Lesbók Morgunblaðsins - 04.02.1973, Page 1
1
Heimkynni Tasadayanna er í allhrikalegum fjöllum, sem vaxin eru þéttu m skógi. Einu föt manna eru smápoki eða pungur úr orkideublöðum,
tit varnar blóðsugum og þyrnum. Þeir eru skegglausir. Heilsan í góðu lagi. Þó hefur orðið vart við hálskirtiabólgu og hringorma.
Þetta eru Tasadayar á Mindanao á Filippseyjum. Hellisnýlendan
þeirra er í frumskógi. Þangaö má heita ófært nema fuglinum fljúg-
andi. Nokkrir félags- og mannfræðingar komust þangað á sl. sumri.
Tasadayarnir hafa lifað þarna einangraðir, sumir gizka á í tvö þús-
und ár. Þeir eru á steinaldarstigi. Eru Ijúflyndir og lausir við að vera
herskáir. Fæða þeirra eru smádýr, fuglar, leðurblökur, skordýr - og
jafnvel eitraðar kóngulær, sem búa í sambýli við þá í hellinum.
NtFUNBNIR
STEINALBARMENN
Sjá bls. 2