Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 11.09.1977, Qupperneq 16

Lesbók Morgunblaðsins - 11.09.1977, Qupperneq 16
hugtkoti *Nood« ^Ml«n * EN EF EG GsRJ þAÐ, VElT É-G, AÐ A1B/? MUN LÍÐA HERFILE&A / GER&U þAÐ EKK/ UVOODE- STILLTU þ!G. Æ XALCDU þ/6 KollóttaK, RBVNOU'AÐ FVLLA & HANA- EG ER V/SS UM, AÐ EF EG FVLGrl þeSSAR/ STELPU HE/M, ReMST ÉG L ANG T ME£> HA NA. A EG ER SVO E/NMAUA ytÚN HEFUR PRUKK/E> S þRJU HVÍTV/NSGLÖS. HÚN ER ORÐ/N HÍTUÐ. þu /AÁTT EKK/ AÖTF/ERA þÉR 'ASTANP HENNAR. HÚN VERBUR AUÐ\ VELP V/ÖFANGS. þú þ/\RFT EKK/ AÐHfíFA FyR/R Á NEINUJ y Vestur-íslenzk Framhald af hls. 13 Bræðurnir kvæntust allir konum af bandarískum upp- runa og hafa verið búsettir i L os Angeles en John er nú Uátinn fyrir nokkrum árum. Sigriður systir þeirra hefur búið með fjölskyldu sinni i Scarsdale, New York Að námi loknu og þjónustu í hernum á stríðsárunum giftist hún Gail Raphael, framkvæmdastjóra auglýsingafyrirtækis i New York Hann er einnig rilhöf- undur Fjölskyldan og heimilið i Los Angeles Barnabörn þeirra Pálinu og Egils Shield eru 1 2 og barna- barnabörnin eru nú komin fram úr þeirri tölu. Til marks um það áð vitundin um ættlandið í austri er enn til staðar hjá ungu kynslóðinni má geta þess, að nokkur barnabörn þeirra hafa heimsótt ísland og nú þegar þetta er ritað er von á Sigrid dóttur þeirra í fyrstu heimsókn til hins raunverulega ættlands hennar Allt er þetta ættfólk norrænt i útliti, bregður jafnvel fyrir irsk- um litarhætti og svipeinkenn- um hjá sumum þeirra likt og titt er um íslendinga. Synir þeirra Pálínu og Egils erfðu útlit og yfirbragð norrænna víkinga. Allir urðu þeir miklir menn vexti, einkum þó John Þar i liggur skýring á þvi að hann var heima þegar annað ungt fólk var kvatt í herinn i heim- styrjöldinni siðari: Einkennis- búningar voru ekki til fyrir svo stórvaxna menn. Þá má geta þess að vegna útlits og likams- vaxtar var John kjörinn til þess að koma fram sem likneski Þor- finns Karlsefnis á hátið, er Islendingar i Los Angeles héldu i fyrsta skipti sem dagur Leifs Eirikssonar var hátíðlegur hald- inn þar i landi En eins og mönnum er kunnugt var Einari Jónssyni myndhöggvara falið á sinum tíma að gera styttuna af Þorfinni Karlsefni til þess að mmnast fyrsta hvita landnem- ans í Ameríku Þegar Pálina og Egill Shield fluttu til Los Angeles keyptu þau ibúðarhús fyrir fjölskyld- una í nágrenni við vinnustað hans. Þar bjuggu þau á meðan þau lifðu bæði. Eftir að börnin fluttu að heiman hélt heimili þeirra áfram að vera miðstöð fyrir fjölskylduna, vandamenn og vini og voru sumir langt að komnir bæði heiman frá íslandi ög út ýmsum byggðum Ameríku Þangað áttu ungir sem aldnir erindi þótt ekki væri til annars en njóta ánægju og velliðunar og endurnýja bar- áttuþrek og bjartsýni. Margar samverustundir þar eru ógleymanlegar, á rólegum virk- um degi eða hátíðum þegar á borðum var hangikjöt heiman frá íslandi eða amerískur hátíðaréttur, kalkún Húsráð- endum tókst á sjálfsagðan og óþvingaðan máta að sameina islenska heimilismenningu eins og hún gerist best og siði og venjur þess lands er hafði fóstr- að þau. En mestu máli skipti þó frelsið og traustið sem rikti manna á milli á þessu að ýmsu leyti sérstaka heimili. Egill og Pálina voru bæði sterkbyggð og heilsuhraust fram á efri ár. Heilsa hans brást siðustu árin en hann andaðist þ. 8. mars 1964, nær 84 ára að aldri. Pálina undi sér ekki á heimilinu eftir að hún varð ein, enda hafði þeirra farsæla hjónaband þá staðið í tæp 50 ár. Vanheilsa þjáði hana eann- ig. Hún seldi húsið og flutti í litla íbúð til Newport Beach í Kaliforniu Hún andaðist þ. 7. október 1 965 á 79 aldursári. Hér hefur verið rakin i stórum dráttum fjölskyldusaga þeirra Pálinu og Egils Shield. Ekki hefur verið vikið nema að litlu leyti að mannkostum þeirra og lífsstefnu, sem svo augljóslega mátti rekja til ætt- stofnsins og islenskra uppeldis- áhrifa þótt hvorugt þeirra kynntist íslandi af eigin raun. En þegar vanda skal mann- lýsingu vilja orð missa marks; Eg hygg því að eftirfarandi löngu liðið atvik lýsi lifsmáta þeirra beturen mörg orð: Það var eitt kvöld á stríðs- árunum, er þau Egill og Pálina voru stödd í lyfjaversluninni eftir lokunartíma, að vopnaðir ránsmenn réðust inn um bak- dyrnar og heimtuðu peninga. Þeir sem kunnugir eru i stór- borgum, ekki síst í Los Angeles vita að í slíkum tilvikum er mannslífum hætt. En Egill brást við með þeirri rósemi er honum var lagin. Á meðan þeir beindu að þeim byssum sinum rökræddi hann við komumenn: Um tvo kosti ættu þeir að velja; annars vegar að fremja glæp og verða að öllum líkindum gripnir og dæmdir, hins vegar að koma með þeim heim og þiggja af þeim mat og föt, en hvort tveggja virtist þá skorta enda voru stríðstimar og al- menningur bjó við þröngan kost. Viðmót hans og fortölur báru að lokum þann árangur að ránsmennirnir tóku þann kost- inn að fylgjast með þeim heim og þiggja mat og gjafir á heim- ili þeirra. Og eftir sem áður héldu þau Pálina og Egill þeim sið, að hafa útidyrnar að húsi sinu ólæstar að nóttu sem degi hvort sem þau voru að heiman eða heima. Eins og ég hef áður vikið að tel ég að næst móður minni hafi Pálina Shield átt mestan þátt í að móta lifsskoðanir mín- ar og afstöðu til mannlífsins. Hún bjó yfir þeirri lífsspeki sem kalla mætti: Listina að lifa Návist hennar og viðmót varð hverjum manni hvatning til sjálfstrausts og sjálfsvirðingar, einkum þó ungu fólki. Mér hef- ur oft orðið hugsað til þess hversu frábær kennari hún hlýtur að hafa verið á meðan hún kenndi við skóla. En hún hélt áfram að kenna ungu fólki alla ævi, ekki með orðræðum og stjórnsemi heldur uppörvun og með því óskoraða frelsi, trausti og tiltrú er hún sýndi öllum mönnum, skyldum sem óskyldum. Hver sá sem átti þvi láni að fagna að kynnast henni gat treyst á þátttöku hennar i gleði og sorg, ef ekki munnlega þá bréflega, fjarlægðin skipti þar ekki máli. Þannig tók hún virk- an þátt í lifi hvers einstaks i fjölmennum hópi ættfólks og vina, var sistarfandi að mann- legri velferð i einhverri mynd. I lifsstíl hennar fólst sá visdómur að hver einstaklingur sé jafn mikilvægur og heildin, börn jafnt og fullorðnir en á þau hlustaði hún með sömu athygli og hina sem náð höfðu fyllri þroska. Þessa lifsviðhorfs hennar nutu börn hennar og barnabörn i ríkum mæli svo og allt hennar ættfólk enda var hún elskuð og virt af þeim öllum En áhrif frá lífsskoðun hennar náðu einnig til þeirra sem af tilviljun urðu á vegi hennar og nutu vináttu hennar eftir það. Persónulega varð það mér ómetanlegur ávinningur. Júlí 1977 Þuríður J. Árnadóttir Nokkrar heimildir ásamt vegabréfi: Saga íslendinga i Norður-Dakota eftir Thorstínu Jackson, Winnipeg 1 926.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.