Lesbók Morgunblaðsins - 11.09.1977, Side 10

Lesbók Morgunblaðsins - 11.09.1977, Side 10
FASSBINDER nýja bylgjan og endur Katzelmacher (1969) Warum liiuft herr R. amuk? (1970) Rio das mortes (1971) Áður hefur verið sagt frá þvi, hvernig Fassbinder gerði Liebe ist kálter als der tod fyrir 10.000 mörk, sem hann fékk lánuð, og efni þeirrar myndar. Katzelmaeher, sem var næsta mynd, var gerð upp á krit þetta sama ár, 1969, en þegar Fassbind- er tókst að selja þær í sjónvarp, gat hann borgað skuldir sinar af báðum þessum myndum, og átti þá auk þess nógu mikið eftir til að gera þriðju myndina, Götter der Pest. Þar með var framleiðsluhjól Fassbinder — verksmiðjunnar farið aö snúast og i þessum pistli er ætlunin að rekja framkvæmdir Fassbinders í stórum dráttum. FYRSTU 10 MYNDIRNAR 1 upphafi myndar no. 2, Katzelmacher, setur Fassbinder upp svohljóðandi skiltí: ,,Það er betra að gera ný mistök heidur en að endurtaka þau gömlu þar til hugurinn staðnar". Fassbinder, þá aðeins 23 ára, virðist vera vel meðvitaður um hæfileika sína og þá einnig þann möguleíka, að þessir hæfileikar kunni iiðru hvoru að leiða hann i listræn og hugmyndafræðileg öngstræti. Og hvað gerir það til? Hann ætlar ekki að láta slíkar grillur stoppa sig af, mikilvægast er að halda áfram, framleiða, kanna ný svið, nýjar hugmyndir, takast á við hvaða verkefni sem er. Katzelmacher, ‘69, þýðir „erlendur verkamaður“ á málýsku S-Þjóðverja. 1 myndinni er sagt frá litlu, friðsælu samfél- agi, þar sem stöðnunin kemur fram í því, að tíminn er drepinn með spilamennsku og marklausu hjali í bakgörðum, og þeim áhrif- um, sem grískur verkamaður hef- ur á þetta samfélag, þegar hann flyst þangað. Nærvera hans hefur truflandi áhrif á jafnvægið, sem áður rikti (ein ástæðan er sú, að stúlkur laðast mjög að honum) og leysir úr læðingi fasistiskar til- hneigingar, sem blunda undir brothættri skurn jafnvægisins. Verkamaðurinn er leikinn af Fassbinder eins og Franz, utan- garðsmaðurinn í Liebe ist kálter als der tod. Fassbinder hlaut tvenn verðlaun á kvikmyndahá- tíðinni í Mannheim 1969 fyrir Katzelmacher og trúlega hafa þau orðið til þess, að honunt tókst að selja sjónvarpinu sýningarrétt á báðum fyrstu myndunum. 1970 gerir Fassbinder 4 myndir, tvær á eigin vegum og tvær fyrir sjónvarp. Götter der pest ('Guðir plágunnar) fjallar líkt og fyrsta myndin um glæpamenn undir- heimanna og einn þeirra, sem hefur verið nýsleppt úr fangelsi. í flestum myndum Fassbinders fá niðurbældar tilfinningar útrás í ofbeldi og í þessari skýtur lög- reglumaður tvo glæpamenn til bana með köldu blóði, ekki á götu úti eða yfirgefnum hálfhrundunt húsum, heldur í stórri kjörbúð. í Der Amerikanische soldat (Ameríski hermaðurinn) er sagt frá fyrrverandi Viet Nam her- manni, sem kemur til Miinchen sem Ieigumorðingi, ofurseldur móðursýkislegu ofbeldi. I Pionere in Ingolstadt (TV, ‘71) ráðast her- menn á friðsama þorpsbúa undir því yfirskini, að „þegar ekki er strið, verður að búa það til“. Fyrstu myndir Fassbinders hafa verið taldar undir sterkum áhrifum af amerískum glæpa- myndum frá 1930—‘40, enda við- urkennir hann fúslega „að um það bil helmihgurinn af minum fyrstu myndum var um „uppgötv- anir“ mínar i amerískum kvik- myndum; það má segja, að ég hafi yfirfært andann í amerisku myndunum yfir i úthverfi Munchen. Hinar eru það almennt ekki. Þær voru rannsókn á þýsk- um raunveruleika; erlendum verkamönnum, á niðurbældum, miðaldra skrifstofumanni og okk- „Rainer er bölvaður nagli, en manni getur ekki verið annað en vel til hans. Hann getur verið svo elskulegur en samt virðist hann hafa ein- hverja þörf fyrir það að vinna undir stöðugu rifrildi“. Peter Zadek, leikstjöri. „Verðlaun, virðing og lof leiða hljóðlátlega til samruna við kerfið, þar sem hinn hálf- vinstrisinnaði utangarðsmaður verður eins og rós í hnappa- gatið“. Spádómur Ekkehard Pluta, eftir að Fassbinder hafði gert 5 myndir. ar eigin stöðu sem kvikmynda- gerðarmanna". Danski gagnrýn- andinn og kvikmyndaleikstjörinn Christian Baard Thomsen varð hvumsa, þegar Fassbinder sagði við hann í þeirra fyrsta samtali ‘69, eftir hina átakanlegu frum- sýningu á Liebe..., að einu mynd- irnar, sem vektu áhuga hans, væru þær amerisku, vegna þess þær nytu svo mikillar hylli al- mennings. Fassbinder hefur þó ekki aðeins orðið fyrir áhrifum af amerískum kvikmyndum, því fyrsta mynd hans er tileinkuð Chabrol, Rohmer og Jean-Marie Straub, svo vafalitið hefur franska nýbylgjan átt einhver ítök i honum. Sumir gagnrýnend- ur vilja jafnvel gera því skóna, að Fassbinder sjái amerisku mynd- irnar „i gegnum hið litaöa gler Frakkanna", þannig að áhrif þeirra á hann séu fjarlægari en á frönsku leikstjórana. Það er vel- þekkt, að franska bylgjan hóf amerískar B-myndir til vegs og virðingar og með Goodard i farar- broddi gerðu frönsku leikstjór- arnir nær óþekktan leikstjóra, Don Siegel, að fyrirmynd sinni. Fassbinder endurtekur að nokkru sama leikinn, en hann hefur þrá- sinnis lýst þvi yfir, að myndir Douglas Sirk hafi haft mikil áhrif á sig. (Sirk var Dani, Detlef Hans Sierck, menntaður i Kaupmanna- höfn, Hamborg og Munehen, blaðamaður, leikari og leikstjóri á sviði frá 1923—‘29, handritshöf- undur hjá Ufa og kvikmyndaleik- ari til ‘35, en þá leikstýrir hann sinni fyrstu mynd. Leikstjóri i Hollywood 1943—‘60, én snýr þá aftur til Þýskalands.). Warum láuft herr R. amok? (Hvers vegna varð hr. R. vit- laus?) er fyrsta rnyndin, sem Fassbinder gerir fyrir, eða i sam- vinnu við, sjónvarpið, 1970. Jafn- framt er þetta fyrsta myndin þar sem hann deilir handriti og leik- stjórn með öðrum, Michael Fengl- er. 1 þessari niynd er fjallað um þjakaðan skrifstofumann, sem lif- ir mjög „eðlilegu" lífi með eigin- konu og börnum, hann hefur örugga vinnu og mikinn fritima. En hann hefur ekkert takmark, lífið er innantómt og svo vana- bundið og vonlaust, að dag einn, án nokkurs tilefnis myrðir hann konu sína og börn og hengir sig síðan í baðherberginu. Die Niklashauser fahrt (The

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.