Lesbók Morgunblaðsins - 08.04.1973, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 08.04.1973, Blaðsíða 8
Island í Mið-Evrópu Gengið á fund Wagners og Lúðvíks II Bæjarakonungs Framhald af forsíðu Lúðvík II. Bæjarakonungur ungur að aldri. uðum tfexta Niflungaljóða. 1 verkum/ tens trón'a einlherjar, Valhöll; Óðinn, Loki, kvenskör ungar, eða valkyrjur og hetjur, svo að dæmi séu tekin og engu líkara en allt séu þetta sam- tímamenn tónskáldsins. XXX Segja má, að þetta séu stór orð. En verkin tala. Ekki að- eins í höllum Lúðvíks II, held- ur um allan heim og ekki sízt i Bayreuth í Frankalandi, eða Norður-Bæjern, þar sem Fest- spielhauts hans stendur emn, rauðleitt og yfirlætislaust eins og Wagner sjálfur andspænis kóngi sínum, jafnvel auðmjúkt og óáleitið þarna í garðinum, þótt sízt af öllu sé hægt að tala um auðmýkt og óáleitni í sörnu andrá otg Riehard Wugn- er. En eins og allir miklir lista- menn, var hann auðmjúkur andspænis list sinni. xxx Lúðví'k II var öðrum þræði alinín upp í Ho<henschwanigau. Þar stóðum við nú og virtum fyrir okkur umhverfið. Hallirn ar, þar sem tíminn nam staðar og maður bíður eftir því að rómamltiskir riddarar knýi hesta sína sporum á heimreið- inni. Snjóföl yfir öllu. En Alp- £Lrnir grænir af jólatrjám, svo að manni dettur i hug að hér, á þessum slóðum sé jafnvel upprisan óþörf; guð að vísu ná lægur og iraunar áþreifanleg- asta staðreynd þessa ævintýr- is, þessa draums. Hátíðleikinn er að vísu ekki sá sami og í gömlu kirkjunum, þar sem við finnum að upprisan er ekki einungis listin og vorið í náít- úrunni, heldur eina staðreynd dauðans; alvara gotnesku kirkj unnair,, þessi svala tigna ailvara, sem Hannes Pétursson hefur ort um ógleymanlegt ljóð, hjálpar fólki að sigrast á örlög um sínum. Skáldkróna Hannes ar hefur vaxið inn í þetta þýzka andrúm, þótt ræturnar séu rammislenzkar: „í síðu og höndum ég sviðenin finn. Sveiti og blóð er sú flík sem ég klæðist. En niú sendir mig, ég er soniur þinn, ég er sjálfur þú. Nú dey ég — og fæðist." Varla verður því betur lýst að ganga inn i menningu þess- ara fomiu kirkr.ir: þar deyr maður og fæðist, þar er uppris- an i nánd. Svona yrkir eng: inn án teaigsla við kirkju og kaþólska heimsmenningu; eng- inn sem hefur ekki „upplif- að“ kirkjumar sem fjallað er um í þessari grein. Ég hef áð- ur skrifað í Reykjavíkurbréfi um Rímblöð Hannesar. Af ein- hverjum ástæðum hef ég ávallt haft aðrar skoðanir á þessari ljóðabók skáldsins en t.a.m. rit dómari Skímis, þess aldur- hnigna tímarits í fleiri en ein- um skilningi. En þetta var útúrdúr. Við er um stödd í æskuumhverfi Lúð- víks II, Hohenschwanga-u: rústum og endurreisn þýzkrar rómamtíikur. Hér tók Lúðvík II konungur á móti tónskáldi sínu, Richard Wagner, fyrsta sinni. En sá siðamefndi steig aldrei fæti inn fyrir dyr Neu- schwanstein. Aftur á móti er slagharpa hans í Linderhof, — þar lék hann oft fyrir kon- ung sinn — og í helli í hlíð- inni upp af höllinni (ég reyni ekki einu sinni að lýsa honum, svo ævintýralegur sem hann er) og inni í fjallinu var flutt- ur fyrsti þáttur Tannháuser fyirir ævintýrakonunginn ein- ain. Þetta er allt eins og súr- realískur draumur. XXX 1 Hohenschwangau-kastala, sem á rætur í 12. öld, en endur byggður eins og fyrr getur, eru myndir úr sögunni um svanariddarann Lohengrin, en málaðar áður en Wagmer samdi samnefnda óperu sína. Þarna eru einnig stór málverk úr Nifl ungaljóði. 1 „tónlistarher- bergi“ hallarinnar lék Wagner á pianió fyrir Lúðvík II, sem að Sögin! var sjálfur ágætur sfliaig- hörpuleikari og lék jafnvel i Loherigrin Wagners. Þar er fögur Kristsmynd eftir „The outstamdiirug . . damisika mynd- höggvara, Thorvaldsen, eins og stendur í dálitlum ferðapésa um höllina fyrir útlendinga, mörgum Islendimgum væntan- lega til óblandinnar gleði. 1 Thorvaldsenssafninu í Kaup- mannahöfn er stæirsta styttan af Maximilian Bæjarakonungi fyrsta á hestbaki, og önnur brjóstmynd af honum. Tvær brjóstmyndir eru af Lúðvíki I Bæjarakonungi, þessum fín- gerða afa Lúðiviks II og má greinilega sjá svip með þeim frændum. Ástæða er til að skjóta þvi hér inn í, að í sýn- imgarskrá Thorvaldsenssafns er rækilega tekið fram, að lista maðurinn var sonur Gott- skálks Þorvaldssonar „an Ice- landic imigrant of an old fami- ly, the son of a clergyman, and a woodcarver by profession." En það er sem sagt engin til- viljun, að stytta Thorvaldsems stendur i einu herbergi hall- ar iMaxiimil.'ons II Bæja.ra.kon- ungs. XXX Lúðvík II tók við konung- dómi, þegar faðir hans lézt, 1864, aðeins 18 ára gamall. Hann lét reisa Neuschvan- stein á árunum 1869—1886, Linderhof 1874—1878 og Herr- enchiemsee, 1878—1886, sem að sögn er meiri eftirmynd af Ver sölum en Linderhof, sem eink- um er byggð í rokokóstíl. 1 mai 1868 skrifaði Lúð- vik II til Waigners: „Ég h.ef x hyggju að endutrreisa fornar kastalarústir. . . svo þær lík- ist sem mest formum þýzkum riddarakös'tulum. . . . Höllin mun minna þig á sögu Tann- háusers og Lohengrins. Þessi kastali verður glæsilegri og íbúðarhæfari en Hohen- schwangau. . . guðirnir, sem hefur verið ógnað, geta ekki annað en leitað hefndar; þeir munu dveljast meðal vor hér í hæstu hæðum, andandi að sér himnesku ioftinu." Kastalinn sem konungur ætl ar að reisa er auðvitað Neu- schvanstein. Lúðvík var þrælkunnuigur sögu Lohenigrins af málverkum í höll föður síns í Hohen schwangau. Þegar hann heyrði óperu Wagners, Lohengrin, í fyrsta skipti í Konung- legu Öperunni í Munchen 2. febrúar 1861, ungur 'krónprins, sá hann alla sína rómantísku drauma verða að veruleika. Og eftir það fór ekkert verka Wagners framhjá honum. Upphaflega áititi Neuschwan- stein að vera eins konar „Wagners-hof“, tómskáldinu til heiðurs og skreytinigar í sam- ræmi við verk hans. En 1879 tók konutnlgiur iheldiur þá ákvörðun að túlka söguna, sem Wagnier sótti eifni siiitt í: „Myndirnar í nýju höllinni ætfcu að blása liifi i hiniar rauin- verulegu sögiur, en ekikii lýsa túlkun Wagners á þeim.“ Á fjórðu hæð hallarinnar, „eru myndir úr Guðrúnarsögu eins og hún er sögð í Eddu“, segir í skýringarbæklinigi fyrir ferðamenn. XXX Þeigar hér var komið sögu, var Wagner fluttuæ rtil Bay- reuth, ásamt Cosímu Liszt, dótt ur Franz Liszt, tónskáldsins og píanöleikarans. Kannski- kost- aði einstök aðstoð Lúðvíks II við Wagner hann kórónuna. Ráðherrar ,urðu vitla'usir — eins og ráðherrar verða alltaf réfct fyrir afgreiðslu fjárlaga — þegar þeir sáu útgjöldin vegna listræns áhuga konungs. Og þá fyrst kasfcaði tólfunum, þegar þeir sáu, hvað fór í Wagnerhítina. Ást Wagners á Cosímu, sem var gift þekktum áhrifamanni, Hans von Búlow, varð hneyikslismál í Þýzka- landi og að því kom, að Lúð- vik II fékk nóg aif síimuim sfór- lynda og ástfangna vini. Leiðir þeirra skildu. Wagner kvænt- ist Cosím'u 1870. Þrátt fyrir allt þetta hélt konungur áfram aðstoðinni við Wagner og ást hans á verkum .tónskáldsins var kannski eini veruleikinn i lifi hans til hinztu stundar. Og svo auðvit- að ást hans á popphöllunum sínum, þar sem hæigt er að iganga inn í ævintýri speglanna og verða hiuti nýrrar verald- ar af öðrum heimi en þeim sem vér skynjum daglega, hreyfa sig í ævintýraspeglum þessa óraunverulega og óvænta draumaheims án þess þó að vera þar; uifcan við allt nema drauminn: þar sem hægt var að ganga í vöku og veruleiika frá einiuim draiuimi tll annisrs. XXX Lúðvik svaf í Neuschwan- stein fy.rsta sinni 1884. Og nú erum við einniig stödd í þess- ari höll. Umhverfið er gamal- kunnugt, vegigmyndir úr Loh- engrin og Tannháuser, Tristans sögu og ísoide og Parsíval. Og í anddyrinu á 3. hæð hallar- innar stöndum við andspænis uppruna vorum og larfi: veg.g- myndum úr sögu Sigurðar Fáfnisbana í íbúð konungs, og enn eiga Edda og Völsuruga saga eftir að koma svo mjög við sögu þessa húss, að íslend- ingur verður furðu lostinn. Efni málverka og myndskreyt- inga er ekki einungis sótt í Niflungaljóð og aðrar miðalda bókmenntir Þýzkalands, held- ur þessi islenzku verk sem eru

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.