Lesbók Morgunblaðsins - 06.03.1977, Page 5

Lesbók Morgunblaðsins - 06.03.1977, Page 5
„Þarna voru saman komnir menn úr ýmsum stéttum. Það voru verzlunarmenn, rithöfundar, iðnaðarmenn, liððsköld og venjulegir verkamenn. Allir stjörnmölaflokkar munu hafa ðlt þarna fulltrúa". sá nú, bvað honum leið. Hann kom þvl þess vegna að, er við vorum setztir að snæðingi, að vfsan, sem hann hefði farið með væri gömul; hefði hann lært hana einhvern tfma og sér komið til hugar þarna um kvöldið, að hún mætti verða til þess að lækka hávaðann f skálanum. Gamla manninum létti mjög , er hann heyrði þetta. T6k hann gleði sfna smám saman aftur. En lftið eggjaði hann strák- ana eftirleiðis. Eins og ég sagði áður unnum við að skurðgrefti þarna fyrir austan. Átti að þurrka upp landið og taka það til rækt- unar sfðar meir. Þetta voru stðrir skurð- ir, sem við grófum. Tveir og tveir unnu jafnan saman, annar stakk en hinn kast- aði upp á bakkann. Hraun var þarna alls staðar undir, og þurfti stundum að sprengja burt hraunnibbur. Gekk verkið þó vel eftir atvikum. En kuldalegt var að standa við þetta f öllum veðrum. Menn voru Ifka misjafnlega búnir skjólflfk- um. En við vorum komnir til þess að vinna, en ekki sitja inni, þótt köldu andaði. Lffið á staðnum var mjög tilbreyt- ingarlftið. Samgöngur voru engar. Þær þrjár vikur, sem ég varð þarna, sá ég engan mann utan vinnufélaga mfna. Þegar vinnu lauk á kvöldin og búið var að borða lágu menn mest f kojum sfnum og lásu f bók þeir, sem höfðu haft rænu á að taka slfkt með sér; aðrir spiluðu á spil eða tefldu skák. Tíðarfar var frekar stirt og versnaði þó mjög, þegar leið á seinni vikuna, sem við áttum að vera. Tepptust allar sam- göngur um heiðina og þótti loks sýnt, að ekki yrði komizt á bflum að sækja okk- ur, eins og upphaflega var ráð fyrir gert. Ræddi aðalverkstjórinn þetta nú við ráðamenn fyrir sunnan. Og endirinn varð sá, að vinnuflokkurinn skyldi verða eina viku enn fyrir austan, ef þá brygði svo til betri tfðar, að bflar kæmust yfir heiðina. Þótti mörgum sinn hagur hafa hækkað, að þeir skyldu fá þarna kaup f eina viku enn. Aftur á móti hafði enginn gert ráð fyrir þessu og margir voru orðn- ir vettlingalitlir og fötin farin að lasn- ast. A þessum árum áttu margir ekki til skiptanna. Það, sem aflaðist, fór f annað. Veðrið hélzt svipað næsta daga og bætti þó heldur á en hitt. Eftir miklar umræður við þá fyrir sunnan var ákveð- ið, að næsta laugardag færu allir fót- gangandi til Reykjavfkur. Á laugardag- inn voru allir snemma á fótum. Það átti að leggja af stað um áttaleytið. Menn fengu sér hressingu og svo var haldið af stað. Ekki voru allir jafnvel búnir til göngunnar. Flestir voru á klofstfgvélum, höfðu ekki haft með sér annan skófatnað og voru auk þess óvanir löngum göngum. En ekki tjóaði að deila við dómarann. Verkstjórarnir réðu mönnum að fara sér hægt fyrsta kastið meðan þeir væru að liðkast, en sfga svo heldur á. Einn verkstjórinn fór með okkur. Átti hann að hafa umsjón með hópnum á leiðinni. Ekki höfðum við farið langt, er átta menn tóku sig út úr hópnum og hófu kappgöngu. Dró brátt sundur með okkur þvf, að aðalhópurinn fór að fyrirmælum verkstjóra og flýtti sér hægt. Við geng- um eftir þjóðveginum gegnum Selfoss, yfir ölfusárbrú, sem þá var, og veginn til Hveragerðis. Er við vorum komnir langleiðina þangað sáum við, hvar f jórir þeir gönguglöðu hurfu upp fyrir Kamba- brún. Hinir fjórir höfðu hægt ferðinna og voru miðja vegu milli. Náðum við þeim efst f Kömbunum; þar voru þeir setztir og biðu eftir okkur. Færð hafði verið sæmileg fram að þessu. En þegar kom á heiðina var snjór bæði meiri og þéttari. Hélt hann þó ekki gangandi manni; og óðum við snjóinn f mjóalegg og allt f hné f verstu sköflun- um. Þreyttust margir fljótt á þvf, og miðaði okkur seint áfram. Á miðri heiðinni gengum við fram á þá félaga, sem fyrstir höfðu farið. Voru þeir lagztir fyrir og alveg uppgefnir. Þeir kváðust ekki geta gengið lengra og vildu bfða snjóbflsins. en það var ákveð- ið, að farangur okkar yrði fluttur upp á Kambabrún, og lftill snjóbfll, sem vega- gerðin átti og dró eftir sér sleða, skyldi sækja hann þangað og flytja niður að Lögbergi. Þangað var þó fært. En bæði var nú óvfst, hvenær snjóbfllinn kæmi og einnig, að hann gæti tekið mennina, og var þvf afráðið, að tveir aðrir yrðu eftir þarna og reyndu að koma þeim uppgefnu niður að Kolviðarhóli. Völdust fararstjórinn og með honum sá okkar, sem bezt var búinn til göngu og erfiðis. Héldum við hinir svo áfram göngunni og skiptust menn á um það að troða slóðina. Veður var sæmilegt, loft þungbúið en vindur hægur og vægt frost. Akveðið hafði verið, að allur hópurinn borðaði á Kolviðarhóli. Höfðu ráðamenn fyrir sunnan gengið frá þvf. Létti það mörg- um gönguna að eiga von á matnum og stundarhvfld með. Var leiðin orðin þreyttum mönnum löng. Þegar þar kom um sfðir, að við sáum heim að hólnum, hertu margir gönguna og jafnvel hlupu sumir sfðasta spölinn. Okkur var vel tekið á hólnum. Stóð þar uppbúið borð fyrir alla og var borinn inn heitur og góður matur. Gerðu menn honum góð skil og hresstust brátt. Er við höfðum matazt var farið að hyggja að þeim, sem urðu eftir á heiðinni. Var jafnvel talað um það að fara á móti þeim, en áður en af þvf yrði sást til þeirra. Fóru þeir mjög hægt og þegar kom f aðalbrekkuna gáfust þeir alveg upp á göngunni og tóku til að skrfða. Skriðu þeir alla leið inn á stofugólf og lágu þar sem dauðir væru. Var nú reynt að hlúa að þeim eftir þvf, sem föng voru til. Sýnt þótti, að þeir gengju ekki lengra að sinni. Var þvf ákveðið að reyna að ná sambandi við snjóbflinn og biðja hann að taka j^á ef hann gæti, þegar hann kæmi að austan með farangurinn. Voru f jórmenningarnir svo faldir umsjá húsráðenda; átti að reyna að koma f þá mat, er þeir hefðu hvflt sig dálftið. Við binir lögðum nú af stað niður að Lögbergi. Þangað áttu að koma bflar. Veður hafði heldur versnað, vindur auk- izt, og skafhrfð f Svfnahrauni. Færðin var afleit. Þreyttust sumir fljótt og togn- aði mjög úr hópnum. Þó komust allir að Lögbergi þótt seint væri: komum við þangað um nfuleytið um kvöldið. Hús- ráðandi tók vel á móti okkur. En þröngt var orðið á þingi þar, er allur hópurinn var kominn inn. Bflarnir, sem áttu að sækja okkur voru komnir fyrir góðri stundu. En þeir áttu lfka að taka farangurinn og urðu þvf að bfða snjóbflsins. Á honum bólaði lengi ekkert. Kom hann ekki fyrr en klukk- an hálf ellefu. Hann hafði tafizt á leið- inni og einkum við það að taka mennina á hólnum. Höfðu þeir verið ófúsir að fara. Nú voru hafðar hraðar hendur og dót- inu komið fyrir f bflunum þvf, að veður- útlit hafði versnað mjög. Vorum við enda ekki fyrr setztir inn f bflana en brast á með stórhrfð, feikna fannkomu og stóra stormi. Við lögðum samt af stað. En ekki höfðum við farið lengi, er bfl- arnir festust f snjónum. Voru þá allir kallaðir út úr bflunum til að moka og ýta. Gekk þetta fyrst og komust bflarnir smáspotta við og við. En mannskapurinn varð mjög blautur; við vorum alltaf að fara út úr bflunum. Þegar kom niður fyrir Geitháls varð séð, að ekki yrði lengra komizt á bflum. Eftir nokkra bollaleggingar var ákveðið, að við gengjum það sem eftir væri til Reykjavfkur. Voru margir tregir að fara út úr bflunum en fóru þó allir um sfðir. Voru verðir settir til að halda hópnum saman. Einum manni tókst að komast aftur inn f bfl og fannst hann þar, er bflstjóri var að ganga frá bflnum áður hann ýfirgæfi hann. Ætlaði bflstjórinn ekki að fá manninn út með sér, en tókst þó á endum. Enn sóttist okkur ferðin sein. Við reyndum að halda hópinn og tókst það nokkurn veginn. En menn voru illa til reika, blautir og þreyttir. Það vildi til, að frost var vægt. Silaðist nú þessi lest áfram, og miðaði alltaf eitthvað. Þegar kom niður fyrir Eiliðaár tók hópurinn að smáþynnast. Áttu margir okkar heima f úthverfunum. Loks urðum við fjórir samferða niður Laugaveginn. Á Skólavörðustfg skildi ég við þá hina; þeir bjuggu allir þar skammt frá. En ég rölti niður Bankastræti, og svo gegnum miðbæinn. Engan mann sá ég á ferli, enda var klukkan orðin hálf tvö um nótt. Dálftil ófærð var í Austurstræti, upp Fischersund og inn eftir Ránargötu. En þar átti ég heima. Það voru þreýttir og þungir fætur, sem báru mig seinasta spölinn. En gott var að vera kominn heim. Og feginn varð ég hvfldinni. Menn voru hvattir til að ganga rólega ð heimleiöinni suSur til Reykjavlkur, en nokkrir menn vildu ekki una þvt og fóru geyst af stað. Þegar aðalhópurinn kom upp ð Hellisheiöi, Iðgu kappamir þar, þrotnir aö kröftum og uröu talsveröir erfiðleikar aö koma þeim alla leið til Reykiavfkur.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.