Lesbók Morgunblaðsins - 03.04.1977, Blaðsíða 5

Lesbók Morgunblaðsins - 03.04.1977, Blaðsíða 5
Taflan eftir að hún var færð á nýtt léreft Eldri trétafla úr Dómkirkjunni, sem hefur sprungið f tvennt. að eftir henni altaristöflur, sem hanga víða um land, og þeirra á meðal Sigurður Guðmundsson, málari, sem „kopieraði “ hana oft- ar en einu sinni“. „Hverjar eru orsakir þess að taflan var svona illa farin?“. „Fyrst er e.t.v. rétt að geta heimilda úr þjóðskjalasafni, en þar stendur: 1848 Kirkjan vigð (í núverandi mynd.) 1862 Allt tréverk rifið innan úr kór kirkjunnar, ónýtt vegna fúa. Annað nýtt sett í staðinn. 1871, 16. okt. Sr. Þórarinn Böðvarsson, prófastur i Görðum á Álftanesi skoðar kirkjuna skv. beiðni. Hann telur, að hún sé í mjög slæmu ástandi. Altaristaflan farin að skemmast af raka og fleira, sem gyllt hefur verið. „Þetta sýnir, að á 14 árum ónýt- ist allt tréverk kórsins af fúa. Á sama tíma byrjar léreft töflunnar að skemmast að aftan af myglu og 9 árum seinna er verulegur skaði á töflunni augljós. Ekki löngu eft- ir þetta eru 3 bætur limdar á bakhlið töflunnar til þess að reyna að halda sarnan léreftinu, sem þá er orðið götótt vegna fúans. Frágangurinn á þessari töflu er einkennilegur að því leyti, að á henni er heilt bak úr viði, sem áfast er rammanum, þannig að málverkið er sett i rammann að framan (en ekki að aftan eins og venja er). Loft fékk því ekki að leika um léreftið að aftan og af- leiðingarnar urðu þær að þar varð ágæt gróðrastía fyrir myglu, sem stöðugt jókst. Nú á hins vegar að bora göt með vissu millibili á bak- ið og þar með er þeirri hættu bægt frá.“ Viðgerð á töflunni er nú lokið — hún hefir verið færð á nýjan striga, til þess að tryggja undir- stöðuna og koma I veg fyrir frek- ari skemmdir og flögnun á máln- Myndin f byrjun fyrsta hreinsunarstigs. Dökkur blettur við höfuðið vinstra megin, sem hefur verið málaður seinna yfir frummyndina var fjarlægður. ingunni; myndin hefur verið sett á upprunalegan blindramma, sem var lagfærður og styrktur, gert hefir verið við götin, málverkið hreinsað og loks ferniserað á ný. „Heldur þú nú, að með þessum og öðrum lagfæringum sé ástand- ið i Dómkirkjunni tryggt gegn frekari skemmdum?" „Það er nokkur fróðlegt að visa aftur i heimildir Þjóðskjalasafns- ins. Þar sézt að baráttan var stöð- ugt háð við raka og kulda: 1878 Kirkjan er „stórgölluð ut- an og innan“ (Prófastsvísitazia). 1880 Prófastsvísitazia: 1879 fékk kirkjan aðalviðgjörð, hlaðið var steinlag utan um kórinn og bundið við hinn eldra múr. Allar sýnilegar skemmdir á múr, rúð- Algengt dæmi um sprungur, sem mynduðust á flestum súlum kirkjunnar vegna ofþurrksins. um og þaki voru og endurbættar. Undir skrúðhúsið var hlaðinn af nýju grunnur úr grásteini. Kirkj- an var og öll lituð að innan og öll gylling endurnýjuð. 2 ofnar hafa verið settir i kirkjuna fyrir fram- an miðju, sinn hvoru megin og 1 ofn i skrúðhúsið. Orgelið var tekið niður meðan á viðgerð stóð, en reyndist aftur upp sett óbrúkanlegt, og hefur litið harmonium síðan verið not- að. 1882 Telur prófastur að setja þyrfti ofn i kórinn. Svona var ástandið þá. Hins vegar hafa skapast ný vandamál varðandi Dómkirkjuna að innan og muni, sem þar eru geymdir og upphaf þeirra má rekja til þess að hitaveitan var lögð i hana árið 1945. Nú er þar stanzlaus hiti, mikill og þurr og afleiðingarnar hafa m.a. orðið þær að súlurnar i kirkjunni hafa sprungið. Gömul altaristafla, máluð á tré, var i kirkjunni upprunalega. Húi} er í láni frá Þjóðminjasafninu og hef- ir lengi hangið yfir dyrum inn í skrúðhúsið. Þessi tafla er klofin i tvennt og nærri i þrennt vegna hins þurra lofts. Litla altaristafl- an i skrúðhúsinu er lika farin að springa. Og enn er þess ógetið, að orgelið i Dómkirkjunni heldur ekki lengur stillingu vegna þurrksins. Allar þessar skemmdir stafa einfaldlega af því, að þess er ekki gætt að halda jöfnu og hæfi- legu rakastigi þar innan dyra“. „Hvað er hæfilegt rakástig?" „Hæfilegt rakastig innanhúss telst 55% og æskilegt hitastig að jafnaði 20 gráður. Listaverk eru talin í hættu fari rakastigið niður fyrir 50%. Erlendis þykir sjálf- sagður hlutur nú til dags að koma fyrir rakastillum á hverjum þeim stað þar sem varðveita á málverk og önnur verðmæt listaverk. í þessu sambandi er þó rétt að taka það fram að vilji menn koma á æskilegu rakastigi á slikum stöð- um þar sem þurrt loft hefur rikt lengi, verður að fara mjög gæti- lega i sakirnar, svo ekki hljótist skaði af. Þar verður að hækka rakastigið smátt og smátt um lengri tíma og undir stöðugu eftirliti. Gleðilegt er til þess að vita, að þetta vandamál mun einnig leyst innan tiðar i Dómkirkjunni og Framhald á bls. 24. Litla taflan í skrúðhúsinu með nýrri sprungu, sem sést neðst til vinstri á miðmyndinni.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.