Lesbók Morgunblaðsins - 08.04.1973, Blaðsíða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 08.04.1973, Blaðsíða 2
Geysileg tæknivæðing ag umturnun í lífsháttum iðnaðar- þjóðíélaga, sem átt heíur sér stiað undainíartnia áraituigi, hefur leitt af sér ýmis vandamál' önnur en margumrædda menigun. Eitt þeirra er fritíminn, sem stöð- ugt lengist í hlutfaili við vinnutíma. Mörgum kann að þykja fjarstæðukennt að tala um frístundir sem vandamái, en samt er það svo, að vand- inn fer vaxandi. Okkar tímar einkennast af skipulagningu og vinnuhagræð ingu, þar sem skörp skil verða á milli vinnutima annars veg- ar og frístunda hins vegar a.m.k. hjá öllum þorra fólks. Áður var þessu öðru visi far ið. Sólarhringurinn var nær því að vera samofin heild. Fólk réð meiru um vinnuhnaða og skiptingu dagsins. Varla var gerður ýkja mikill munur á því hvort tíminn, sem fór í að prjóna sokkaplögg eða smíða ask, kallaðist tómstund eða vinnutími. Starfssvið einstakl- ingsins var fjölbreyttara, tengslin við umhverfið og ann að fólk voru sterkari, menn fundu betur gildi sitt og til- gang í samfélaginu. Nútímamaðurinn gengur aft- ur á móti ákveðinn stunda- fjölda á dag til vinnu, vinnu, sem að rnestu er á'kveðin af öðrum en honum sjálfum. Hann er tannhjól í ópersónu- legri framleiðsluvél, sem gefur honum lítið svigrúm til frum- kvæðis eða sköpunar, og þar liggur hundurinn grafinn. Þeg- ar misjafnlega erfiðum vinnu- degi lýkur eru samt sem áður gerðar þær kröfur til þessa mainns, að hann sýni áhuga á menningu og stjómmálum, stundi fagrar listir svo sem hannyrðir eða píanóleik, fari i leikhús, brjóti heilann um vandamál samtíðar og framtíð- ar, sé skapandi og virkur þjóð félagsþegn. Er það ekki til of mikils ætlazt? Leikmenn og sér fræðingar velta vöngum á ýmsa lund og sýnist sitt hverj- um. Sumir sjá enga leið aðra út úr ógöngunum en rétt eina byltinguna, aðrir vilja helzt halda aftu-r til gamalla ilífs- há-tta. Víst er -að framþróun má ekki og mun ekki stöðvast. Hollenzki arkitektinn Frank van K-lingeren, hefur mjög fengizt við -þá hlið málsins, sem að arkitektum snýr. Honum er ljcst misræmi-ð í dagl-ega iífiniu og tiiraunir hans, sem fram- kvæmdar hafa verið í Hollandi bera vott um g-lög-gan skiin- ing á þörfum fjöldans. Fyrir nokkrum árum fékk van Kling eren það verkefni að hanna menningarmiðstöð fytrir -þorpið Dronten, sem er -u.þ.b. átta þús und manna bær í Hollandi, og skyldi hún bjóða sem fjölþætt asta notkunarmöguleika. Hann og samstarfsmenn hans á litilii arkitektastofu í Amsterdam, lögðu heilana ræki lega í bleyti og útkomam, sem þeir köU-uðu A-góruna í Dront- en, hefur á þeirn tæpum fimm árum síðan hún var byggð, öðl azt frægð um ailia Evrópu fyr- ir írumleik og frjáislega með- ferð á stöðnuðum reglum þröngsýnna mennimgairpostula og glæsiibragarsarkitek ta. Nafnið A-góra er sótt til Grikklands og þýðir samkomu torg eða markaður. Það, sem vakti fyrir höllenzku arkitekt- tmum var enda eins konar mairk-aðstorg i miðjum toæ með ýmsum innréttin-gum allt um kring. En þar sem veður eru til muna hryssingslegri norður við Atlantsála en suður við Miðja-rðarhaf, tóku þeir til bragðs að by-ggja geysistóran skála úr stáli og glieri til vann- ar gegn veðri og vindum. Þar var síðan komið fyrir því, sem með þurfti. 1 skálanum er eins litið um lokuð rými og hæg-t er án að vera. Þannig komast skáiagest ir -a-uk eigin erinda í beina Gylfi Guðjónsson og Sigurþór Aðaisteinsson raunverulegl félagsheimili Sagt frá nýstárlegri menningarmiðstöð í Dronten í Hollandi . . . markaður fyrir konurnar, kaunhöll fyrir karlana . . . . . . íþróttir fyrir félög, leikir fyrir alla . . .

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.