Lesbók Morgunblaðsins - 06.03.1977, Blaðsíða 10

Lesbók Morgunblaðsins - 06.03.1977, Blaðsíða 10
líterinn er þó dýrastur á Italfu og kostaði 85 krónur." Ragna: „Mikil áherzla er lögð á gæzlu á þessum girtu tjald- stæðum. Þar eru verðir og maður er látinn afhenda passa og sýna skilriki í hvert sinn, þegar maður vill komast inn. Margir halda kyrru fyrir á þessum tjaldstæðum I lengri tíma og það er lögð áherzla á fullkomið næði að næturlagi". Helgi: „Við héldum í einni lotu gegnum Genúa — sem okkur þótti litt fögur — og austur Pósléttuna, allt til Lignano, sem margir íslendingar þekkja. Sú leið var tæpir 700 km og við fór- um hana á einum degi, en urðum að vísu of sein fyrir, því það var búið að loka tjaldstæðinu. Við urðum að gera okkur að góðu að búa um okkur i bílnum einu sinni enn og lögðum honum bara á bíla- stæði. En rétt eftir að við vorum sofnuð, völyiuðum við upp við það, að einhver var úti fyrir með lykil og var í óða önn að reyna að komast inn í bilinn. Okkur brá ónotalega, maðurinn virtist vera drukkinn og litlu siðar kom lög- reglan. En þetta varð til þess að okkur varð ekki svefnsamt á eftir og ókum bara um mest af nótt- inni.“ Ragna: „Þetta var mjög ónota- leg reynsla, en tjaldstæðið i Lign- ano er hreinasta afbragð: hægt að tjalda í rjóðrum og láta bílinn standa í skugga alveg hjá. Þetta tjaldstæði nær yfir 36 hektara flæmi og við ætluðum fyrst að fara þar inn gangandi og líta á það. En það er til marks um, hvað verðirnir eru glöggir, að sá sem var á vakt kom strax auga á okkur og sagði: „Þið búið ekki hér“. Við sögðum honum frá erindi okkar og fengum að lfta á staðinn og tjölduðum siðan. Þarna vorum við síðan í heila viku og greiddum fyrir það sem svarar 6.200 krónum." Helgi: „Einn daginn ókum við til Feneyja. Um þá borg er þó ekki fært á bílum eins og flestir vita. Þar er viðáttumikil bila- geymsluhús og bilastæði, þar sem borgarbúar og ferðamenn leggja bílum sínum. Þar reyndist allt fullt og við tókum það til bragðs að leggja ólöglega framan við heila röð af bílum, sem höfðu verið skildir eftir þannig. Við fórum síðan fótgangangandi um Feneyjar og komum aftur á bila- stæðið eftir 5 tima, gengin upp að hnjám. Þá sáum við að lögreglan var með tvo kranabila að hirða bílaröðina, sem lagt hafði verið ólöglega og var okkar bíll einn eftir. Ég tók sprettinn, þegar ég sá hvað var á seyði og komst inn í bilinn áður en þeir gómuðu hann. „You very lucky" sagði einn þeirra brosandi og lét mig borga sem svaraði 1000 krónum I sekt — og hefur liklega hirt það sjálfur. Hins vegar kostar 5000 krónur að leysa út bíl sem hefur verið fjar- lægður". Ragna: „Frá Lignano lá leiðin norður á bóginn aftur. Við fórum um Udine, þar sem jarðskjálft- arnir urðu og ummerkin þar voru hryllileg. Húsin hafa verið illa byggð og á stórum svæðum stóð ekki steinn yfir steini. Leiðin liggur gegnum Tyrol eftir vel merktum sveitavegum og náttúrufegurðin er stórbrotin. Þarna er farið yfir Brenner- skarðið. Yfirleitt er ekki ekið mjög hratt á þessari leið; við ókum að mig minnir oftast á um 80 km hraða. í þessum áfanga fórum við til Innsbruck, sem er frægur skiða- Á hraðbraut nðlægt Birmingham I Englandi. bær. Við höfum aðeins farið á skiði I Austurríki of vorum þess- vegna dálítið kunnug. Þar er gott að koma og verðlagið alveg þolan- legt; bensinliterinn kostaði til dæmis 66 krónur." Og eitt smá- atriði, sem vert er að hafa I huga; smápeningum getur maður ekki skipt og þvi er betra að taka fyrir þá bensín eða eitthvað sem með þarf, ella kemur maður heim með alltof mikið af klinki.“ Á tjaldstæðinu i Lignano á italíu. Datsuninn reyndist vel I ferðinni og þau Ragna og Helgi skiptust á um a8 aka. Hér er smá hvlldar- stund vi8 þjóðveg { Englandi. Helgi: „Við ókum I næsta áfanga frá Innsbruck til Weesen I Sviss. Það er stórkostlegt að fara um þessi lönd, fagurt og hrikalegt i senn og húsin fara svo vel í landslaginu. Þarnæst finnst mér að fara um Belgiu og Holland. Við höfðum áður komið til Sviss og ókum þar ekki um að ráði I þetta sinn, en héldum áleiðis til Luxemburgar eftir þýzkum auto- bahn. Fyrst á dagskrá var eins og venjulega að koma sér fyrir á tjaldstæði. Varla er þó sami menningarbragurinn á tjald- stæðum þar og sunnar I álfunni; menn hafa þar einnar nætur við- komu á leið suður á bóginn, eða á heimleið og þarna voru drukknir Norðurlandabúar með hávaða. Við hliðina á okkur á tjald- stæðinu voru fullorðin, hollenzk hjón, sem litu okkur greinilega óhýru auga i fyrstu. Siðar kom í ljós að þau höfðu séð IS á bílnum og töldu þau okkur vera frá Israel. Það glaðnaði heldur betur yfir þeim, þegar það sanna kom i ljós; þá var eins og þau ættu I okkur hvert bein og þau gáfu okkur mjög gagnlegar bendingar um merkisstaði og leiðir i Hollandi. Mér finnst ástæða til að benda á þetta með stafina; það veldur misskilningi og getur leitt til óþæginda. Það er að minnsta kosti til bóta að hafa islenzka fánann með einkennisstöfunum.“ Ragna: „Eftir að hafa ekið um Luxemburg lá leiðin norður á bóginn, fyrst til Brussel og And- werpen í Belgíu og siðan til Hol- lands. I Haag sáum við Madrodam, sem er stórmerkilegt líkan af bæ. Maður gengur um hann og sér lífið ganga sinn gang eins og væri það í venjulegri borg. Við komum lika til Amsterdam og fiskibæjarins Vollendam, sem byggir vist meira á túristum en fiski nú orðið. Allstaðar var gott að koma; fólkið er einstaklega hjálplegt og gott að spyrja það vegar. I svona ferð er nauðsynlegt að hafa gott vegakort og við fór- um mest eftir Europa Touring, sem er mikill doðrant, en þvi miður var útgáfan frá 1974 strax orðin úrelt. Við ókum eftir 30 km löngum varnargarði sem hollenzku hjonin á tjaldstæðinu í Luxemburg höfðu eindregið ráð- lagt okkur að aka eftir. Þessi garður er feykilega mikið mann- virki og það var eftirminnilegt að fara þessa leið. Við héldum svo áfram gegnum Groningen og þvert yfir Norður-Þýzkaland, framhjá Hamborg og Bremen og styttum leiðina með því að taka ferju beint yfir til Sjálands. Það var hálftima sigling. En eftir að hafa stanzað I fjóra daga hjá kunningjum í Kaupmannahöfn, var lagt af stað að nýju; við áttum að vera komin allar götur til Bergen á ákveðnum degi til að ná i Smyril." Ilelgi: „Við ókum í einum áfanga frá Kaupmannahöfn til Oslóar; það eru 596 km — og fórum með bílinn á ferju yfir Eyrarsundið frá Helsingör til Helsingborg. Þegar til Oslóar kom var haldið beint á tjaldstæði, en auk þess vorum við þar aðra nótt hjá kunningjum okkar. Þá var ein dagleið eftir á skipsfjöl; leiðin frá Osló til Bergen, sem er 540 km, en seinfarin mjög. Maður er einlægt að aka upp brekkur eða niður, en engu að siður tel ég Noreg mjög skemmtilegt land til að aka um. Landslagið er tilbreytingarríkt og fyrir ofan barrskógabeltið koma IU

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.