Lesbók Morgunblaðsins - 11.09.1977, Side 12

Lesbók Morgunblaðsins - 11.09.1977, Side 12
Þú fœrð loðin svör - fyrst þarf að athuga hvað við- komandi ö í bankabókinni og síðan hvar hann stendur í þjöðfélagsstiganum öður en hann fœr inni ö Hötel Formentor Inngangur íThalayot iArta Ofi þar koni art því art maður fékk nóf> af sólinni og fer að haga sér eins ojí innfiedtiur Mallorquini, sitja í skufíf>anuni, Of> f!anf>a skuf>f>amef>inn á fíötunni of> taka sér siestu um miðjan dajf- inn. Undanfarið hefir verið óslitið sólskin (if> ntilli 25 of> .'}() stif> i forsælunni Kakinn ntikill of> hvað lítið sem maður hreyftr sifí, fara fötin að límast við mann af svita. Kn hvað um það, því meir sem rnaður kynnisl evjunni hér, heillast maður nteir Of> meir af söfiu hennar oj> íbúum, að fornu of> nýju. Jafnvel svo að maður lætur ekki brennandi sólina aftra sér i að nota frislundirnar til þess að svala fróðleiksfýsninni. Við byrjum á byrjuninni, en hún er nt.a. í Artá, sent er fjalla- þorp á austurströnd Mallorea. Artá er þekktust fyrir f>ríðarstóra of> faf>ra hella, Cuevas de Artá. Þessir hellar eru marf>skiftir of> ein hvelfinf>in af svipaðri stærð ofí dómkirkjan í Palnta, En við erum ekki í hellaferð í daf> of> því beyfíjum við til hæf>ri, rétt eftir að við höfum ekíð út úr Artá til suðurs. Við lef>f>jum bilnum i litlu skóf>arrjóðri, ýtum frá okkur nokkrum tr.jáf>reinum oj> stönd- um auftliti til aufslitis við leifar mannvirkja frá því 10 árhundruð- um fyrir Krist. Það er fátt vitað um mannvirki þessi, en þau virð- ast hafa verið vistarverur af ein- hverri f>erð, á einum stað er sett fram sú tiljtáta að urn f>rafhýsi sé að ræða en í auj>um leikmanns bendir fleira í þá áttina að um híbýli lifandí fólks hafi verið að ræða. Thalayotin eru víðáttumikil ()f> marf'slunf'in, samhangandi hleðslur og maður undrast hvern- ig þessum miklu bjrögum hefir verið komið á sinn stað af verk- færalausum steinaldarmönnum, en björgin eru mörg mjög þung, sennilega 6—8 tonn og þaðanaf meira. Helstu leifar sem vitað er um, eru hér í Artá og við smá- þorpið Capicorp, skammt fyrir sunnan og austan Palma. Frá Artá ökum við í norðvestur og fylgjum strönd Alcudia-flóans, uns við komum til Puerto de Alcudia en þar er ein lengsta sam- fellda strönd á Mallorca og undur- fögur. Á leiðinni milli Artá og Aleudia beinist athygli okkar að því að landið er ekki eins skræl- þurrt og annarsstaðar á eyjunni og má jafnvel sjá mýrarfláka og flóa, er nær dregur Alcudia. Kétt norðvestan við Puerto de Alcudia beygjum við til vinstri að fyrstu höfuðborg Kómverja á Mallorca, Pollentia (Afl), en eftir nokkrar árangurslausar tilraunir tökst Kómverjanum Quinto Cecilio Metelo að hertaka eyjuna árið 123 fyrir Krist. Með því að klæða skip sín nautshúðum og búa menn sína leðurjökkum, tökst honunt loks að komast á land, en fyrri tilraunir strönduðu á 1 skotfimi frum- byggjanna með vaislöngur sínar. Við göngum um rústirnar og hug- urinn reikar aftur í tímann. Ein- stök súla og súlubrot, ásamt vegg- parti, verða að mynd. Hallargarð- ur, baðaður sól, prúðbúið fólk, hermenn í litklæðum með hjálma og vafða fætur. Kvöld færist yfir og kyndlar bera birtu um borgina sem enn mótar vel fyrir, jafnvel neðanjarðar skolpkerfi er enn við líði. Ef Vandalar hefðu ekki gert eina af heimsóknum sinum árið 465 eftir Krist, væri sennilega meira eftir af hinni fornu Pollentíu. Þegar maður sér at- burðinn á vaxmyndasafninu í Foro de Mallorca, þykir manni heldur leiðara að vera i ætt við þennan óþjóðalýð, Vandalana, en þeir voru Germanir er fóru ræn- andi og ruplandi suður alla Evrópu, allt suður til Afríku, enda gerðir heldur ógeðslegir og svipljótir þar sem þeir, næstum slefandi, bera nakta, spriklandi ungmeyju frá brennandi borgar- rústunum. Skammt frá borgar- rústunum er leikhúsið, dæmigert Rómverskt hringleikahús, Teatro Romano. Og enn reikar andinn. Við setjumst á steinbekkinn og slökkvum á sólinni, kyndlarnir lýsa sviðið, skykkjuklæddur Róm- verji með lárviðarsveig um höfuð- ið, les háfleig ljóð til hliðar situr annar við hörpuna og seiðir fram ljúfa tónlist. Mannfjöldinn situr þögull á bogmynduðum bekkjun- um. Eg hrekk upp við að hljóð- kútslaust mótorhjól tryllir fram- hjá, þau eru í tízku hér um þessar mundir og menga alla stærri bæi á Mallorca með hávaða. Hyers- vegna í ósköpunum getur mann- skepnan ekki lokað eyrunum eins og augunum? Er þetta ekki galli á sköpunarverkinu? Hugsið ykkur ef maóur lendir milli tveggja há- værra í fjölskyldupartíi, hve nota- legt væri að geta lokað fyrir eyr- UIl. Jæja, ég er víst komínn á rang- ar slóðir, best að aka þessa 700 metra til Alcudia og leggja bíln- um við hina fornu borgarmúra. Márarnir hófu uppbyggingu Alcudia (Hæðirnar), byggðu rammgerða borgarmúra, fögur borgarhlið. og hófu borgina tii fyrri vegsemdar. Jaime 1. víggirti hana til fullnustu, eftir að hann lagði eyjuna undir sig 1229. í dag standa múrarnir að hluta, borgar- hliðin endurbyggð að mestu, en búið að rjúfa skarð í múrinn á parti til þess að koma fyrir stórri kirkju. Héðan er örstutt til Puerto de Pollensa, litils fiski- mannaþorps við Pollensaflóann og hér er tilvalið að fá sér bita. Undir stráþaki á bryggjunni við listibátahöfnina er gott að teygja úr sér og fá sér einn af þessum frábæru fiskréttum, til dæmis blöndu af djúpsteiktum sandsíl- um, nokkra hringi af smokkfiski, 2 sardínur (ferskar) og til upp- fyllingar, smáskammt af brúnuð- um sveppum. Þetta rennur ljúf- lega niður með kollu af San Miguel. Að máltíðinni lokinni er upplagt að rölta um bryggjuna og virða fyrir sér fleyturnar sem eru hver annarri glæsilegri og alltaf kemur sjómaðurinn upp í mér þegar ég sé fallega skútu til sölu. Á bryggjusporðinum stendur Mallorquini á stuttbuxum og hef- ir úti tvær veiðistengur, en frúin situr í skugga sólhlífarinnar og skenkir bónda sínum einn og einn bjór. Karlinn er fiskinn og nokkr- ir tittir komnir í pokann. Hann sýnir okkur aflann og er mjög hrifinn af einum fiskinum, u.þ.b. 15 sm. smáfiski, sem hann telur sérstakt lostæti, en síðan flokkar hann tegundirnar eftir gæðum og skrautlegustu fiskarnir eru mjög neðarlega á listanum. Aflinn er í netpoka sem liggur í sjónum. Ný- lega var slegið Spánarmet í stangaveiði hér á Mallorca, en i uppistöðulóni, hátt upp í hlíðum Puig Major, hæsta fjalls eyjai inn- ar (1445m), veiddist silungursem vóg 8,7 kg. og hækkaði metið um helming, eða svo, en stærsti vatnafiskur sem veiðst hefir til þessa á Spáni var 4,8 kg. Hér er farið að klekja fiski i uppistöðu- lön sem eru fjölmörg á eyjunni og gegna þvi hlutverki að miðla vatni á ræktarlönd. Stangaveiði er orðin mjög vinsæl íþrótt hér, enda Spánverjar mikil fiskveiði- þjóð, rétt eins og við. Og úr því að við erum komin Frá Puerto de Pollenza. „Ef ég væri rikur . . ."

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.