Lesbók Morgunblaðsins - 04.12.1977, Blaðsíða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 04.12.1977, Blaðsíða 7
Hjónin í Hvalnesi, ValgerSur SigurSardóttir og Benedikt Stefáns- son. Myndin er tekin í sumar. — Móöir mín, Kristín Jónsdótt- ir var ættuð úr Berufirði. Hún var áður gift séra Benedikt Eyjólfs- syni en hann var síðasti prestur í Berufirði, 1890 til 1906. Þau fluttu að Bjarnanesi í Hornafirði og þar andaðist hann frá mörgum, ungum börnum þeirra árið 1913. Siðar giftist móðir mín Stefáni Jónssyni, föður mínum en hann var fæddur og uppalinn í Lóni. Þau bjuggu í Hlíð í Bæjarhreppi; þar er ég fæddur þ. 10. desember 1917 og þar átti ég mín bernsku- og æskuár. — Mikil breyting hefur átt sér stað hér í sveit síðan á mínum unglingsárum. Landnámsjörðin Bær, (þar sem Úlfljótur lögsögu- maður bjó) er nú í eyði en þar var um 60 manns í heimili þegar ég var að alast upp. Fleiri góðjarðir sem framfleyttu jafnvel tveimur fjölmennum fjölskyldum eru nú í eyði. Bæjarhreppur var í eina tíð fjölmennasti hreppur í Austur- Skaftafellssýslu en er nú sá fá- mennasti. Flestir munu bændur þar síðastliðin hundrað ár, hafa orðið árið 1880 en þá voru þeir 23 talsins. Nú eru þeir 12. En lífsaf- koma og aðbúnaður fólks og fén- aðar er ekki sfður breytt. Fram að aldamótum þekktist varla að til væru fjárhús. Faðir minn mundi vel eftir matarskorti á hans upp- vaxtarárum upp úr 1880. Þá voru hans bestu stundir ef hann gat komist út á sanda og fundið síli, borðað og orðið saddur af. Koli úr lónunum varð fólki mikil mat- björg. — Þegar ég var unglingur hélt ég að ég mundi hvergi kunna við mig annarsstaðar en í Hlið. En nú er ég kominn á þá skoðun, að það sé geðveila að una sér ekki á hverjum þeim stað þar sent hægt er að láta sér líða vel, liafa nóg verkefni og afla nægilegs viður- værisiyrir sig og sina. Benedikt segist ekki öfunda há- tekjumenn t.d. á aflaskipum, sem sagt er að hafi stórar upphæðir í hlut, þeir eigi það skilið. • — Þeir hljóta að eiga þetta fyr- ir sína vinnu rétt eins og skurð- læknir á sitt fyrir margra klukku- stunda skurðaðgerð. Allir þurfa að lifa mannsæmandi Iífi; hitt er annað: hvað hver álitur mann- sæmandi líf. Við sem ólumst upp við að vera kafin í vinnu, bara til þess að geta lifað og bjargað okk- ur, litum lifsgildin kannske öðr- um augum og vorum, held ég, ánægðari og lífsglaðari en þeir sem nú gera kröfur til lífsþæg- inda og lystisemda sem við þekkt- um ekki. Að mínum dómi eru ,,flibba“-mennirnir í þjóðfélaginu orðnir hlutfallslega of margir, samanber að bankastarfsmenn eru nú álika fjölntenn stétt og sjómennirnir. Þeir skapa þó fyrst og fremst lífsverðmæti, sem vinna hörðum höndum að öflun og úrvinnslu þeirra. — En hvað uni ættir og æskuár húsfreyjunnar? — Um ættir minar er það að segja, að föðurættin var frá Hornafirði en móðurættina má vist telja sambland af ýmsum þjóðernunt, segir Valgerður. Fað- ir minn hét Sigurður Eymunds- son og var frá Dilksnesi i Horna- firði, en móðir mín hét Agnes Moritzdóttir Steinsen. Ég ólst upp hjá þeim á Höfn og man eftir staðnum sem litlu sjávar- og sveitaþorpi. Ég vandist öllum störfum eins og þau gerðust hjá góðu fólki og man ég aldrei eftir að talað væri um matarskort á Höfn á þeim árum. Það kemur í ljóst aðValgerður er vel kunnug sögu verslunar á Höfn og þó öllu fremur á Papós og er ekki að undra, en ættfólk hennar kom þar nokkuð við sögu. Má þar nefna að ömmubróðir hennar, Eggert Benediktsson var siðasti faktorinn á Papós áður en verslun og athafnalíf lagðist þar niður og verslunarhúsin voru flutt þaðan til Hafnar. Nú er verið að breyta þeim í byggðasafn og mun eiga að innrétta þar krambúð í sinni upp- runalegu mynd. Valgerður fór á Kvennaskóla Arnýjar Filippusdóttur í Hvera- gerði. Eftir það giftist hún fljót- lega og fór að búa á Hvalnesi. — A þeim tíma var ekki hlaup- ið að þvi fyrir ungar stúlkur, síst utan af landi, að sækja langskóla- nám, segir Valgerður. Til þess þurfti að hafa peninga á bak við sig, enda var þá talið ágætt fyrir stúlkur að fara einn vetur á kvennaskóla, sérstaklega ef þær settust að í sveit. Eg hefði gjarna viljað hafa meiri skólamenntun og held því fram að stúdents- menntun sé nú jafn þörf fyrir konur sem búa í sveit og hinar sem búa í þéttbýli. Nú má segja að allir séu komnir i þjóðbraut, hvað afskekkt sem þeir búa. Hér hafa komið ferðamenn frá ýmsum þjóðum og gist hjá okkur eða leit- að bér upplýsinga. Það hefði kom- ið sér vel og orðið mér sjálfri til mikils fróðleiks, að vera betur fær í málum, þó ekki væri nema til þess að njóta þess betur að fá bréf og kveðjur sem okkur hafa borist frá þessu fólki á þeirra tungumálum. Hugðarefni og tóm- stundastörf Valgerður telur sig fremur hafa verið áhorfanda en þátttakanda í lifsgæðakapphlaupinu svonefnda. Tíska í húsbúnaði hefur ekki ver- ið henni eins mikið kappsmál og hefði hún verið kyrr í þéttbýlinu. — Hér höfum við lagt meiri áherslu á hugðarefni og tóm- stundastörf og lifað meira á þvi sviði, segir hún. Þó ég hafi alltaf jafn mikla ánægju af að blanda geði við fólk, hef ég metið náið samband við ómengaða náttúru mikils. Á surnrin fer timinn mest í bústörfin en á veturna gefst tími til að lesa og hlusta á útvarp og það gerum við mikið enda eru skilyrði til þess sérstaklega góð. Hins vegar er þetta ein af þeiin fáu sveitum á landinu sem ekki hafa skilyrði til sjónvarps, svo það hvorki truflar okkur né tefur. — Til allrar hamingju, segir Benedikt; Hann telur að fjölmiðl- ar riú hafi of mikil áhrif á skoðan- ir og tómstundastörf einstakling- anna. En þar er kona hans ekki á sama máli, hún vildi gjarna hafa sjónvarp. En Valgerður hefur nóg við tímann að gera, einnig á vetrum. Hún prjónar og saumar fatnað á fjölskylduna og vinnur að handa- vinnu og föndri en það er hennar eftirlætisiðja. Hagar hendur á hún ekki langt i ættir að sækja. Eymundur föðurafi hennar var mikill hagleiksmaður. Hann þótti góður læknir og tókst einnig vel að aðstoða við barnsfæðingar. Sem dæmi um hagleik hans má geta þess, að tengdamóðir hans, sem var ljósmóðir i Nesjahreppi, fékk hann eitt sinn til að hjálpa sér þegar aðstoðar var þörf við barnsfæðingu en enginn læknir var til staðar. Eymundur sá strax að barnið yrði að taka með töngun en þær voru engar til. Fór hann þá heirn i snatri og smíðaði fæð- ingartengur sem hann notaði við fæðinguna með góðum árangri. Barnið lifði en það var Þorbergur Þorleifsson frá Hólum i Horna- firði. Var þetta listbragð lengi í minnum haft. Eymundur giftist Halldóru Stefánsdóttur, Einars- sonar alþingismanns í Árnanesi. Var hann sendur til smíðanáms í Kaupmannaböfn og að þvi er talið var, til þess að verða samboðinn alþingismannsdóttur. Bóklestur og kórsöngur Búskapur á Hvalnesi gefur ekki tilefni til mikilla umsvifa enda meta þau Valgerður og Benedikt meira að hafa góða heilsu, næg verkefni, eitthvert andlegt fóður og góða nágranna. — Nágrannar okkar hafa reynst okkur afburða vel, segir Benedikt. Hér þekkist ekki nágrannakritur. Hjá okkur er það sveitarsiður þegar einhver bóndi er með byggingu i fram- kvæmd að hinir bændurnir eru tilbúnir að vinna með honunt kauplaust um leið og hann kallar en fá svo samskonar hjálp þegar þeir þurfa á að halda. — En hvað er þá helst hið and- lega fóður? Benedikt er mikill bókamaður og sest við bóklestur að loknum gegningum á veturna. Bók- menntaáhugi hans vaknaði snemma, um tvítugsaldur fór hann að safna bókurn og á nú gott safn. Hann ólst upp á miklu bóka- heimili. Stefán faðir hans pnni bókum og fróðleik. Hann ritaði m.a. Byggðasögu Bæjarhrepps. — Fyrstu bók sem ég eignaðist, gaf faðir minn mér þegar ég var 3ja ára en það var frumútgáfan af Manni og konu, sem gefin var út i Kaupmannahöfn 1876. Fyrstu ljóðabók Guðmundar Böðvarsson- ar keypti ég á 4 krónur 1936 og Stjörnur Vorsins eftir Tómas Guðm.son nokkrum árum seinna á 14 krónur. Þegar Flateyjarbók var gefin út til áskrifenda 1944 tók það mig talsverða umhugsun aö gerast áskrifandi. Ég bef ekki séð eftir þvi, upplagið var tak- markað og veit ég aö fáir eiga þá bók hér um slóðir. Benedikt á í safni sínu ýmsar fágætar bækur og tfmarit m.a. Búnaðarritið Frey frá því það hóf göngu sina árið 1904. — Eg held ég geti ekki talist. öfundsjúkur maður, segir Bene- dikt, en það liggur við að ég öf- undi Reykvíkinga af bókamörkuð- ununi, sem þeir sitja einir að en landsbyggðarfólk nær ekki til. Eina bókaverslun höfum við á Höfn og er það sú eina i sýslunni. Mér er sagt að fyrir hvern bóka- markað sem haldinn er i Reykja- vík séu innkallaðar allar eldri

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.