Lesbók Morgunblaðsins - 03.04.1977, Blaðsíða 18
Fyrir
sjötíu
arum
Fyrir 70 árum birtust
myndir í blöðum af
markverðum atburðum, eim
og nú. Hér er örlítið brot
frá þeim tíma.
KONUNGSHEIMSÓKN
Sumarið 1 907 kom konungur Danmerkur og íslands Friðrik 8. I kynnisferð til íslands ásamt syni sinum Haraldi prins og
40 dönskum ríkisþingmönnum. Á myndinni býður baejarstjórn Reykjavlkur konung velkominn.
BOTNVÖRPUNG-
URINN
JÓN FORSETI
Fyrsti botnvörpungurinn sem íslend-
ingar létu smíða kom til landsins
23.— 1 1 907 og þótti sérlega
vandað skip. Félagið Alliance var
eigandi skipsins en skipstjóri Hall-
dór Kr. Þorsteinsson.
NÁTTÚRUHAMFÁRIR í SAN FRANZISKÓ
Jarðskjálftar og eldsvoði í kjölfar þeirra ullu gífurlegu tjóni í San Franziskó árið
1 907. Fregnir bárust þaðan um að mörg þúsund manns hefðu farizt. Þær voru þó
orðum auknar, en alls munu um 1000 manns hafa látið lífið í hamförunum.
Miklum óhug sló á almenning vegna þessa atburðar.
MORÐTILRAUN
Alfons 13. Spánarkonung-
ur gekk að eiga Enu von
Habsburg. Þjóðhátlð skyldi
haldin i Madrid i tilefni
brúðkaupsins, en óróasegg-
ir meðal andkonungssinna
stóðu fyrir sprengjutilræði
við hann I mal 1 906, þegar
hann ók um götur Madrid
ásamt drottningu sinni.
Alfons konungur og Ena
sluppu ómeidd en nokkrir
förunautar þeirra létu llfið.
Myndip er af atburðinum.
KEISARAYNJAN OG RASPUTIN
Það vakti hneykslan um allan heim, þegar fréttist frá St. Pétursborg I árslok 1 906
að Alexandra keisaraynja hefði gerzt fylgismaður Rasputins, ævintýramannsins
sem ávann sér skjótt hylli innan rússnesku hirðarinnar. Sumir sögðu hann
áhrifamestan meðal valdamanna þer I landi. Á myndinni sitja þau Rasputin og
keisaraynjan að tedrykkju