Lesbók Morgunblaðsins - 09.05.1976, Side 10
Lóan, kærasti voBboðinn
bakast i Kornsá. Jaðrakárn er einkennilegur fugl og
síblaðrandi á vorin, og vegna þess að hann hefir mjög
breytilega rödd.kom upp sú trú, að hann gæti talað, ,,og
aldrei þagað yfir neinu“. Á Suðurlandi ganga sögur um
að hann hafi með skrafi sinu villt um fyrir auðtrúa
vegfarendum, og síðan hent gys að þeim. Vmsar sögur
eru um vegfarendur, sem komu að straumvatni, en
hikuðu við að leggja út í það, vegna þess að þeim hafi
sýnst það ófært, þá hafi þeir heyrt ókunna rödd kalla til
sín „Vadd’útí, vadd’útí”. Þeir hlýddu og sumir komust
yfir með herkjubrögðum. Þá heyrðu þeir kallað: „Vaddu
votu (varðstu botur)?“ en það sárnaði þeim mjög og tóku
að húðskamma svikarann. Þá var kallað: „Vittig — vittig
(vittu þig).“ Það sáu þeir að var heilræði og tóku að
vinda föt sín.
Þá er að minnast á nokkra fugla, sem þóttu svo
undarlegir i öllum háttum, að ekki var talið einleikið.
Hegri. hann er flökkufugl, og þótti mönnum
undarlegt að hann kom hingað á haustin, þegar aðrir
fuglar voru sem óðast að hverfa. Þetta er nokkuð stór
fugl og fremur luralegur. Sjómenn fögnuðu honum allt-
af, því að sú var trú, að hann boðaði gott fiskiár. Mikið
keppikefli var að ná í hegraklær, því að önnur dró að
manni fé úr sjó, en hin fé úr jörðu. En nokkurt vandhæfi
var á að ná í hegraklær, því að þær voru kraftlausar,
nema því aðeins að þær væru skotnar undan hegrum á
flugi og að menn gæti hent þær i húfu sína eða hatt áður
en þær kæmu til jarðar. Niðingsverk var það kallað, að
skjóta báðar klærnar undan sama hegranum og sá yrði
ólánsmaður alla ævi, er það gerði. Menn áttu að skjóta
hægri klóna undan einum hegra og vinstri klóna undan
öðrum.
Helsingi . Hann er mjög sjaldséður á Norður-
landi, en á Suðurlandi koma þeir við vor og haust á
ferðalagi sínu til Grænlands og þaðan, þvi að á Grænlandi
eiga þeir varpstöðvar sínar, en ekki hér. En á Suðurlandi
eru og til aðrir helsingjar. Meðan trjárekí var þar á
söndunum, bárust þar oft á land tré, sem voru svo
sundurgrafin af trjámaðki, að þau héngu varla saman, og
út úr þeim löfðu maðkarnir hvarvetna. Var þá kallað að
þau væru „loðin af helsingja”, því að svo var trjámaðkur-
inn nefndur. Vegna þessa varð sú trú almenn i Norður-
landi, að syðra væri til sérstök tegund villigæsa, sem
nefndust helsingjar, og kæmu þær út úr rekatrjám. Væru
það eintómir karlfuglar, og þess vegna gætu þeir ekki
orpið (það var skýringin á því, að helsingjar verpa ekki
hér á landi). Frá þessu er sagt í íslandslýsingu Þorláks
annálaritara Markússonar á Sjávarborg.
Margæs kallast nú sá fugl, er fornmenn nefndu
gagl. Hún er mjög svipuð helsingja. Kemur hún oft í
stórhópum til Suðurlandsins snemma á vorin og hvílir sig
þar á flugi sínu norður til varpstöðvanna i Grænlandi.
Var hún þá stundum veidd í net og kallað látur. Netið var
strengt milli tveggja prika og borið undir það eitthvað
ætilegt sem agn, og var sá umbúnaður, að netið mátti
fella hvenær sem vildi. Er til kunn saga um þetta frá
dögum Ögmundar biskups Pálssonar, er hann var prestur
á Breiðabólstað i Fljótshlið. Það mun hafa verið á páska-
daginn 1508 að þar veiddust 300 margæsir i net og voru
bornar lifandi heim. Þá var mikill bjargarskortur i þeim
byggðum, en Ögmundur vildi ekki láta drepa fuglinn á
stórhátíð, og var það því geymt til mánudags. — Margæs
heitir öðru nafni hrota og mun það nafn dregið af gargi
hennar. Sú var trú, að hún yrði allra fugla elzt, og þaðan
er það komið að kalla gamalt fólk karlhrotu eða kerl-
ingarhrotu.
Hani.
Sú er sögn um hanann, að sé hann iátinn verða
fjörgamall, þá verpur hann einu eggi. Er það hin versta
sending, þvi að úr þessu eggi kemur sú ófreskja, er
kallast skoffín. Augnaráð hennar er svo banvænt, að hver
lifandi vera fellur dauð fyrir því. Þess vegna skyldu menn
forðast að láta hana verða gamla. — Sú er ennfremur trú
á hanann, að beri maður á sér spora af vinstra fæti hans,
þá hefir hann sigur í hverju máli.
Músarrindill. Hann er langminnstur allra ís-
lenzkra fugla, og lifir sínu einkalífi svo, að fáir kynnast
honum. Menn vita ekki enn með vissu hvort hann er
staðfugl eða farfugl. Hann er í felum á daginn, en þegar
rökkva tekur, fer hann á kreik og syngur þá fegurst allra
fugla. Hefir hann þvi jafnan þótt dularfull vera og hafa
ýmsar sagnir myndast um hann. Ein er sú, að hann sé
óskaplega sólginn i hangikjöt og flýgur þvi niður um
eldhússtrompa og kærir sig kollóttan um sót og reyk.
Hann grefur sig inn í sauðarlæri og hefst þar við. Margir
héldu að hann væri óheillafugl og settu því krossmark í
eldhússtrompinn og hugðu að hann mundi ekki dirfast að
fara í gegn um það. En vegna þess hvað hann var sólginn
í kjöt, var hann kenndur við mýs og kallaður músarrind-
ill, en sumir nefna hann músarbróður.
Músarrindlinum fylgja ýmsir dularkraftar. Ef maður
þvær sér um augun upp úr volgu blóði hans, þá sér maður
jafnvel i myrkri og björtu. — Til þess að stinga manni
svefnþorn, skal hengja höfuð músarrindils yfir höfði
sofandi manns, og getur hann þá ekki vaknað fyrr en
höfuðið er tekið brott.
Keldusvín . Þótt músarrindillinn væri dularfull-
ur fugl, var keldusvinið þó enn dularfyllra. Og það má
kallast furðufugl enn, þvi að menn vita ósköp lítið um
það, néma að það sé heldur stærra en lóa. Talið er að þau
verpi i mýrum og eggin sé 6—12, „en um útungunartíma,
þroskaskeið unganna og lifnaðarháttu fuglsins vita menn
bókstaflega ekkert," segir í Fuglabók F.l.
Keldusvín eru vör um sig og eru því alltaf í felum.
Komi styggð að þeim fljúga þau ekki heldur hlaupa og
eru horfin von bráðar Af þessu mun það stafa, að Eggert
Ólafsson segir að þau geti ekki flogið. Og vegna þess hvað
þau hverfa skyndilega, héldu menn áðurað þau væru illir
andar og gætu því smogið niður i jörðina hvar sem þau
væru stödd. En þau vita af ótal holum og felustöðum að
smjúga i.
Menn héldu að keldusvinið hefði yfirnáttúrlegt eðli, og
þess vegna urðu römmustu galdrastafir ekki ritaðir, svo
að gagni kæmi, nema til þess væri höfð keldusvinsfjöður.
Þegar maður nær keldusvíni, skal maður hafa það hjá sér
um nótt í úthýsi og binda það við höfðalag sitt. Um
nóttina rekur það upp þrjá skræki, hvern öðrum hvellari,
og deyr af þeim þriðja. Fáir þola fyrsta skrækinn, færri
annan, en þoli maður alla þrjá, verður hann mesti
lánsmaður alla ævi.
Hverafuglar Þetta hafa verið og eru enn
mestu furðufuglar landsins. Langt er nú síðan að það var
almenn trú í Gullbringusýslu og Arnessýslu, að til væru
fulgar, sem héldu sig á sjóðandi hverum og köfuðu þar og
væru lengi í kafi. Héldu sumir að þetta væru draugar, en
aðrir töldu að það væru sálir framliðinna sem fengið
hefðu þessa mynd á sig. Þegar Eggert Ólafsson var á ferð
um Ölfus, hitti hann þar marga menn, sem höfðu séð
þessa fulga. Hann vill ekki kalla þetta skrök, en reynir að
færa fram röksemdir fyrir þvi, að engir fuglar geti synt á
sjóðandi hverum, og þaðan af siður geti þeirkafaðþar. En
að lokum segir hann: „Ef þetta eru venjulegir fuglar, þá
eru þeir í sannleika mikil og furðuleg nýung í náttúru-
fræðinni."
i bókinni „Grúsk III“ birti ég grein um hverafugla og
frásagnir málsmetandi manna, sem höfðu séð það, og eru
sumir þeirra enn á lífi. Hún er því enn bráðlifandi hin
gamla trú, að til séu fulgar er geti hafst við á heitum
hverum. Og þessi trú er studd svo góðum vitnisburðum,
að hér er sannarlega um lifandi verur að ræða, en hvorki
drauga né líkamaðar sálir framliðinna. Hér eru enn
lifandi hverafuglar, þótt það sé „furðuleg nýung i
náttúrufræðinni", ekkert síður en á dögum Eggerts
Ólafssonar, þrátt fyrir vísdóm þessarar aldar.
Vegna v-ingjarnlegrar vorkunnsemi nokkurra manna út
af því að ég skyldi vera svo vitlaus að skrifa um hvera-
fugla, eins og þeir væru til, skal ég nú ítreka, að aldrci
hefir hvarflað að mér að hér sé um sérstakt fuglakyn að
ræða. Ég þykist viss um, að það sem við nefnum hvera-
fugla, séu alþekktir fulgar undir öðrum nöfnum. Af
lýsingu sjónarvotta má ráða, að hér sé ekki ein fuglateg-
und, heldur tvær eða fleiri. Og þá koma mér fyrst i hug
keldusvín og blesönd.
1 Fuglabók F.í. segir um keldusvínið: „Ilér virðist það
vera staðfugl að mestu, þvi að það hópast á vetrum að
Iaugavermslum og öðrum vötnum, sem sjaldnast eru á
is.“ Og um blesöndina segir þar: „Hún sést oft við hveri
og laugar á vetrum.” Lýsing á henni er ,að hún syndi og
kafi vel, enda reglulegur sundfugl í háttum, en flýgur
rösklega. „Hér er mjög lítið kunnugt um hætti hennar,"
segir að lokum. Blesöndin er á stærð við urtönd.
Sumir sem séð hafa hverafugla, segja að þeir hafi
stungið sér i hverinn og ekki komið upp aftur. Þetta gæti
átt við um keldusvín, sem hafa átt se'r fylgsni i hver-
bökkunum, en inngangur að því verið undir vatnsborði.
Sumir segja að fuglinn hafi verið á stærð við lóu og haft
hvasst nef; það á líka við um keldusvin. Aðrir kalla
hverafuglana endur, og lýsing þeirra á stærð, lit og flugi
gæti átt við blesendur. Sumar lýsingarnar gætu líka átt
við urtir. En þar sem vitað er að keldusvin og blesandir
eru „hverafuglar” á vetrum, þá ættu þau alveg eins að
geta verið hverafuglar á vorin.
Guöfinna
Jönsdöttir frö Hömrum
FERMINGAR-
TELPA
Frá kirkjuturni barst helgur hljómur
og hvítasunna um landiSskein.
En Ijóssins hringing með hreimi skærum
í hvelfing sóldagsins ríkti ein
og kornung hjartablöð vorsins vermdi
og vakti laufin á bjarkargrein.
Og lýðir byggða í guðshús gengu,
en gleðin úti við dyrnar beið,
því inni! kirkjunni orðin féllu
um óför lifsins, um vítis neyð,
og undur hnipinn var himingeislinn,
er hægt að altari drottins leið.
Þá kraup við gráturnar gullhærð meyja
og geislinn vafðist um fagrar brár.
En bikar rétti að barnsins vörum
einn bjartur öldungur, silfurhár,
og mælti: Sjá hér er dreyrinn drottins,
er draup fyr’ mannkynsins eymd og fár.
Hið gamla altari geislinn snerti,
þar gnæfði frelsarans píslarmynd,
og mærin starði með ótta í augum
í augu drottins af kvöldum blind,
á þyrnisveiginn að nöfði hnýttan
úr heimsku mannkyns og flærð og synd
Og smámey nýfermd á heimferð hugsar
og hristir bjartlokk frá Ijósri kinn:
Mér hvarf í guðshúsi Ijóssins Ijómi,
á lífs míns fögnuð sló þögn um sinn.
Þeir vildu krossfestan Krist mér gefa,
sá Kristur ei verður drottinn minn.
En kveðji hann dyra á bóndabænum,
þá býð ég velkominn þreyttan gest,
og grænni lífjurt úr garði mínum
ég græði sár hans og fága bezt.
Frá krossins oki ég Ijúft hann leysi.
Svo Ijæ ég drottni minn hvita hest.
Þá dylst ei konungi dagsins lengur,
að dýrðarríkið af jörðu er.
Hver sólskinsþröstur í kjarri kveður
og klukknahljómur um skóginn fer.
En hvítasunna á vorsins vegi
að vörum gróandans Ijósveig ber.
Hilmar Jensson
ÁSTA
SÖLLILJA
Sjáðu mánans mildu geislum stafa
i mjallarlíni sofa jarðarblóm
í töfrabirtu titra hljóðir strengir
timinn geymir minninganna óm
Fjallatindar vörð um véin standa
þótt verði mörgum smærri hulin sýn.
Er vetrarstormar gróðurnálum granda,
þá gleður hugann enn að minnast þin.
Þú varst ein af dalsins fögru dætrum
i dagbók lifsins geymast ykkar spor
Ennþá gyllir sólin vesturvegi
að vetri liðnum kemur aftur vor.