Lesbók Morgunblaðsins - 06.03.1977, Síða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 06.03.1977, Síða 3
Eins og í Hiroshima Síðari leiðangursmönnum þótti einsýnt, að Tunguskasprengingin hefði orðið á lofti, en ekki jörðu, beint fyrir ofan „símastauraskóg- inn“, sem kallaður var svo eftir atburðinn. Það hefur verið sann- að með miklum reikningum, að þetta var rétt til getið. En málið skýrðist ekki við það. Efasemdarmenn héldu æ áfram að leita annarlegra fyrirbæra í skýrslunum, sem Kulik lét eftir sig. Og þeir fundu margt og mik- ið. Má nefna það, að hirðar norður á mýrum kváðu hreindýr sín hafa tekið ókennilegan sjúkdóm eftir sprenginguna; hefði sýkin komið fram i hrúðri á bökum dýranna. Rannsóknarmenn útveguðu sér nú skýrslur frá Bretlandi og Bandaríkjunum um áhrif spreng- ingarinnar. Komust þeir þá að þvi, að ekki aðeins höfðu geysi- öflugar loftbylgjur stafað frá Siberíu og út um heim, en einnig höfðu orðið stórvægilegar segul- truflanir. Þá voru hin undarlegu ljós, sem sáust hvarvetna á Evrópuhimni um sama leyti. Vitað var, að oft sáust ljós á himni eftir eldgos, en þau ljós sáust vanalega aðeins i ljósaskiptum, þegar sólin var að síga og lýsti upp neðra borð ryk- slæðunnar I andrúmsloftinu -og þau ljós sáust ekki heldur lengur en rykið varði. Bjarminn frá Tunguska var hins vegar miklu lengur á lofti. Hann sást löngu eftir, að sól var gengin til viðar. Hann sást alla nóttina og hvarf reyndar ekki fyrr en eftir þrjá eða fjóra daga. Aðeins ein skýring kom heim við staðreyndir máls- ins. Hún var sú, að loft þrungið íónum hefði rekið vestur yfir Evrópu; norðurljósin hefðu svo fölnað, er loftskýið dreifðist. Þegar menn fóru að sprengja kjarnorkusprengjur í tilrauna- skyni upp úr 1960 tóku þeir eftir nákvæmlega sams konar bjarma í lofti eftir sprengingar. Þá kom og f ljós, að útreiðin á jörðu i Tunguska var hér um bil nákvæmlega eins og varð í Hiroshima 1945. Tré stóðu enn uppi, en alveg visnuð, ný tré uxu geysihratt, menn og skepnur veiktust með likum hætti af geislaeitrun. Allt virtist þetta koma heim og saman. Það var ekki annað að sjá en Tunguska- sprengingin hefði verið kjarn- orkusprenging, og hefði hún orðið i lofti, svo sem þremur kílómetr- um ofar freðmýrunum. Einu vitnin að sprengingunni I Sfbertu voru hjarðmenn á nærliggjandi svæðum. Einn þeirra var llya Potopovich, sem sést hér á myndinni. kr Á þeim stað í Slberlu, sem sprengingin varð, var „simastauraskógur". Leyfar skógarins bentu til sprengingar I lofti fremur en á jörðu niðri. Eða var það geimfar? Leiðangur á hverju ári í Sovétrikjunum varð heilmikið uppnám af þessari kenningu, og er það skiljanlegt. Hafa Sovét- menn sent leiðangur norður í Tunguska nærri árlega frá því í lok seinna striðs. Jarðvegur úr freðmýrunum hefur verið fluttur i lestatali til Moskvu. Söguð hafa verið sýni úr ótal trjám og vaxtar- hringir þeirra grannskoðaðir, börkur og greinar einnig, og mæld hafa verið fallhorn trjáa, sem fuku um koll, og brunastig þeirra, er sviðnuðu. Allt, sem fram hefur komið, hefur rennt stoðum undir kenn- inguna um kjarnorkusprengingu -og aukið á leyndardóminn. Eink- um vafóist fyrir mönnum griðar- iegur vaxtarhraðinn, sem fyrr var frá sagt. Árið 1958 mældu leið- angursmenn nokkrir tré á mýrun- um og komust að þvi, að þau, sem hefðu átt að vera tæpir níu metr- ar á hæð voru orðin 18—24 metra há. Annar leiðangur fór um svæð- ið árið eftir, safnaði 300 jarðvegs- sýnum og 80 öskusýnum og skóf sýni af 100 jurtum. Þessi fengur var settur I næman geislunar- mæli. Kom þá I ljós, að geisla- virkni á spreningarsvæðinu miðju var einum og hálfum sinn- um eða jafnvel tvisvar meiri en geislavirkin í rúmra 30 km fjar- lægð. Þá fannst í vaxtarhringjum trjáa frá 1908 talsvert af geisla- virku Cesium 137, og ennfremur reyndist, að geislavirkt Carbon 14 hafði stóraukizt í andrúmsloftinu eftir 1908. Loftsteinn skal það vera; Árið 1961 var þeim í sovézku visindaakademiunni nóg boðið af þesSu kjarnorkutali. Gerðu þeir nýjan leiðangur stærri en alla hina fyrri og sendu norður til Tunguska að sanna i eitt skipti fyrir öll, að sprengingin forðum hefc'. orðið af völdum algengs loftsteins -eða halastjörnu i versta lagi. í leiðangri þessum voru eðlisfráeðingar, veðurfærðingar, jarðvegsfræðingar og skóg- visindamenn. Leiðangursstjóri var Dr. Kiril Florensky og hann tók það skýrt fram þegar, áður en leiðangursmenn lögðu upp, að kjarnorkusprengingin umrædda væri ekkert nema heilaspuni. Leiðangursmenn gróðursettu hveitijurtir i freðmýrunum. Þannig ætluðu þeir að færa sönn- ur á það, að undarlegur vaxtar- hraði trjáa eftir sprenginguna stafaði einungis af aukinni frjó- semi jarðvegsins eftir, að ryk úr loftsteininum féll til jarðar. Líka mældu þeir brunastig sviðinna trjáa aftur og hugðust sanna, að trén hefðu sviðnað í alvanalegum skógareldi. Loks voru settir upp miklir útreikningar til þess að sanna, að ekki hefði sprungið I lofti heldur á jörðu niðri. Því miður tókst Florensky ekki að sanna mál sitt. Allar nýju vis- bendingarnar bentu eindregið til kjarnorkusprengingar. Sér- fræðingarnir í leiðangrinum kom- ust svo að orði: „það, sem helzt einkennir svæðið er hringlag eld- stæðisins og alger skógarbruni á geysimiklu flæmi. Er þetta ólikt þvi, sem gerist I vanalegum skógarbruna". Þetta varð Floren- sky að tilgreina I skýrslu sinni til vísindaakademiunnar. En auk þess rann hveitiræktartilraunin lika út I sandinn. Florensky varð loks að viður- kenna, að „mikill bálkur stað- reynda er til sönnunar hinum undrahraða trjávexti eftir 1908 í öllum atriðum og er þetta fyrir- bæri alveg bundið við miðsvæði landsins þar, sem atburðurinn varð“. í þokkabót komust stærð- fræðingar Florenskys að því eftir útreikningana, að sprengingin hefði orðið i fimm kilómetra hæð, en alls ekki á jörðu. Svört göt og andefni Fljótlega upp úr 1960 fóru Bandaríkjamenn að láta mál þetta til sin taka. Höfðu þeir ýmsar kenningar um orsakir sprengingarinnar. Sumir stungu upp á „svörtum götum“ svonefnd- um en aðrir upp á andefni. Enn aðrir bentu á það, að svört göt og andefni væru einungis hugar- smiðar vísindamanna og féllu auk þess ekki að frásögnum sjónar- votta um sivalan hlut af himni. Þeirri hugmynd skaut líka upp, að halastjarna hefði rekizt á jörðu, en hún var fljótt kveðin niður. Halastjörnur eru viðkvæm- ir gripir og auk þess mjög vel sýnilegar; þótti ólíklegt, að hala- stjörnu hefði lánazt að laumazt upp aó jörðu og springa svo, að krafturinn nam 30 megatonnum. Visindamenn, bæði sovézkir og vestrænir, hafa æ fleiri hallazt að kenningu, sem sovézkur höfund- ur nokkur setti fram árið 1946. Hann hét Alexander Kazantsev og hann hélt þvi fram, að gripurinn, sem sprakk I Tunguska forðum hefði verið geimfar. Hefði átt að reyna að nauðlenda þvi, en það þá sprungið. Alexander Kazantsev er mikils Framhald á bls. 16. Jöhann Jönsson LANDSLAG í skóginum sefur vatnið, hjá vatninu sefur gömul borg. Og silfurhvítt sumarregnið seytlaraf blaði á blað i þrúðgri, þögulli sorg. — af blaði á blað Og gamla borgin við vatnið í villiþyrnunum hulin stóð. Og dimmrauðar drúptu rósir um dyr og múr, sem hnigi þar hálfstorknað blóð, — um dyr og múr. I skóginum úti við vatnið ég viknandi leit hina gömlu borg, sem hlýddi’ eg á hálfgleymda sögu frá horfinni tíð um örlög og sára sorg, — frá horfinni tíð. í skóginum úti við vatnið ég veg minn gekk hljóður um grafin torg. Og silfurhvitt sumarregnið seytlaði af blaði á blað í þreyttri, þögulli sorg — af blaði á blað. (

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.