið það til foráttu að leggja svo mikið kapp á að eignast slíkan kostagrip; ýms- um þótti þó nóg um. En þvi er ekki að leyna, að íslendingar áttu sinn þátt í því að koma gervifugl- inum fyrir kattarnef á sínum tíma, og síðan hefur hann aðeins sézt uppstoppaður. Og ef til vill höfum við nú eitthvað bœtt fyrir syndir feðranna með því að festa kaup á einum slíkum grip. Þannig hefur þjóðin létt á samvizkunni, sem oft og tiðum nagar merg og bein; eink- um þó og sér í lagi i heiðarlegu fólki. Það reyndist leikur einn að safna tveimur milljónum króna eða eitt- hvað þar um bil til þess að hreppa þetta uppstoppaða hnoss; íslend- ingar láta ekki happ úr hendi sleppa. Raunar verður ekki sagt um tslendinga, að þeir séu sinkir, þegar aura þarf saman í einhverju augnamiði. Og ekki verður séð, að pyngjuna hafi munað um þetta lítilrœði, en það létti á samvizk- unni og það skiptir auðvitað mestu máli. Annars virðist samvizkan oft og einatt vera nokkuð dyntótt. í sum- ar hafa borizt hingað jafnt og þétt fréttir af borgarastyrjöldinni í Austur-Pakistan. Greint hefur ver- ið frá hörmungum milljóna flótta- fólks, sem hrjáist nú í Indlandí, eft- ir að hafa flwið ógnaröldina i heima landi sínu. Nýlega var frá því skýrt, að íslendingar hefðu að undan- förnu allra náðarsamlegast skotið saman fáeinum krónum í því skyni að koma þessu flóttafólki til að- stoðar. Einum fertugasta hluta af andvirði uppstoppaðs geirfugls hafði þannig verið varið til þess að rétta hjálparhönd til milljóna flótta fólks, sem ekki á málungi mœtar, ekkert húsaskjól, ekkert föður- land. Þetta fólk er að flýja ofriki og þá grimmd, sem flestir Vestur- landabúar hafa ugglaust ímyndað sér eða öllu heldur óskað, að heyrði nú sögunni til. Skipulögðum aftök- um óbreyttra borgara er haldið uppi. Hindúar eru ofsóttir og það virðist vera takmark stjórnvald- anna í Pakistan að útrýma þeim með öllu. Fréttamenn hafa lýst illskulegum aftökum mennta- manna, prófessora og stúdenta, sem áttu sér stað fyrr í sumar. Allt þetta minnir á Gyðingaofsóknir í þriðja ríkinu og ofbeldisverk Stalinstímabilsins. Engan getur því undrað, þó að þessir miklu þjóð- flutningar eigi sér stað. Og flótta- mennirnir hafa látizt unnvörpum af sárum, vosbúð, hungri og margs konar sjúkdómum. Lýsingarnar þarf ekki að tíunda, þœr þekkja allir. fslenzkur blaðamaður hefur lýst göngu sinni um flóttamannabúðirn- ar og spurningunni, sem lesa mátti á vörum fólksins: ,,Kannt þú nokk- urt ráð við þessu, íslendingur?“ Og samvizkan spyr eflaust, hvort okk- ur komi þetta vandamál við; og svoleiöis spurnbigu sva.rar auðvitað hver fyrir sig. En hafi islendingar einhvern tímann haft samvizkubit vegna þess, að þeir áttu engan geir- fugl, vœri það eflaust vel þess virði, að þeir veltu þessari spurn- ingu fyrir sér. Aðstoðin við flótta- fólkið í Indlandi hefur smám sam- an farið vaxandi, en engu að síður er skorturinn óhugnanlegur; því hefur verið lýst svo, að þar vanti allt, nema fólk. Sú skoðun hefur einn-ig verið sett fram, aö þetta viðfangsefni sé einn veigamesti prófsteinninn á raunverulegan vilja hinna efnaðri ríkja til þess að lcoma til móts við þróunarþjóðirnar. Þó að vandamál þessa landlausa fólks séu fjarlœg, gera þó œ fleiri sér grein fyrir því, að viðfangsefnið er alþjóðlegt, þar sem hver verður að leggja sitt af mörgum eftir getu: Lítið við lítið verður lítið mikið. lslendingar hafa oft og tíðum brugðið skjótt við undir svipuðum kringumstæðum, en það vekur nokkra furðu, hversu andvaralaust fólk hefur verið, bæði hér og ann- ars staðar, gagnvart því ógnar vandamáli, sem hér hefur verið drepið á. Þorsteinn Pálsson. 14 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 22. ágúst 1971

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.