Lesbók Morgunblaðsins - 09.05.1976, Blaðsíða 5

Lesbók Morgunblaðsins - 09.05.1976, Blaðsíða 5
ROÐGÚLL er eitt af mörgum hjáleigubýlum á Stokkseyrar- torfunni. Upphaflega mun það hafa heitið Litla-Gata og skipt úr þeirri jörð. Þess er getið árið 1703 og hélt því nafni fram á 19. öld, að farið er að kalla það Roðgúl, en þó mun þvi hafa slegið fyrir lika á 18. öldinni, svo snemma hefur farið að örla á því. Talið er að Roðgúls-nafnið sé upp- haflega uppnefni, gefið i háði einhverra hluta vegna og eru til ýmsar sögur og getgátur um það, sem ekki eru örugg- ar. En þetta nafn hefur unnið sér þá hefð, að varla verður því breytt úr þessu, enda er nafnið sérkennilegt og væri skaði ef það væri lagt niður. Ábúendur þessa býlis munu flestir kunnir, en sá þeirra sem þekktastur er, var Brandur Magnússon, sem bjó þar á árunum 1754—1818. Hann var afrendur krafta- maður, smiður góður á tré og járn, skipasmiður og for- maður. Líka var hann söng- maður góður og forsöngvari í Stokkseyrarkirkju, þar til grallarasöngurinn var niður lagður. En þá gerði hann upp- reisn og neitaði að syngja hina nýju sálma. Þetta tiltæki hans hefur svo orðið til þess að halda nafni hans á lofti, því Brynjólfur Jónsson frá Minna-Núpi getur þess mjög ýtarlega í sögunni af Þuríði formanni. Má lesa þar um átökin milli Brands og sóknarprestsins, séra Jakobs Árnasonar. Á árunum 1894—1908 bjó þar Hannes Jónsson einn af öndvegisformönnum á Stokkseyri. Síðan hafa ýmsir búið á býli þessu, þar á meðal Steingrímur Sigurðsson rit- höfundur og málari. En hann er nú fluttur þaðan. Ekki er mér kunnugt um hver byggði húsið, né heldur hvenær það var gert. Einn af Beinateigsbæjunum, fyrst byggður af Gústaf Árnasyni trésmið 1891 og nefndist þá Ártún, en hann seldi það svo 1898 Brynjólfi Gunnarssyni, sem gaf honum nafnið Traðar- hús, sem oft var líka kallað Brynkahús. Síðar bjó þar svo Jón Þórðarson. TRAÐAR- HÚS GARÐHÚS GARÐHÚS er byggt 1899 af Einari Einarssyni, áður bónda i Bugum. Hann er sagður hafa búið þar lengi. Síðan hafa ýmsir búið þar, þar á meðal Sigurður Guðbrandsson um 1 920. Hjón úr Garðabæ eru að breyta þessu húsi i sumarbústað.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.